Frostleysulengd á Akureyri

Fyrir nokkrum árum litum við hér á hungurdiskum á lengd þess tíma á ári sem frostlaus er í Reykjavík. Að meðaltali líða um 146 dagar á milli síðasta frosts að vori í Reykjavík og þess fyrsta að hausti. Meðaldagsetning fyrsta frosts á haustin í Reykjavík er 4. október. Þetta er þó mjög breytilegt frá ári til árs. Það hefur frosið í ágúst (1956) og svo hefur það líka dregist fram í miðjan nóvember (2016). Meðaldagsetningin segir því ekki svo mikið. Það er dálítil leitni þegar litið er á síðustu 100 árin, fyrsta frost verður að jafnaði heldur síðar en var áður fyrr á árunum. Þeir sem vilja rifja þennan gamla pistil upp geta flett honum upp í safni hungurdiska (24.október 2019). 

Við lítum nú á frostleysulengd á Akureyri. Í gagnagrunni Veðurstofunnar má fletta upp daglegum hámarks- og lágmarksmælingum á Akureyri aftur til miðs árs 1938. Svo vildi til að á byrjunarárinu fraus óvenjusnemma eða 30.ágúst. Það er þó ekki met því fyrsta dagsetning frosts að hausti á Akureyri á þessu tímabili er 27. ágúst 1974 og sömuleiðis mældist frost þann 28. ágúst árin 1952, 1956 og 1982. Nokkrum sinnum hefur sáralitlu munað að frost mældist á Akureyri fyrr í ágúst. Trúlega hefur þá frosið annars staðar í bænum heldur en á Lögreglustöðinni. 

Það var haustið 2002 sem lengst þurfti að bíða eftir fyrsta frosti á Akureyri, þá kom það ekki fyrr en 18. október og árið 2016 kom það 15. október. 

Á þessum 86 árum mælinga var frostlausa tímabilið lengst árið 1972, 159 dagar. Ekki hefði ritstjórinn giskað á þetta ár, heldur frekar á 2016, þegar frostleysan varði 158 daga. Styst var frostleysan á Akureyri árið 1959, 84 dagar. Meðallengdin er 118 dagar, nærri mánuði styttri heldur en í Reykjavík (146 dagar). 

Lítum nú á nokkuð hlaðna mynd (ofhlaðna).

w-blogg130925-ak-a

Á myndinni eru þrír meginferlar. Tveir þeirra, sá neðsti og efsti eiga við vinstri lóðréttan kvarða. Sá sýnir dag ársins. Neðri ferillinn sýnir síðasta frost vorsins, en sá efri fyrsta frost haustsins. Á milli er grænn ferill sem sýnir lengd frostlausa tímans, vísar hann til lóðrétta kvarðans til hægri á myndinni. 

Til gamans höfum við reiknað leitni ferlanna. Hún heldur því fram að frostlausi tíminn hafi lengst um hálfan mánuð á síðustu 100 árum, um það bil viku á hvora hlið, vor og haust. Ekki gott að segja hvort mark sé á slíku takandi. 

Við getum spurt fleiri spurninga, til dæmis hver er lengsta samfellda hlákan á Akureyri í janúar. Það eru 11 dagar, hefur reyndar gerst fjórum sinnum á þessum 86 árum (1946, 1947, 2001 og 2010). Í febrúar er lengsta samfellda hlákan 12 dagar, það var 2017. Í mars eru það 14 dagar, 1948 og 2003. Í apríl 1974 fraus ekki eftir þann 10. - en aftur á móti komu þrjár frostnætur seint í maí - og aftur fraus í ágúst, eins og nefnt var hér að ofan.   

Í nóvember 2011 var 21 dagur í röð frostlaus á Akureyri og þann 8.desember 2002 endaði 20 daga frostlaust tímabil á Akureyri. Lengsta tímabil inni í desember stóð í 15 daga samfellt árið 1953. 

Látum þetta duga að sinni. 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sjö?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg130925-ak-a
  • w-blogg130925a
  • w-blogg130925b
  • Slide8
  • Slide7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 30
  • Sl. sólarhring: 240
  • Sl. viku: 1505
  • Frá upphafi: 2498025

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 1359
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband