Hæstu desemberhámörk á öllum veðurstöðvum

Þetta er nú að verða dálítið staglkennt, en við skulum samt hella okkur út í hæstu desemberhámörkin á öllum stöðvum. Nú hefur vetrarhiti ríkt í nokkra daga og það sem af er mánuðinum er hiti langt undir meðallagi. Á fimmtudaginn (þ.9.) á að hlýna, þykktin fer yfir 540 dekametra eða meira og verður á þeim slóðum í að minnsta kosti fáeina daga. Vel má vera að staðbundin hitamet falli á nokkrum stöðvum - sérstaklega þeim sem hófu athuganir eftir hitabylgjuna 13. og 14. desember 2001 - sú bylgja er varla innan seilingar nú - en sjáum þó til.

Mjög hlýtt varð einnig dagana 11. til 13. í fyrra og 21. til 22. desember 2006. Margar stöðvar eiga met sem sett voru fyrir 13 árum, 1997. Reykjavík er þar á meðal. Hæsti hiti í Reykjavík í desember er 12,0 stig, mældist þann 14. desember 1997. Á sjálfvirku stöðinni eru 11,4 stig bókuð bæði þann 14. og 15.

Af eldri metagæfum dagsetningum má nefna t.d. 2. desember 1941 og 2. desember 1958. Listanum í viðhenginu er enn raðað í þá sérviskulegu röð sem notuð hefur verið á þessum vettvangi: Fyrstar eru sjálfvirkar veðurstöðvar Veðurstofunnar og samstarfsaðila, síðan koma stöðvar Vegagerðarinnar, þar neðan við eru mannaðar stöðvar 1961 til 2009 og loks þær mönnuðu 1924 til 1960. Þeir sem vilja geta auðvitað afritað listann, límt hann inn í excel eða annan töflureikni og raðað að eigin vild.

Af listunum má sjá að mjög erfitt virðist vera fyrir hitann að komast upp fyrir 13 stig um landið sunnan- og vestanvert. Á þessum tíma árs er langt í 13 stiga heitan sjó og ekki hjálpar sólin neitt. Hlýtt loft af suðrænum uppruna er því mjög stöðugt þegar hingað er komið og það þarf bæði fjöll og hvassan vind til að ná hlýju lofti að ofan niður til yfirborðs. Annars er vel hægt að hugsa sér skilyrði þegar hiti færi í 15 stig í desember hér í Reykjavík og þau eiga eftir að koma, en það verður alveg sérstakur og vandaður hittingur (eins og nú er sagt).

Sé farið í saumana á listunum má finna sitthvað óvenjulegt. Til dæmis eru fjögur góð hitamet í listanum sem sett voru 2. desember 1973, mest og best 15,7 stig vestur á Galtarvita. Þessi mánuður er annars frægur fyrir feiknakulda og er langkaldasti desember á þeim sama stað, Galtarvita, allan tímann sem þar var mælt (1953-1994).

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 261
  • Sl. sólarhring: 336
  • Sl. viku: 1347
  • Frá upphafi: 2352306

Annað

  • Innlit í dag: 226
  • Innlit sl. viku: 1212
  • Gestir í dag: 215
  • IP-tölur í dag: 215

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband