Fyrstu tíu dagar júnímánaðar

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu tíu daga júnímánaðar er 8,3 stig. Það er 0,8 stigum neðan meðallags sömu daga 1991-2020 og -1,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 20. hlýjasta sæti (af 23) á öldinni. Hlýjastir voru þessir dagar 2016, meðalhiti þá 11,5 stig, en kaldastir voru þeir 2011, meðalhiti 6,5 stig - mun lægri en nú. Á langa listanum raðast hitinn í 85. sæti (af 151). Hlýjast var 2016, en kaldast 1885, meðalhiti þá 4,9 stig.

Á Akureyri hefur aftur á móti verið hlýtt, meðalhiti fyrstu tíu dagana er 12,0 stig, +3,2 stigum ofan meðallags 1991-2020 og +2,3 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er fimmtahlýjasta júníbyrjun á Akureyri síðan 1936. Lítillega hlýrra var 1940, 2007, 2013 og 2018.

Þetta er hlýjasta júníbyrjun aldarinnar á Suðausturlandi, og á Austfjörðum og á Austurlandi að Glettingi er hún sú þriðjahlýjasta. Aftur á móti sú 19. hlýjasta við Faxaflóa (5. kaldasta). Jákvætt vik miðað við síðustu tíu ár er mest við Eyjabakka, +4,2 stig, en neikvæðast er það við Miðfitjahól á Skarðsheiði, -1,6 stig.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 27,5 mm, rúmlega tvöföld meðalúrkoma, en hefur um 20 sinnum verið meiri sömu daga. Á Akureyri hefur úrkoman aðeins mælst 0,4 mm. Það er innan við tíundi hluti meðaltals.

Sólskinsstundir í Reykjavík hafa mælst 26,1, 38 færri en að meðaltali. Við vitum um 9 rýrari júníbyrjanir í Reykjavík síðustu 110 árin. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 67,2 og er það í meðallagi.

Loftþrýstingur hefur verið óvenjuhár, júní hefur aðeins 12 sinnum byrjað hærri síðustu 200 ár.

Eitthvað var verið að tala um árshitann til þessa. Gerð var grein fyrir honum í síðasta mánaðaryfirliti Veðurstofunnar (53.hlýjasta sæti af 150 í Reykjavík), á mörkum þess að teljast hlýtt - að þriðjungatali.


Bloggfærslur 11. júní 2023

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 87
  • Sl. viku: 1382
  • Frá upphafi: 2350966

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1198
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband