Sumardagafjöldi 2023

Þá er enn komið að árlegri sumardagatalningu hungurdiska (þó sumarið sé ekki alveg búið). Skilgreiningu á hungurdiskasumardegi má finna í pistli [20.júní 2013] - (nokkuð frjálslegt - ekki satt - enda er þetta bara leikur).

Sumarið var óvenjulega tvískipt. Í Reykjavík voru aðeins 6 sumardagar í júní - en 17 á Akureyri. Síðan skipti um og voru 17 sumardagar í júlí í Reykjavík, en aðeins 8 á Akureyri. Ágúst var jafnari, þá teljum við 16 sumardaga á báðum stöðum.

w-blogg310823b

Heildarfjöldi er 39 í Reykjavík, að meðaltali bætist einn við í september, en hafa flestir orðið 11 í þeim mánuði (1958). Meðaltal síðustu tíu ára er 26. Fjöldinn í ár var því talsvert yfir meðallagi og á þeim 75 árum sem línuritið nær til eru aðeins 6 sumur þegar sumardagarnir hafa verið fleiri en nú, síðast 2019. Flestir voru dagarnir árið 2010, 51 og 50 árið 2012. Enn er tæknilega hugsanlegt að ná þeim tölum - en harla ólíklegt eins og spáin er þessa dagana. Við megum taka eftir því að á árunum 1961 til 1990 voru sumardagarnir að meðaltali 13 á ári í Reykjavík, en 28 á árunum 1991 til 2020. Þetta er mikil breyting og við sem eldri erum tökum harla vel eftir henni.

Ritstjórinn notar sömu skilgreiningu fyrir Akureyri líka. Það er e.t.v. vafasamt, en allt í lagi - hér er aðeins um leik að ræða. Gallinn er helst sá að þar finnst einn „sumardagur“ í desember og einn í mars - heldur vafasamt. En það spillir samt ekki heildartölum að ráði.

w-blogg310823c

Hér tökum við eftir því að ekki er jafn mikill munur á meðaltölunum tveimur og í Reykjavík, fjölgar um níu milli þeirra, úr 36 í 45. Það sem virðist hafa gerst er að rýrum sumrum hefur fækkað, en bestu sumrin eru svipuð, þar til 2021. Það sumar nánast sprengdi kvarðann sem hér er notaður, 80 sumardagar, 16 fleiri en flestir höfðu orðið áður.

Eins og áður sagði eru sumardagar á Akureyri í ár orðnir orðnir 51 þegar þetta er skrifað (31. ágúst), 6 fleiri en að meðaltali 1991 til 2020 og þremur fleiri en að meðaltali síðustu tíu ár. Þrír sumardagar voru í apríl og sjö í maí. Munum líka að að meðaltali eru 5 sumardagar ókomnir á Akureyri 1. september. Því er ekki ótrúlegt að einhverjir bætist við. Flestir urðu sumardagarnir í september á Akureyri árið 1996, 16 talsins - og 14 í september 1958 þegar þeir urðu flestir í Reykjavík. Sumarið á því enn möguleika á að komast upp í topp fimm á Akureyri - rétt eins og í Reykjavík.

Síðan er „sumareinkunn“ hungurdiska - ritstjórinn reiknar hana eftir að Veðurstofan hefur reiknað meðalhita, úrkomusummu og talið úrkomudaga og sólskinsstundir bæði í Reykjavík og á Akureyri. Ekki er fullvíst að hún segi nákvæmlega sömu sögu (en það kemur í ljós).


Alþjóðasumarið 2023

Við lítum hér líka á meðalhita í byggðum landsins mánuðina júní til ágúst 2023, það er sumartímabil Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Veðurstofan telur september hins vegar með sumrinu. Meðalhiti er 10,1 stig. Það er 0,3 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára og 0,4 stigum ofan meðallags 1991 til 2020.

w-blogg310823a

Á línuritinu má sjá meðalhita aftur til 1823, en við tökum lítið mark á fyrstu 50 árunum. Þó er ábyggilega rétt að heldur hlýrra var fyrir 1860 heldur en næstu áratugi þar á eftir. Súlurnar á myndinni sýna hita einstakra alþjóðasumra, en breiðari línur eru 10-ára keðjumeðaltöl. Eftir sumarkuldana á síðari hluta 19. aldar hlýnaði talsvert um 1890 og svo aftur og meira um og eftir 1925. Sumarhlýindi náðu hámarki á fjórða áratugnum en síðan fór kólnandi, sérstaklega kalt var fram yfir 1985, en þá fór að hlýna. Fyrst hægt en síðan meira. Hámarki náðu hlýindin nýju fyrir um 15 árum.

Sumarið nú sker sig ekki sérstaklega úr, það er þó greinilega í hópi hlýrra sumra, ekkert sumar á öllu tímabilinu frá 1954 til 2002 var jafnhlýtt eða hlýrra í byggðum landsins, í nærri því hálfa öld. Við sjáum því ekkert lát á sumarhlýindum - þó ekkert hafi bætt í þau undanfarin 20 ár - þrepið upp úr aldamótum var mjög afgerandi. Þótt slatti af hlýjum sumrum hafi gengið yfir á hlýindaskeiðinu 1933 til 1953 voru köld sumur þá miklu algengari heldur en við höfum séð á þessari öld. Aðeins eitt sumar (2015) má segja að falli í þann flokk.

En september er eftir af hinu formlega veðurstofusumri og sá mánuður hefur alls ekki alltaf verið í takti við hina.


Bloggfærslur 31. ágúst 2023

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg160524a
  • w-blogg160524i
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 80
  • Sl. sólarhring: 96
  • Sl. viku: 1160
  • Frá upphafi: 2354685

Annað

  • Innlit í dag: 73
  • Innlit sl. viku: 1041
  • Gestir í dag: 70
  • IP-tölur í dag: 68

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband