Harla óvenjulegt (fari svo sem horfir)

Nú er uppi harla óvenjuleg staða. Gert er ráð fyrir því að fellibylurinn Fiona rekist á austurströnd Kanada aðra nótt (aðfaranótt laugardags 24. september). Það gerist endrum og sinnum að leifar fellibylja komist lítt skaddaðar á svipaðar slóðir, en nú virðist vera um óvenjukröftugt kerfi að ræða. Það er rifjað upp að árslágþrýstimet Kanada sé um 940 hPa - það var sett í janúarmánuði, en flestar spár gera nú ráð fyrir því að það met verði slegið nú - og það af harðara kerfi (krappari lægð en gerist). Ítrustu spár tala um níuhundruðtuttugu og eitthvað hPa - vonandi er þar vel í lagt. 

w-blogg220922a

Myndin sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um sjávarmálsþrýsting og hita í 850 hPa kl.6 á laugardagsmorgun (okkar tími). Fiona á þá að vera skammt undan strönd Nova-Scotia, á norðurleið. Ritstjóri hungurdiska minnist þess ekki að hafa séð svona nokkuð á þessum slóðum áður. Taka má eftir því að austan lægðarinnar er mikill og langur sunnanáttarstrengur sem teygir sig í átt til Íslands. Fellibylurinn missir fljótt fótanna og grynnist ört síðdegis á laugardag og á sunnudag. Hringrásarleifar hans komast því ekki hingað til lands - en „brakið“ gerir það hins vegar að einhverju leyti. 

Við skulum taka eftir tveimur öðrum kerfum á kortinu. Annars vegar er það hitabeltisstormurinn Gaston sem er á sveimi við Asóreyjar. Það er dvergkerfi miðað við Fionu, en veldur samt stormi eða roki á nokkru svæði. Þetta er líka sjaldséð á þessum slóðum. Við suðvesturjaðar kortsins er síðan lægðarkerfi sem talið er líklegt að verði að hitabeltisstormi eða fellibyl upp úr helginni. Þetta kerfi er á sérlega suðlægri braut - ekki langt undan ströndum Suður-Ameríku og er því miklu minna um sig heldur en Fiona. Amerískir veðurtístarar eru þegar komnir í hágír yfir möguleikum kerfisins - þótt örlög þess séu harla óviss.

w-blogg220922b

Þótt Fiona hafi óbein áhrif hér á landi er ekki alveg létt að sýna þau myndrænt. Við gerum þó tilraun til þess. Kortið hér að ofan sýnir sjávarmálsþrýsting á laugardagskvöld (spá evrópureiknimiðstöðvarinnar - heildregnar línur). Litirnir sýna hins vegar svonefndan stöðugleikastuðul. Bleiki liturinn sýnir hvar hann er hár - óvenjuhlýtt loft að sunnan (sem uppstreymi fellibylsins hefur séð um að „búa til“ - með losun dulvarma ryðst yfir kalt loft neðar. Myndin sýnir vel hversu útbreitt þetta loft er - það er komið langt á undan og framúr sjálfum fellibylnum. 

En á kortinu má líka sjá sérlega óstöðugt loft - næst lægðinni við Ísland - þar er lítill fjólublár blettur - alveg á hinum enda stöðugleikarófsins (allir litir eru á kortinu). Þar eru veðrahvörfin lág og kalt loft streymir úr vestri og norðri yfir hlýjan sjó. Loftið er mjög óstöðugt. Kerfin tvö, hryggurinn á undan fellibylnum og kalt lægðardrag rekast saman. Það verður illt veður á Íslandi líka - (en ekkert á við fellibylinn samt). Háloftahlýindin eru óvenjuleg.

w-blogg220922c

Þetta kort sýnir stöðuna í 500 hPa-fletinum við Ísland á laugardagskvöld - spá evrópureiknimiðstöðvarinnar. Jafnhæðarlínur eru heildregnar, vindörvar sýna vindstefnu og styrk, en litir hita. Loftið verður sérlega hlýtt í þessari hæð vegna niðurstreymis austan Grænlands, en það var reyndar orðið hlýtt þegar þangað kom. Ör bendir á -7,5°C. Þetta er nærri meti í september. Austan Vatnajökuls má líka sjá töluna -5,1 (en við sleppum því smáatriði). Tölur eru líka nærri metum í 300 hPa (um 9 km hæð). Höfum í huga að um 2 sólarhringa spá er að ræða - slíkar spár eru ekki alltaf réttar. 

Það er vel þess virði að fylgjast með þessu - og hversu háloftahlýindin verða mikil. Það er líka rétt hugsanlegt að hiti nái býsna hátt á Austurlandi. Hæstu tölur í reiknuðu spánum eru 20-21 stig, en efni er í töluvert hærri tölur - þótt ólíklegar séu. Við þurfum að fá um 24 stig til þess að sérlega óvenjulegt teljist. Rétt er að benda áhugasömum á að Einar Sveinbjörnsson er með heldur aðgengilegri framsetningu á vef sínum blika.is og á fjasbókarsíðu. 

Í viðhenginu (pdf) er skýringartexti - um stöðugleikastuðulskort. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 22. september 2022

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • w-blogg040524c
  • w-blogg040524b
  • w-blogg040524a
  • w-blogg020524b
  • w-blogg020524a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 116
  • Sl. sólarhring: 160
  • Sl. viku: 1132
  • Frá upphafi: 2352007

Annað

  • Innlit í dag: 109
  • Innlit sl. viku: 1029
  • Gestir í dag: 103
  • IP-tölur í dag: 98

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband