7.5.2011 | 01:05
Hiti á garðpöllum - hvað er verið að mæla?
Hitamælingar eru víða stundaðar á húsveggjum, í görðum eða á bílum. Það er ýmislegt sem veldur því að þær eru stundum í litlu samræmi við mælingar Veðurstofunnar. Ef fólk mælir hita við hús með gamaldags kvikasilfursmæli er best að koma honum fyrir á norðurvegg - til að hægt sé að lesa af honum inni í húsinu er best að hann sé þar sem inniloft - t.d. úr opnum gluggum kemur lítið við sögu. Við glugga er því best að mælirinn sé sem fjærst frá opnanlegu fagi.
Sé stafrænn mælir notaður er sömuleiðis best að hann sé norðan í móti, snerti ekki húsvegg og helst ætti hann að vera inní í hvítum hólki sem þó er opinn í báða enda. Stundi menn reglulegan samanburð við mælingar Veðurstofunnar lærist fljótt að leiðrétta fyrir þeim óæskilegu áhrifum sem heimamælir verður fyrir.
Haf verður í huga að tilgangur veðurfræðilegra hitamælinga er sá að mæla lofthita, en ekki sá að mæla hita á hitamælinum einum og sér. Mælingar eru tryggastar ef varmaskipti milli mælis og umhverfis hans gerast ekki öðru vísi en við snertingu lofts og yfirborðs mælisins.
Helstu svör við spurningunni í titli pistilsins má finna í mun ítarlegri texta í pdf-viðhengi sem flestir ættu að geta opnað. Hann er dreginn út úr veðurskrifalager mínum sem liggur undir skemmdum. Vonandi er óbragðið ekki yfirþyrmandi.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:09 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 58
- Sl. sólarhring: 199
- Sl. viku: 1107
- Frá upphafi: 2456043
Annað
- Innlit í dag: 55
- Innlit sl. viku: 1005
- Gestir í dag: 54
- IP-tölur í dag: 54
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Sæll og þakka þér fyrir greinargóð svör að venju. Nú færi ég mælinn.
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 7.5.2011 kl. 10:01
Hitamælirinn í bílnum mínum (VW Passat) virðist réttur, miðað við hitamælingar veðurstöðvanna.
Gunnar Th. Gunnarsson, 7.5.2011 kl. 12:27
Eg er með stafrænan mæli í ca tveggja metra hæð á norðurvegg á garðskúr (úr timbri) hér á Brekkunni á Akureyri. Hann er mjög sjálfstæður. Vandinn er sá að eg veit ekki að hvaða leyti sjálfstæði hans stafar af ófullkomnum aðstæðum og hvað af því að við erum staddir annarsstaðar í bænum en mælirinn hjá laganna vörðum í Þórunnarstrætinu. Hjá mér verður oftast mun hlýrra um hádaginn og kaldara á nóttunni; sumrin eru hlýrri en veturnir kaldari en hjá löggunum. Við erum einhverjum 50 metrum hærri, aðeins fjær hafinu og í meira skjóli. Svo hvað á maður að halda?
Áskell Örn Kárason (IP-tala skráð) 7.5.2011 kl. 22:39
Á Akureyri eru líka mælar í Þórunnarstræti og á flugvellinum að ógleymdum mælinum á Ráðhústorginu sem síðast sem ég vissi mældi yfir tuttugu stig dag hvern á sumrin og voru Akureyringar afar stoltir af honum!
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2011 kl. 22:46
Krossanesi eða eitthvað ætlaði ég að segja.
Sigurður Þór Guðjónsson, 7.5.2011 kl. 22:49
Nú þekki ég ekki aðstæður í garði þínum Áskell, en það er almenn regla að óvarðir mælar sýni stærri dægur- og árstíðasveiflu heldur en mælar í stöðluðum skýlum. Mælir þinn getur þess vegna verið alveg réttur - mér þætti hins vegar líklegt að sveiflur hans myndu minnka ef hann (sami mælir) væri settur í skýli. Veðurstofan reynir að ná dæmigerðum hita á Akureyri - en það væri ákaflega óheppilegt ef sú mæling færi fram á hlýjasta (eða kaldasta) staðnum í bænum. Nú mælir Veðurstofan líka við Krossanesbrautina og þar er kaldara á sumrin en hlýrra á vetrum heldur en hjá lögreglunni. Fyrir árið í heild er munurinn ekki nema 0,1 stig - lögreglustöðin hlýrri. Það væri kannski ástæða til að fjalla um kerfisbundinn mun staðanna hér á hungurdiskum? Gunnar: Fyrir nokkrum árum skrifaði ég pistil um bílahitamælingar á vef Veðurstofunnar - tengillinn er á hann.
Trausti Jónsson, 8.5.2011 kl. 01:36
Takk fyrir fróðlegan tengilinn, Trausti. Allt lógískt og rétt. Hef einmitt tekið eftir því að þegar bíllinn hefur legið í stæði í dálítinn tíma, þá sýnir hann of hátt þegar sólin skín, en svo lagast það eftir nokkrar mínútur í akstri.
Gunnar Th. Gunnarsson, 8.5.2011 kl. 04:56
Fyrirtak þetta - eins og annað sem framreitt er á hungurdiskum. Gaman líka að þessum bílapælingum sem koma vel heim og saman við mína reynslu. Oft er gaman að fylgjast með sveiflum á langferðum og þá ekki síst þegar hitinn er mjög lagskiptur. Eg man a.m.k. eftir því að hafa mælt 1°c í Blönduhlíðinni, en svo ein 7-8 stig á Öxnadalsheiðinni. Svonalagað hefur mikið afþreyingargildi á löngnum og (annars) tilbreytingarlitlum ferðalögum!
Áskell Örn Kárason (IP-tala skráð) 9.5.2011 kl. 22:15
Þakka hrósið Áskell.
Trausti Jónsson, 10.5.2011 kl. 01:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.