20.11.2010 | 01:42
Meiri landafræði - árstíðasveifla hita á norður- og suðurhveli
Í pistlinum á undan þessum fjallaði ég um það hvernig ársmeðalhiti á norðurhveli er háður breiddarstigi. Lítum nú á meðalárstíðasveiflu hitans á hvoru hveli jarðar fyrir sig sem og jarðarinnar í heild.
Hér má sjá að mikill munur er á stærð sveiflunnar á hvelunum tveimur. Á norðurhveli (blár ferill) er hún 13,1°C (ekki ósvipuð þvi sem gerist hér á landi) en á suðurhveli aðeins 5,7°C (rauður ferill). Þetta stafar af því að haf þekur mun stærri hluta suðurhvels og þar er því meira úthafsloftslag. Norðurhvelið er líka að meðaltali lítið eitt hlýrra en suðurhvelið, 14,6°C á móti 13,4°C. Heildarmeðaltalið er um 14,0. Þessi tala er lítilsháttar breytileg eftir heimildum, hér er miðað við grein Hulme og Jones (1999).
Vegna þess að sól er á lofti allan sólarhringinn á heimskautasvæðunum á sumrin er inngeislun þar meiri en á sama tíma við miðbaug. Í desember, þegar sumar er á suðurpólnum, er meðalinngeislun þar 9,4 kWst á fermetra á dag, meðalgildi við miðbaug er 7,9 kWst á fermetra á dag, en 8,9 í júní á norðurpólnum. Mismunurinn á hásumargildum á pólunum (0,5) stafar af því að sól er fjær jörðu á norðurhvelssumrum en á vetrum.
Möndulhalli jarðar er aðalástæða árstíðaskiptanna, en ef hann væri enginn væri samt lítilsháttar árstíðasveifla til staðar á Íslandi og þá líklega hlýjast í janúar eða snemma í febrúar, en kaldast í júlí. Þetta getum við kallað litlu árstíðasveifluna. Fyrir um 9 þúsund árum féllu hámörk litlu- og stóru sveiflunnar saman hér á norðurslóðum enda voru sumur þá nokkru hlýrri en nú er um meginhluta norðurhvels.
Nú er sólnánd í byrjun janúar, næst þ. 3. en hnikast aðeins til frá ári til árs vegna hlaupárakerfisins. Í færslu sinni fyrir 31. desember 1791 setur Magnús Ketilsson sýslumaður og veðuráhugamaður í Búðardal á Skarðsströnd orðið perihelíum, sólnánd, í athugasemd með veðurfærslu. Sólnándin hefur færst um 3 daga í átt til vors á þessum 200 árum sem liðin eru síðan. Þetta heldur síðan áfram hægt og bítandi veturinn á enda og fram á sumar.
Við vetrarsólhvörf er meðalinngeislun mest nærri syðri hvarfbaug, en lágmarkið er í heimskautamyrkri norðurslóða, stuttbylgjuinngeislun er þar þá engin. Í júní og júlí bregður svo við að mjög lítill munur er á inngeislun allt frá nyrðri hvarfbaug til norðurskauts, svipað á við á sumrin (des. til feb.) á suðurhveli.
Mjög hlýtt er langt norður eftir meginlöndunum á sumrin eins og geislunin bendir til en endurskin veldur þó því að hún nýtist ekki sem skyldi, sérstaklega fyrir sólhvörf þegar enn liggur mikill snjór á láglendi.
Á vetrum norðurhvels þekur snjór stór svæði á meginlöndunum, en hafís breiðir úr sér á vetrum suðurhvels. Suðurskautslandið er jökli hulið og endurskin þar því mjög mikið og inngeislunarhámarkið nýtist mjög illa. Hafís helst í kringum norðurskautið á sumrin og eykur hann og ekki síður skýjahulan (þokan) yfir honum mjög endurskin norðurslóða á sumrin.
Ef þurrt og snjólaust láglendi (eyðimörk) væri við norðurskautið væri sumarhiti þar 20 til 35 stig. Slíkt ástand næði að breyta hringrás mun meira en núverandi árstíðasveifla hita í íshafinu gerir. Inngeislun getur haldið uppi hita að allmiklu leyti stuttan tíma á sumrin, enda hlýnar á norðurslóðum þrátt fyrir að afköst varmaflutnings að sunnan minnki. Á vetrum norðurhvels er geislunarjöfnuður hins vegar neikvæður allt suður á 10°N. Í janúar getur snjóað á meginlöndunum suður undir hitabelti.
Afkastaþörf veðurkerfanna er minni á sumrin en á vetrum. En tökum eftir því að þótt afköst kerfisins aukist á vetrum, veður séu harðari og breytingar frá degi til dags meiri vantar samt upp á að þau aukist nóg. Það kólnar því svo um munar á haustin og veðrakerfin hafa ekki undan við að halda uppi hita á norðurslóðum þrátt fyrir aukna virkni.
Heimild (opin í landsaðgangi):
Representing twentieth-century space-time climate variability. Part I: Development of a 1961-90 mean monthly terrestrial climatology. Hulme M, Jones P JOURNAL OF CLIMATE 12 s 829-856
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 840
- Sl. sólarhring: 896
- Sl. viku: 2635
- Frá upphafi: 2413655
Annað
- Innlit í dag: 786
- Innlit sl. viku: 2386
- Gestir í dag: 763
- IP-tölur í dag: 746
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.