Dálítið skrýtin lægð

Lægðin sem hrella á landsmenn um helgina hefur ekki á sér algengasta ættarmót. Ritstjóra hungurdiska er varla ætlandi að gera grein fyrir þeim svip í smáatriðum en við lítum samt á gervinhnattamynd frá því nú í kvöld (föstudag 9. febrúar).

seviri_nat_ir10-8_20180209_2045

Lægðarmiðjan er nú suðsuðvestur af landinu á leið norðaustur. Það vekur athygli að hún kemur ekki á „réttum stað“ inn í heimskautaröstina. Hér er ekkert greinilegt „hlýtt færiband“ - og „þurra rifan“ (heiðhvolfsskotið) er miklu breiðari en vanalega er og undir henni líka fleiri bólstrar en vant er. Ekki alveg venjulegt. 

Eins gott að við höfum tölvuspár til að reikna út hvað gerist - því venjulegar athuganir frá svæðinu eru sárafáar og líklegt að algengustu huglíkön eigi ekki vel við. - Svo virðist að auki - sé að marka reikninga - að lægðin skilji hugsanlega eftir ónotað fóður í aðra lægð sem danskir veðurfræðingar eru að hafa ákveðnar áhyggjur af nú í kvöld. Sú á að lenda á Danmörku á sunnudag - áður en „okkar lægð“ er búin að ljúka sér af hér. Ekki þó víst hvernig það fer - enda „ ... lavtrykkets bane og dybde er stadig noget usikker, da det endnu ikke er dannet“ - svo vitnað sé beint í dönsku veðurstofuna.

„Sögulega séð“ eru lægðir sem koma að landinu sunnanverðu, fylgja síðan útlínum þess fyrst til austurs, en síðan til norðurs og loks til vesturs almennt heldur varasamar og til alls líklegar. Við erum sjálfsagt heppin samt að lægðin „hittir ekki alveg í“ og missir eitthvað af mætti sínum úr fanginu og til Danmerkur (af öllum stöðum). 

En ritstjóri hungurdiska er löngu hættur að stunda veðurspár (opinberlega) og hvetur hann að vanda lesendur til að fylgjast vel með spám og viðvörunum Veðurstofunnar og leiðbeiningum vegagerðar - sérstaklega þá sem hyggja til hreyfings um helgina.


Bloggfærslur 9. febrúar 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 210
  • Sl. sólarhring: 317
  • Sl. viku: 2035
  • Frá upphafi: 2350771

Annað

  • Innlit í dag: 193
  • Innlit sl. viku: 1821
  • Gestir í dag: 188
  • IP-tölur í dag: 188

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband