Kalt sumarmisseri í Reykjavík

Nú þegar aðeins 1 dagur lifir af íslenska sumarmisserinu 2018 er óhætt að líta á hita þess í Reykjavík. Kalt hefur verið miðað við það sem við höfum átt að venjast á þessari öld, fara þarf aftur til 1995 til að finna sama meðalhita og nú og aftur til 1993 til að finna kaldari tíð.

w-blogg261018a

Línuritið sýnir meðalhita sumarmissera (frá fyrsta sumardegi til föstudags fyrir fyrsta vetrardag) í Reykjavík samfellt frá 1921, en fyrir þann tíma vantar oft staka daga inn í hitaröðina - og við sleppum að reikna meðaltöl fyrir þau ár, sjáum þó þau sem eru fyrir hendi. 

Hlýjast var sumarmisserið 2010 og nærri því eins hlýtt var 1941 og 1939. Kaldast var 1979 og litlu hlýrra 1983. 

Hér er rétt að taka fram að í ár var svokallaður sumarauki í tímatalinu (segja sumir að ekki hafi veitt af). Sumaraukasumur eru lítillega verr sett en önnur í keppni um hita - þau eru viku lengri en að jafnaði - og þar með kaldari (ef ekkert annað kæmi til). Sumarauki var líka sumarið 1995 - það sem var álíka kalt og nú - og 1979 reyndar líka. En þessi tölulegu „kæliáhrif“ sumaraukans eru þó ekki mikil (um 0,2 stig). Kannski var sumarið 2013 því jafnkalt og það sem nú er næstum liðið - hefði það fengið á sig sumarauka? - Sumarauki var einnig árið 1939 - kom sumaraukinn í veg fyrir að það yrði það hlýjasta á listanum? - Já, við verðum að vara okkur aðeins á tölunum. 


Bloggfærslur 26. október 2018

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 225
  • Sl. viku: 1923
  • Frá upphafi: 2350792

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1718
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband