13.8.2025 | 18:02
Enginn friður
Það er lítill friður fyrir ásókn hlýinda. Ritstjóri hungurdiska man varla eftir því áður að hafa jafn ótt og títt þurft að vera á varðbergi gagnvart nýjum hitametum í háloftunum yfir landinu. Hingað stefnir nú mjög hlýtt loft langt úr suðvestri og verður yfir landinu á föstudag og laugardag - hugsanlega lengur.
Kortið sýnir spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um hæð 500 hPa-flatarins, hita og vind í fletinum á fimmtudagskvöld. Yfir Reykjanesi er blettur þar sem hitinn á að vera hærri en -10°C. Það er ekki mjög oft sem svo hlýtt loft heimsækir landið. Reyndar er furðumikill munur á tíðni -11 stiga og -9 stiga. Metið í 500 hPa er -7,6 stig, mjög vafasamt reyndar og sett 23.júlí 1952, en staðan var samt þannig að ritstjórinn treystir sér ekki til að þurrka það út án þess að hafa farið mjög nákvæmlega í saumana á því. Þennan dag fór hiti í Möðrudal í 25,7 stig - ljóst að mjög hlýtt loft var yfir landinu - þótt heldur stæði það stutt við.
Svipað á við um næsthæstu töluna, -8,1 stig sem mældist 12.ágúst rigningasumarið mikla 1983, og er hún ágústmet. Þrjár tölur aðrar eigum við í safninu með hita hærri en -9 stig í 500 hPa. Í águst 2021 - hinum ofurhlýja mánuði - mældist hiti tvisvar -9,0 stig í 500 hPa yfir Keflavíkurflugvelli, þann 15. og 23.
Vísar sem við notum til að giska á hita í mannheimum eru einnig mjög háir á föstudag og laugardag. Þykktinni er spáð yfir 5640 metrum - og er það einnig nærri meti. Í era5 gagnasafninu er 5650 metrar hæsta ágústgildið, kemur fyrir fjóra daga á tímabilinu 1940 til 2022, 1.ágúst 1941, 26.ágúst 1947, 10.ágúst 2004 og 24.ágúst 2021. Hæsta ágústgildið í greiningarsafni reiknimiðstöðvarinnar 2011 til 2024 er 5660 metrar, 24. ágúst 2021.
Keflavíkurflugvöllur er sunnar heldur en viðmiðunarpunktur sá sem notaður er í greiningartöflunum hér að ofan - og þar eru aðeins fleiri gildi yfir 5650 metrum, það hæsta 5676 metrar, sem mældist 9.ágúst 2004.
Í öllum þessum öfgaþykktartilvikum varð mjög hlýtt á landinu. Árið 1941 var hámarkshiti ekki mældur mjög víða, mest fréttist af 23,3 stigum þann 1. á Akureyri, þann 22. ágúst 1947 mældist hiti á Sandi í Aðaldal 27,2 stig.
Hiti á Austurlandi gæti nú hæglega farið yfir 25 stig annan hvorn daginn eða báða - en nær varla ágústlandsmetinu sem er 29,4 stig, sett á Hallormsstað 24.ágúst 2021. Þótt ýmsir hafi viljað efast um þá mælingu hefur ritstjórinn ekki mikið út á hana að setja - hún er alla vega jafngóð eða skárri heldur en margt það sem á metalistum er. Næsthæsta ágústtalan er einnig yfir 29 stig, 29,2 mæld á Egilsstöðum í hitabylgjunni miklu 2004 (11.ágúst). Þannig að alla vega verður við ramman reip að draga nú.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.8.): 284
- Sl. sólarhring: 296
- Sl. viku: 1343
- Frá upphafi: 2490584
Annað
- Innlit í dag: 270
- Innlit sl. viku: 1207
- Gestir í dag: 262
- IP-tölur í dag: 258
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning