Hitabeltissvipurinn öðru sinni

Fyrir tæpum hálfum mánuði fjölluðu hungurdiskarum leifar fellibylsins Irene og þann sérstæða svip sem oft sést á lægðakerfum sem berast af suðlægari breiddarstigum. Nú fáum við að líta þetta svipmót öðru sinni og í þetta sinn á leifum fellibylsins Katiu sem nú er fyrir vestan Bretlandseyjar. Myndin er af vef Veðurstofunnar.

w-blogg120911a

Lægðarmiðjan er um það bil við bláa L-ið á myndinni. Málið er það að nær engin háský eru fyrir sunnan lægðarmiðjuna og erfitt að finna kuldaskil. Frekar er eins og grá slikja þeki svæðið suður og suðaustur af lægðinni. Þetta er svæði þar sem mjög hlýtt loft er í háloftum og bælir það allt uppstreymi um hríð. Þykktin er yfir 5700 metrar. Þetta er samt ekki eiginlegt hitabeltisloft heldur er það frekar úr norðurjaðri hlýtempraða beltisins. Trúlega hefur Katia náð venjulegu útliti á morgun. Það er vel þess virði að veita þessu sérkenni athygli. Það sést reyndar stundum líka á lægðum sem ekki eiga sér hitabeltisuppruna.

Annað atriði er á myndinni sem taka ætti eftir. Það liggur gríðarleg háskýjakápa til norðvesturs frá lægðarmiðjunni og allt til Suður-Grænlands. Hvernig skyldi hún vera tilkomin? Eru einhver skil samfara henni? Hvernig geta þau þá myndast? Hvar er hlýi geirinn eða kuldaskilin? Hvert hreyfist kerfið? Það er óhætt að upplýsa að kerfi sem þessi sjást mjög oft verða til þegar dýpkandi lægðir hreyfast hratt til austurs fyrir sunnan land. Rétt er einnig að taka eftir hinni skörpu suðvesturbrún skýjakerfisins. Hún bendir á tilveru háloftavindrastar sem liggur væntanlega nokkuð samsíða brúninni. Til morguns snarast lægð væntanlega út úr kerfinu um það bil þar sem sporbaugurinn er settur skammt frá Suður-Grænlandi.

Af stafrófsstorminum Maríu er það að frétta að miðja stormsins er nú norðaustur af Puerto Rico en vindhraði er ekki nema um 25 m/s því kerfið er þjáð af sniða. Samt býst fellibyljamiðstöðin í Miami við því að María nái fellibylsstyrk um stutta stund eftir þrjá sólarhringa - í þann mund sem kerfið vendir til norðurs og norðausturs. Fimm sólarhringar eru til Nýfundnalands. Nú er skemmtilegt að sjá hversu gríðarlega tölvuspár eru ósammála um það hvað síðan gerist. Evrópureiknimiðstöðin drepur kerfið og það sést varla á spám hennar. Bandaríska veðurstofan gerir Maríu að meiriháttar lægð sem marka á upphaf haustsins hér á landi. Hvoru skal trúað? Evrópureiknimiðstöðin tók Katiu miklu betur heldur en amerísku spárnar. Eigum við þá að trúa henni varðandi dauða Maríu? Málin ættu að skýrast fljótlega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll og takk fyrir skemmtilegan pistil , sem ég náði  allvel. Hann var flóknari

eðlisfræðilega og málfarslega þessi í fyrradag . Orð sem maður hafði ekki heyrt.

Hvað um það. Ég er sammála amerísku spánni. Það verður (held ég) stormur úr

þessu. Um það vitna ýms veðurteikn sem mér hafa ekki brugðist ,en ég tíunda

ekki hér.

óli Hilmar Briem Jónsson (IP-tala skráð) 12.9.2011 kl. 22:53

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Það er stundum þannig að ameríska og evrópska spáin eru stundum báðar réttar - þótt þær séu misjafnar. Núna virðast þær t.d. vera að sameinast um stefnu lægðarinnar - og útlit eftir að hún er gengin hjá. En miklu munar á kraftinum.  

Trausti Jónsson, 13.9.2011 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 286
  • Sl. sólarhring: 319
  • Sl. viku: 1860
  • Frá upphafi: 2350487

Annað

  • Innlit í dag: 211
  • Innlit sl. viku: 1660
  • Gestir í dag: 200
  • IP-tölur í dag: 199

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband