Stađan í 12-, 60- og 360 mánađa hitameđaltölum

Eftir óvenju hlýtt sumar, hlýtt ár og hlýjan áratug vakna spurningar um hver stađan er eiginlega í langtímameđaltölum. Sumariđ varđ ţađ hlýjasta sem vitađ er um sumstađar á landinu en látum vera ađ fjalla um ţađ fyrr en uppgjör Veđurstofunnar er komiđ - vonandi 1. október.

Hlýindin síđustu 15 árin eru orđin mjög óvenjuleg ţegar til lengri tíma er litiđ, sérstaklega um landiđ sunnan- og vestanvert. Met hafa veriđ slegin í Stykkishólmi fyrir ársmeđalhita, 5 ára međalhita og 10 ára međalhita. Enn vantar ţó upp á ađ 30-ára hlýindamet áranna 1961-1990 sé slegiđ. Nćstu 3 ár detta árin 1981 til 1983 út úr međaltalinu. Ţau voru mjög köld ţannig ađ ef hiti helst svipađur og síđustu 10 árin verđur metiđ innan seilingar. Ţađ er hins vegar međ ólíkindum ef hlýindin haldast óslitiđ áfram árin 2011 til 2013.

Í Stykkishólmi stendur 12-mánađa keđjuhiti (međaltal október 2009 til og međ september 2010) nú í 5,34 stigum. Hann hefur veriđ á uppleiđ og hefur ekki veriđ jafn hár síđan í janúar til desember 2003. Hćsti 12-mánađa hiti sem hefur mćlst í Stykkishólmi er 5,88 stig, í september 2002 til og međ ágúst 2003. Vantar talsvert upp á ađ ţađ náist á nćstunni. Ađ vísu var október kaldur í fyrra ţannig ađ möguleikar eru í stöđunni.

Lítum á síđustu 60 mánuđi eđa fimm ár (október 2005 til september 2010). Međalhiti ţess tímabils er 4,80 stig. Ţađ nálgast ţađ hćsta sem hefur orđiđ, 4,89. Ţađ var mjög nýlega, á tímabilinu september 2002 til ágúst 2007. Ţađ eldra 5-ára tímabil sem nćst gengur okkar tölu er 4,62 stig á tímabilinu frá júní 1937 til og međ maí 1942.

Síđustu 10 árin (október 2000 til september 2010) eru líka ţau hlýjustu sem vitađ er um í Stykkishólmi (4,73 stig). Af eldri međaltölum er tímabiliđ febrúar 1932 til og međ janúar 1942 ţađ hćsta, 4,45 stig.

En ţó hlýindin núna séu orđin langvinn hafa ţau ţó ekki stađiđ nema í 15 ár eđa svo. Síđustu 30 árin standa nú í nákvćmlega 4 stigum (4,00). Hćsti ţrjátíu ára hiti (360 mánuđir) var frá og međ mars 1931 til og međ febrúar 1961 (4,20 stig). Ţađ tók mörg mjög köld ár ađ koma honum niđur fyrir 4 stig. Ţađ tókst í maí 1969. Ţrjátíu ára hitinn fór fyrst upp í 4,0 stig í janúar 1948, ţegar janúar 1918 datt út úr međaltalinu.

Ţađ er eftirtektarvert ađ ţađ tímabil sem notađ var til samanburđar er nánast nákvćmlega ţađ ţrjátíu ára tímabil sem hlýjast var á landinu. Ekki skeikađi nema 2 mánuđum.

Á árunum 1961 til 1990 sem nú eru notuđ til vikareikninga var međalhitinn í Stykkishólmi 3,51 stig. Kaldasta ţrjátíu ára tímabil á síđari hluta 20. aldar stóđ frá nóvember 1965 til og međ október 1995, međalhitinn ţá var 3,44 stig. Ekki munar miklu á ţessu og međalhitanum 1961-1990 (3,51 stig). Hvađ á ţađ ađ ţýđa ađ velja svona tímabil? Reyndar var heimurinn í ţeirri góđu trú fram undir 1940 ađ 30 ára tímabil vćru nógu löng til ađ negla niđur međaltöl, en ţađ reyndist misskilningur.

Međalhiti í Stykkishólmi á 30 ára tímabilinu 1901 til 1930 var 3,3 stig og 2,98 á tímabilinu 1870 til 1900.

Október, gjörđu svo vel.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 50
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 541
  • Frá upphafi: 2343303

Annađ

  • Innlit í dag: 46
  • Innlit sl. viku: 492
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband