19.12.2010 | 01:15
Ferskvatnsbúskapur í Norður-íshafi
Í fyrirsögninni er hugtakið Norður-íshaf notað í þeirri þrengri merkingu sem algengust er á síðari árum, þ.e. það hafsvæði sem liggur norðan Framsunds milli Norður-Grænlands og Svalbarða og sömuleiðis norðan Beringssunds.
Þegar sjór frýs vex selta efstu laga sjávar vegna saltskiljunar. Brimsaltur pækill rennur hægt og bítandi niður úr ísnum vegna þess að dropar hans hafa mun lægra bræðslumark heldur en ferskur ís. Ísinn verður þannig smám saman seltuminni heldur en hafið sem hann fraus á.
Bræðsla íss og snævar dregur hins vegar úr seltu efstu laga sjávar. Ferskvatn er léttara heldur en sjór. Ísmyndun og ísbráðnun geta hvort um sig leitt til breytinga á lóðréttu jafnvægi (floti og stöðugleika) sjávar og þar með eftir atvikum aukið djúpsjávarmyndun eða dregið úr henni.
Ísmyndun dregur úr stöðugleika, en ísbráðnun eykur hann.
Ferskvatnsbúskapur Norður-íshafsins er flókinn og ekki auðvelt að gera hann upp á fullnægjandi hátt. Úrkomumælingar eru erfiðar á svæðinu og sama má segja um rennslismælingar í þeim fljótum sem í það falla, þau eru stór og ísi hulin stóran hluta ársins. Hér má einnig vara sig á hugtakanotkun því þegar talað er um ferskvatnsbirgðir er það vatn sem felst í blöndu ferskvatns og selturíkari sjávar einnig talið með. Ekki er óvenjulegt (sjá greinina sem vitnað er í hér í lokin) að miðað sé við að skilgreina sjó með seltustigið 34,8 seltueiningar (p.s.u) sem grundvöll frávika. Sjór sem er seltuminni en þetta er þá talinn innihalda birgðir ferskvatns. Sumir munu þó miða við saltara vatn en þetta og teljast ferskvatnsbirgðirnar því meiri sem mismuninum nemur.
Ferskvatn (skilgreint á þennan hátt) í Norður-íshafi er þrenns konar: (i) Úrkoma sem fellur á hafið og vatnasvið þess þynnir saltan sjó niður fyrir 34,8 seltueiningar. (ii) Sjór með minni seltu en 34,8 og berst inn um Beringsstund og úr nyrsta hluta norska strandstraumsins. (iii) Ís (eða bráðinn ís) sem orðinn er til við saltskiljum þegar hafís myndast. Saltskiljunin hafur lúmsk áhrif á heildarbúskapinn því í fljótu bragði virðist ferlið aðeins búa til ferskvatn inni á svæðinu sem síðan blandast aftur sjónum sem fyrir er. En í raun stelur hafísinn sem myndast ferskvatni úr kerfinu með því að gera það auðflytjanlegra suður á bóginn. Með þessu móti verður birgðajafnvægið ekki það sama og ef skiljunarinnar nyti ekki við. Þess má líka geta að nokkuð af saltari sjó berst inn um Framsund við botn þess og hefur áhrif á búskapinn.
Nú er talið að ferskvatnsbirgðir Norður-íshafsins (skilgreindar á þennan sérstaka hátt) séu um 84 þúsund rúmkílómetrar. Þar af eru um 10 þúsund rúmkílómetrar af hafís (sjá enn greinina sem vitnað er í). Til langs tíma er hægt að tala um jafnvægisástand. Íshafið getur ekki orðið alveg ferskt, né heldur hefur yfirborð þess allt náð viðmiðunarseltunni.
Heildarársvelta þeirra liða sem taldir voru hér að ofan er ekki fjarri tíunda hluta birgðanna. Meðaldvalartími ferskvatnsins í Norður-íshafi er því um 10 ár, en einnig má benda á að birgðirnar samsvara um 30 ára útflutningi íss um Framsundið. Höfum í huga að hér er um grófar tölur að ræða. Mælingar hafa staðið það stutt og óvissa þeirra það mikil að áreiðanlegt mat á jafnvæginu og einstökum búskaparþáttum er ekki fyrir hendi. Vitað er að náttúrulegar sveiflur geta verið nokkuð stóar, t.d. í flæði íss og ferskvatns um Framsundið.
Breytingar á ferskvatnsveltu í norðurhöfum geta haft afgerandi áhrif á hafís, myndun hans sem og lóðréttan stöðugleika sjávar (flothringrásina). Þessi áhrif eru gagnverkandi og mjög erfið til framreiknings. Engan veginn er ljóst hvaða áhrif breytt árstíðasveifla hafíshulunnar á norðurslóðum hefði á hringrás lofts, sjávar og ferskvatns. ´
Ég mæli með yfirlitsgreininni, en hún er eftir marga helstu sérfræðinga á þessu sviði:
Serreze M. C., A. P. Barrett, A. G. Slater, R. A. Woodgate, K. Aagaard, R. B. Lammers, M. Steele, R. Moritz, M. Meredith and C. M. Lee 2006. The large-scale freshwater cycle of the Arctic. Journal of. Geophysical Research. 111(C11010), doi:10.1029/2005JC003424.Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.3.): 209
- Sl. sólarhring: 388
- Sl. viku: 2168
- Frá upphafi: 2450610
Annað
- Innlit í dag: 195
- Innlit sl. viku: 1942
- Gestir í dag: 191
- IP-tölur í dag: 190
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.