21.12.2010 | 01:12
Hiti nærri sólstöðum
Á tímabilinu 1971 til 2000 vildi svo til að 18. desember var með lægsta meðalhita af öllum dögum ársins i Reykjavík.
Myndin sýnir meðalhita hvers dags frá 15. nóvember til 15. apríl á umræddu árabili. Fyrri helming desember hrapar hiti mikið og eftir 1. apríl hækkar hann hratt. Á milli þessara dagsetninga breytist hiti óreglulega. 26. til 27. janúar voru ámóta kaldir og 18. og 22. desember.
Raunverulega er það eitt af einkennum íslensks veðurlags hvað vetrarhitinn er flatur. Köldustu dagar ársins geta komið hvenær sem er. Það sem beinlínis réð metinu á þessu tímabili er kuldinn í desember 1973 og nokkrir mjög kaldir dagar í sama mánuði 1977 sem slatti af hlýjum dögum annarra desembermánaða ráða ekki við.
Sé litið á lengra tímabil eru síðustu dagar janúarmánaðar oftast kaldastir hér á landi, en á hafístímabilum getur mars jafnvel stolið köldustu dögunum, þannig var 8. mars að meðaltali kaldastur í Stykkishólmi á árunum 1859 til 1892. Á hlýju árunum 1931 til 1942 voru köldustu dagar ársins í febrúarlok. Því ollu miklir kuldar í lok febrúar 1935 og 1941.
Við gefum þessum málum e.t.v meiri gaum þegar á veturinn líður. Við vitum ekki enn hversu hlýr eða kaldur hann verður.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:21 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 20
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 985
- Frá upphafi: 2420869
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 864
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Takk fyrir þessar fróðlegu upplýsingar, Trausti. Maður verður seint þreyttur á veðurfræðum.
Eiður Svanberg Guðnason, 21.12.2010 kl. 06:22
Mjög skemmtilegt að skoða þetta. Takk
Gunnar Th. Gunnarsson, 21.12.2010 kl. 11:08
Takk fyrir Trausti.
Ég bý nú á Suður Spáni en skoða þessa statistik þina af miklum áhuga nú þegar ég sit hérna heima hjá mér í íslensku lopapeysunni !
Gunnlaugur I., 21.12.2010 kl. 20:44
Varðandi tímasetningar í árstíðasveiflu hita þá má minna á grein sem Trausti er meðhöfundur að Analysis of a smooth seasonal cycle with daily resolution and degree day maps for Iceland sem birtist í Meteorolog. Zeitschrift árið 2007. Þar er reiknaður þjáll hitaferill fyrir sérhvern punkt á 1km x 1km neti á landinu, byggt á gögnum frá 1961 - 1990. Greinina má finna á http://brunnur.vedur.is/pub/halldor/MetZeit6.pdf. Af því að þarna er um þjálann hitaferil að ræða hverfa einstakir atburðir og engar hátíðnisveiflur sjást. Lykilmyndir fyrir tímasetningu kaldasta og hlýjasta tíma ársins má finna í myndum 12 og 13 í greininni.
Fyrir sumarmánuðina er víðast á landinu hlýjast nærri degi nr 200 (um 19.júlí), þó þessari dagsetningu kunni að seinka um 1 - 3 vikur við ströndina. Veturinn er flóknari, þar er á stöku stað kaldast nærri vetrarsólstöðum, en víðast er þó kaldast í janúar. Á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands (auk hálendisins, en þar eru niðurstöður óáreiðanlegri) var hinsvegar kaldast í mars (!). - En eins og segir hér að ofan þá var þetta byggt á 1961 - 1990 gögnum og þau eru nokkuð lituð af hafísárunum. Það er ekki víst að mars lágmarkið verði greinanlegt í 1990 - 2020 gögnunum.
Halldór Björnsson (IP-tala skráð) 27.12.2010 kl. 11:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.