Fyrstu tíu dagar júlímánaðar 2025

Hita fyrstu 10 daga júlímánaðar 2025 hefur verið nokkuð misskipt á landinu. Suðvestanlands hefur hann verið í slöku meðallagi, en vel yfir því annars staðar. Í Reykjavík er meðalhitinn 10,6 stig. Það er -0,5 stigum neðan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára og raðast í 17.hlýjasta sæti (af 25) á öldinni. Hlýjastir voru þessir dagar árið 2009, meðalhiti 13,4 stig, en kaldastir voru þeir 2018, meðalhiti þá 9,1 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 83. sæti (af 153). Á þeim lista er 1991 hlýjastur, meðalhiti þá 14,0 stig, en kaldast var 1874, meðalhiti 7,6 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins 12,8 stig, +2,0 stigum ofan meðallags 1991-2020 og +2,8 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Aðeins 8 júlímánuðir síðustu 90 ára hafa byrjað betur á Akureyri, (2 á þessari öld).

Á spásvæðunum hefur verið hlýjast að tiltölu á Austfjörðum, þar er þetta næsthlýjasta júlíbyrjun aldarinnar, en við Faxaflóa sú 15. hlýjasta og sú 14. hlýjasta á Suðurlandi. Viðast fyrir norðan er þetta þriðjahlýjasta júlíbyrjun aldarinnar.

Á einstökum stöðvum er jákvæða vikið (miðað við síðustu tíu ár) mest á Gjögurflugvelli, +3,4 stig (en einhver vandræði hafa verið með mælinn). Vikið er +3,2 stig á Gagnheiði. Kaldast, miðað við síðustu tíu ár, hefur verið í Hellisskarði og á Þingvöllum, hiti -0,7 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 22,6 mm og er það um 30 prósent umfram meðalúrkomu sömu almanaksdaga. Á Akureyri hafa mælst 2,6 mm - um fimmtungur meðalúrkomu. Á Dalatanga hafa aðeins mælst 2,4 mm og er það aðeins 4 prósent meðalúrkomu.

Sólskinsstundir hafa mælst 65 í Reykjavík og er það í meðallagi. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 73,2, 16 fleiri en í meðalári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w_2009-kort-2
  • Slide5
  • Slide4
  • Slide3
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.8.): 3
  • Sl. sólarhring: 166
  • Sl. viku: 769
  • Frá upphafi: 2488097

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 664
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband