Úr ágúst yfir í september

Nú eru skyndilega komin mánaðamót rétt einu sinni og september í þann mund að hefjast. Hér á hungurdiskum hefur oft verið litið á breytingu á hita frá mánuði til mánaðar í gegnum tíðina. Ætli þetta verði ekki síðasti pistillinn í þeirri röð því umfjöllun um hitabreytingu frá september til október birtist hér þann 27. september í fyrra (2010) - og ástæðulítið endurtaka það. En hér er sumsé mynd dagsins.

w-blogg010908

Lóðrétti ásinn sýnir hitamun ágúst- og septembermánaða í Stykkishólmi. Lárétti ásinn sýnir ártöl, fyrstu tölur raðarinnar eru frá því 1798 og 1799 og samfelld er röðin frá 1808. Leitni er engin en sjá má votta fyrir tímabilaskiptingu. Í þessu tilviki er ánægjulegt að sjá leitnileysi mismunar hita tveggja samliggjandi mánaða því það eykur trú á því að byrjun mæliraðarinnar sé ekki arfavitlaus. En eins og oft hefur verið minnst á hér áður eru gögn fyrir 1830 nokkuð fljótandi.

Meðalkólnun frá ágúst yfir í september er 2,4 stig, það eru um 0,08 stig á dag eða 1 stig á um það bil 12 dögum. Við sjáum að það kemur fyrir að hlýrra er í september heldur en í ágúst. Mér telst til að það hafi gerst 14 sinnum á þessum 200 árum rúmum eða á um það bil 15 ára fresti að meðaltali. Ekki er það mikið. Líkurnar eru auðvitað mestar eftir að gríðarkaldir ágústmánuðir hafa gengið yfir.

Mest var hlýnunin milli mánaðanna árið 1958, 2,4 stig. Rétt eins og náttúran hafi beðið kvíðaköld eftir útfærslu landhelginnar þ.1. september þetta ár - en hafi síðan hitnað í hamsi um stund. Svo vill til að nú eru 15 ár síðan september yfirbauð ágúst síðast, 1996. Ekki var þó kalt í ágúst það ár. Sumir segja að hlýindaskeið það sem við nú lifum hafi byrjað með þessum hlýja september - ég hef ekki gert upp hug minn hvað það varðar.

Blái ferillinn á myndinni sýnir einhverja tímabilaskiptingu og mætti e.t.v. eitthvað um hana segja - en lesendur eru látnir um að gera það.

Sæmileg fylgni er milli hita í júlí og ágúst. Hún er minni milli ágúst og september - eiginlega engin um meginhluta landsins, en trúlega marktæk á Austfjörðum. Sjórinn hefur eitthvað með það að gera. Á annesjunum er úthafsloftslag mest hérlendis.

Katia að verða að fellibyl

Hitabeltisstormurinn Katia virðist nú við fellibylsstyrk. Við bregðum upp litskrúðugri mynd (í lágri upplausn og með litakvarða Kanadísku veðurstofunnar) sem var tekin um kl. 23:15 miðvikudaginn 31. ágúst.

w-blogg010908c

Þetta er hitamynd. Grænu svæðin eru hlýjust en þau svörtu köldust. Svarti liturinn táknar meir en 70 stiga frost - enda eru þetta hnýði á gríðarmiklum þrumuflókum. Miðja stormsins er nærri 15 gráðum norðurbreiddar og 43 gráðum vesturlengdar og hann hreyfist til vestnorðvesturs. Auga hefur ekki enn myndast. Þótt Katia eigi eftir að ganga í gegnum ýmsa erfiðleika á sinni leið næstu daga gerir Fellibyljamiðstöðin í Miami samt ráð fyrir því að vindhraði verði kominn í 50 m/s á sunnudag. Við gefum þessu kerfi gaum meðan það er á núverandi braut.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 159
  • Sl. viku: 1752
  • Frá upphafi: 2348630

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1533
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband