Sumareinkunn Reykjavíkur og Akureyrar 2022

Ritstjóri hungurdiska hefur nú reiknað „einkunn“ sumarsins 2022 í Reykjavík og á Akureyri. Aðferðin hefur verið skýrð áður (og er auðvitað umdeilanleg). Sumarið nær hér til mánaðanna júní til ágúst - aðferðin gæti gengið fyrir maí líka en varla september. Hæsta mögulega einkunn í þessu kerfi er talan 48 - ekkert sumar hefur náð slíkum hæðum - hvorki í Reykjavík né á Akureyri. Lægsta talan er núll, sumarið 1983 komst nærri henni - einkunn þess sumars var einn. Rétt er að taka fram að einkunnin er háð hverjum stað - hún gefur engan tölulegan samanburð milli stöðva (sem sumardagatalningin sem hér var fjallað um fyrir nokkrum dögum gerir frekar).

w-blogg050922a 

Sumareinkunn Reykjavíkur 2021 er 18. Það er fimm stigum undir meðalagi síðustu 101 árið (meðaltalið er 23), en 10 stigum undir meðallagi aldarinnar til þessa. Súlurnar á myndinni sýna einkunn hvers árs. Tvö sumur síðustu 10 ára voru áberandi lakari en nú, það var 2013 og 2018, staðan 2014, 2020 og í fyrra (2021) er á svipuðu róli og nú. Ágúst gaf flest stig (10 af 16 mögulegum), júnístigin voru 6, en ekki nema 2 í júlí (sama og í júlí 2018).

Það vekur alltaf athygli á sumareinkunnarmyndinni í Reykjavík hversu tímabilaskipting er mikil. Tíuárameðaltal fór lægst niður í 15 stig á árunum 1975 til 1984, en hæst í 32 stig, á árunum 2003 til 2012 - árin 2009 til 2012 skera sig sérstaklega úr fyrir gæði - og 2019 síðan í sama flokki. Meðaltal síðustu tíu ára 26 stig, alveg „á pari“ við fyrra hlýskeið - Hvað síðan verður næstu árin vitum við auðvitað ekki, en 2015, 2016, 2017 og 2019 voru öll í flokki öndvegissumra í Reykjavík.

Ritstjórinn reiknar einnig einkunn á kvarðanum 1 til 10 (eða rúmlega 10 reyndar), sumarið nú fær 4,9 í einkunn á þeim kvarða - kannski er það falleinkunn. Hæsta einkunn fær sumarið 2009, 9,3, en lægst er sumarið 1983 (auðvitað) með 0,9 í einkunn.

w-blogg050922b 

Sumarið einnig til þess að gera dauft fyrir norðan, fær 22 stig (einu undir meðallagi). Þetta eru sérstaklega mikil viðbrigði frá sumrinu í fyrra - en það sumar náði 43 stigum og hefur aldrei náð jafnhátt. Ágúst fékk 10 stig, júní 8 og júlí 4.

Heildaútlit línurits fyrir Akureyri er nokkuð annað en fyrir Reykjavík. Lægsta tíu ára meðaltalið er þannig 19 (1966 til 1975) og það hæsta 29 (2000 til 2009) - munar 10 stigum, en 17 í Reykjavík. Ritstjóri hungurdiska túlkar það svo að meiri þráviðri séu syðra heldur en nyrðra - mánuðirnir „sjálfstæðari“ á Akureyri heldur en í Reykjavík. Þannig eru það 6 sumur í Reykjavík sem ekki ná 10 stigum, en aðeins 1 á Akureyri (1985). Ellefu sumur ná 35 stigum eða meira í Reykjavík - en ekki nema sex á Akureyri. Þetta bendir til þess að mánuðir í Reykjavík „vinni“ fremur sem heild heldur en fyrir norðan. Ekki er þó á þessari hegðan byggjandi við langtímaveðurspár.

Það er nákvæmlega ekkert samband á milli sumareinkunnar nyrðra og syðra. Þó eru fleiri sumur góð á báðum stöðum (samtímis) heldur en vond á báðum. Frábærlega góð á báðum stöðum voru 1931, 1939, 1957, 2004, 2007, 2008 og 2012, en 1959, 1969 og 1992 voru slök á báðum stöðum - 1983 var ekki sérlega gott á Akureyri heldur - á mörkum hins slaka.

Ritstjóri hungurdiska hefur gert tilraunir með aðrar reikniaðferðir. Efnislega verður útkoman nánast sú sama - innbyrðis röð sumra breytist þó auðvitað lítillega. Til dæmis má reyna að bæta vindhraða við. Gallinn er hins vegar sá að vindmæliröð Reykjavíkur er mjög ósamfelld. Mjög mikil breyting varð við mæliskipti í maí árið 2000. En hægt er að nota mælingar síðan þá og gera samanburð á þeim 22 sumrum sem liðin eru síðan. Sé það gert er sumarið nú (í merkingunni júní til ágúst) það fjórðalakasta það sem af er öldinni (á eftir 2013, 2018 og 2001).

Munum að lokum að þetta er bara ábyrgðarlaus leikur - ekki má nota þessar niðurstöður í neinni alvöru.


Bloggfærslur 5. september 2022

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 156
  • Sl. viku: 1088
  • Frá upphafi: 2352047

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 988
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband