Sumardagafjöldi í Reykjavík

Nú lítum við á sumardagafjölda í Reykjavík það sem af er sumri. Vegna tölvuvandræða á Veðurstofu verðum við að láta aðra umfjöllun um uppgjör ágústmánaðar og sumarsins bíða þar til eftir helgina. Skilgreiningu sumardags má finna eldri pistlum.

w-blogg010918a

Myndin sýnir sumardagafjölda hvers árs í Reykjavík frá 1949 til 2018. Það verður að taka fram að að meðaltali eru tveir sumardagar í september - þannig að formlega séð er þetta uppgjör ekki endanlegt. En satt best að segja er útkoman heldur hrakleg miðað við það sem algengast hefur verið á þessari öld. Sumardagar teljast 12 til þessa í sumar, enginn í júní, fjórir í júlí og átta í ágúst. Meðaltal aldarinnar er 34 dagar á ári. Aftur á móti kemur í ljós að meðalsumardagafjöldi á árunum 1961-1990 var ekki nema 13 - þannig að miðað við þá tíma telst núlíðandi sumar í meðallagi. 

Bætist enginn dagur við í september (eða október) er sumardagafjöldinn sá minnsti síðan 1995. 

Vestanáttin hefur verið með stríðara móti í háloftunum í sumar. Við lítum á meðaltöl hennar.

w-blogg010918b

Háloftaathuganir ná reyndar ekki nema aftur til 1949, en við látum endurgreiningar giska á stöðuna áratugina þrjá þar á undan. Kvörðum hefur verið snúið við - þá sjáum við betur samræmi við hina myndina. Súlurnar liggja því neðar á myndinni eftir því sem vestanáttin er meiri. Hún var mest sumarið 1983 - þá voru sumardagar líka fæstir í Reykjavík. Vestanáttin var sterk 1995 - þá voru sumardagar í Reykjavík aðeins 5. Við sjáum líka að vestanáttin var líka fremur sterk bæði sumarið 2013 og í sumar, 2018, en samt ekki mjög langt ofan meðallags 1961-1990. 

Vestanátt háloftanna hefur nefnilega verið alveg sérlega slök hér við land lengst af á þessari öld. Að tengja „óvenjumikla“ vestanátt sumarsins í sumar veðurfarsbreytingum er því harla vafasamt - ef við sjáum yfirhöfuð einhverja hneigð í þessu línuriti er það helst í (sumar-)slaka vestanáttarinnar á undanförnum 15 árum. - En sjálfsagt er málið flóknara en það. 

Mest austanáttarsumra er 1950 - skriðusumarið mikla á Austurlandi. 

Sumardagar á Akureyri eru nú orðnir 38, 8 færri en að meðaltali á öldinni til þessa - en venjulega bætast nokkrir við í september þannig að enn er góður möguleiki á að meðaltali verði náð þar. 


Bloggfærslur 1. september 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Slide11
  • Slide13
  • Slide12
  • Slide10
  • Slide9

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 208
  • Sl. viku: 1413
  • Frá upphafi: 2478756

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1248
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband