10.9.2011 | 01:57
Snubbótt af stafrófsstormunum
Hungurdiskar eru heldur snubbóttir í dag. Það stafar aðallega af glápi ritstjórans á afspyrnuvonda útgáfu af söngleiknum South Pacific í sjónvarpinu. Lögin standa reyndar fyrir sínu þótt þau hafi sum hver verið ákaflega illa sungin. Viðhorf ritstjóra til höfundanna verða því málum blandnari eftir því sem árin líða - en á góðu kvöldi er þetta samt besti söngleikur þeirra félaga - en ekki núna.
Stafrófsstormar geisa líka á Suður-Kyrrahafi - en nóg um það. Eins og fram hefur komið undanfarna daga eru nú þrír slíkir á Atlantshafi. Katiaer um það bil að breytast í lægð - sem alltaf verður betra og betra að fylgjast með bæði með tunglmyndum sem og tölvulíkönum. Fellibyljamiðstöðin í Miami hefur ekki sleppt hendinni af Katiu og fylgir henni allt norður að Hjaltlandi - þeir segjast vegna galla í tölvubúnaði ekki ráða við austurlengd í teikniforriti sínu (ótrúlegt en satt).
Mariahefur bólgnað út ekki mjög langt austur af Antilleyjum en ekki náð réttum snúningi. Ég er ekki með smáatriði þess máls alveg á hreinu og klukkan er orðin svo margt að rétt mun að halda aftur af sér áður en eitthvað ófyrirséð lekur úr fingrum fram á lyklaborðið. En fellibyljamiðstöðin segir Maríu hressast næstu daga og rétt sé að fylgjast vel með. Framtíðartölvuspár segja storminn komast inn á Norður-Atlantshaf seint í næstu viku - en ekkert samkomulag er um það.
Nate er örsmár stormur sem enn bara liggur og rótast á sama stað og áður við Yúkatanskaga og kemur okkur vonandi ekki við.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 85
- Sl. sólarhring: 151
- Sl. viku: 2006
- Frá upphafi: 2412670
Annað
- Innlit í dag: 82
- Innlit sl. viku: 1756
- Gestir í dag: 78
- IP-tölur í dag: 72
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Fyrsta myndin sem sýnd var í Laugarásbíói hinu nýja, áður var eitthvað eldra bíó í skamman tíma, var Souh Pacific. Það var árið 1959 og ég man það eins og gerst hafi í gær enda var þetta stórtíðindi í bæjarlífinu.
Sigurður Þór Guðjónsson, 10.9.2011 kl. 15:41
........ég tek innilega undir álit höfundar að " Suðurkyrrahafið"
var svo afspyrnu dapurlegt , að um mann fer rúðusköfutímabilshrollur við
tilhugsunina. Annars væri töluverð tilbreyting i krepputíðinni , ef fólk tæki
uppá að syngja lag þegar það keypti sér nýja ýsu eða strætókort. Þessu útgáfa
fær hálfa halastjörnu max , en líklega var frumgerðin skárri. Nóg um það.
Nú er í vændum kuldaskot á Vesturlandi , að því er virðist. Frost í fyrri helmingi
septembers sunnan heiða ! Er það ekki frekar óvenjulegt? Kemur þessi
kuldapollur að vestan eða norðan? Maður er bara hálf smeykur um jarðeplin
þegar svona háttar tíðarfari.
óli Hilmar Briem Jónsson (IP-tala skráð) 10.9.2011 kl. 22:38
Ég sá sýningu Laugarássbíós á South Pacific í júní 1960 - það var ógleymanlegt - í fyrsta sinn sem ég sá almennilega breiðtjaldssýningu (Todd-AO hét það í þessu tilviki). Ég hef séð þessa mynd að minnsta kosti tvisvar síðan auk þess að hafa séð söngleikinn á sviði, en ég hef aldrei lesið þá frægu (og fyrstu) bók James Micheners sem söngleikurinn kvu byggja á. En hér er ekki staður til að rekja pirring minn út í höfundana - hvílík sóun.
Óli Hilmar: Ég vona að versti hluti kuldans sé liðinn hjá í bili - en strekkingurinn tekur þá við. Frost eru ekki óalgeng inn til landsins á Suður- og Vesturlandi á þessum tíma - en mun sjaldgæfari við sjávarsíðuna. Kuldinn kemur að norðan og honum fylgir óvenjulegur þurrkur sem ég fjalla um í bloggpistli dagsins. Jarðeplagrös hafa sjálfsagt víða látið á sjá - það hafa bláberin alla vega.
Trausti Jónsson, 11.9.2011 kl. 01:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.