Af (met)þurru lofti

Í dag (þriðjudaginn 26. febrúar) var óvenjuþurrt loft yfir landinu vestan- og suðvestanverðu. Á nokkrum sjálfvirkum veðurstöðvum varð rakastig lægra heldur en áður hefur þar mælst í febrúarmánuði. Það gerðist t.d. bæði á stöðvunum á Veðurstofutúni og á Reykjavíkurflugvelli.

Listi yfir nýju metin er í viðhenginu - nördum til fróðleiks. Allra lægst varð rakastigið þó á Þingvöllum þar sem stöðin mældi aðeins 12%. Nokkur óvissa er um kvörðun rakamælanna við svo lágt rakastig - en við skulum láta það eftir okkur í bili að trúa þessari tölu.

Á flestum stöðvanna varð auðvitað einnig metmunur á þurrum hita og daggarmarki. Á ensku heitir þessi munur dew point depression, daggarmarksbæling. Þetta hugtak var (og er e.t.v. enn) helst notað í umfjöllun um háloftaathuganir. Í viðhenginu er líka listi yfir ný bælingarmet. Mestur varð munurinn á Þingvöllum, 27,2 stig. Ný lágmarksdaggarmarksmet (úff) voru hins vegar ekki sett í dag, það er ekki svo kalt í veðri.

Í pistli gærdagsins (sem bæla varð vegna skíthríðar virkra í athugasemdum) var m.a. sagt frá febrúarrakametinu á mönnuðu stöðinni í Reykjavík. Sá bútur er endurtekinn orðréttur hér að neðan.

„Lægsta tala febrúarmánaðar á mönnuðu stöðinni í Reykjavík er 21%, sú lága tala mældist kl. 21 8. febrúar 1958 (já). Lægsta febrúartalan á sjálfvirku stöðinni á Veðurstofutúni er 23% og mældist kl. 2 þann 26. febrúar 2004. Sama dag og á sama tíma mældist lægsta febrúartalan á stöðinni á Reykjavíkurflugvelli, 29%“.

Það láðist að geta þess að árið 1958 var mannaða stöðin á Reykjavíkurflugvelli. Nýju met sjálfvirku Reykjavíkurstöðvanna eru: Veðurstofutún 22%, Reykjavíkurflugvöllur 21% (sjá einnig viðhengið).


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 26. febrúar 2014

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • w-blogg170725
  • w-blogg110725b
  • w-blogg110725a
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 29
  • Sl. sólarhring: 194
  • Sl. viku: 1247
  • Frá upphafi: 2485712

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 1082
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 28

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband