Víðáttumikil lægð

Það er ekki óalgengt á vetrum að eitt risastórt lægðasvæði nái yfir allt svæðið sem hið hefðbundna norðuratlantshafsveðurkort nær yfir. Það kemur líka fyrir að sumarlagi, en er samt talsvert sjaldséðara. Þannig er það nú.

w-blogg270625a

Kortið gildir nú í kvöld, föstudaginn 27.júní 2025. Það má með góðum vilja sjá aðra lægðarmiðju, mjög grunna austur af Nýfundnalandi - og svo er sérstök lægð við Norðvestur-Grænland, utan korts, en annars má segja að sama lægðin nái yfir allt svæðið. Lægðin er í kringum 980 hPa í miðju, með lægsta móti á þessum árstíma - en þó ekki nærri meti. Hún hreyfist ákveðið til norðausturs og á annað kvöld að vera komin austur fyrir núlllengdarbauginn. Síðan á að taka við nokkuð óljós staða sem einkennist (að sögn reiknimiðstöðva) af mun grynnri og fyrirferðarminni lægðum. 

Loftþrýstingur hækkar þá nokkuð hér á landi, en í þessum mánuði hefur þrálátur lágþrýstingur verið ríkjandi á landinu - meðaltalið er nú í flokki þeirra 15 lægstu frá upphafi samfelldra þrýstimælinga fyrir meir en 200 árum síðan. Kannski verður spennandi að fylgjast með lokasprettinum - en þar sem þrýstingur á að hækka nokkuð um helgina er ekki alveg ljóst í hvaða sæti mánuðurinn lendir að lokum. 

Eins og áður hefur verið nefnt hér á hungurdiskum er líklegt að júní verði víða um land kaldari heldur en maí - og nú jafnvel á landsvísu. Almennt séð eru líkur á slíkri hegðan mánaðarhitans mun meiri norðaustanlands heldur en á Suðvesturlandi. Við þurfum að leita allt aftur til 1851 til að finna slíkan viðburð í Reykjavík og í Vestmannaeyjum þekkjum við engan. Svo virðist af þeim mælingum sem við eigum að tilvikið árið 1851 hafi átt við nær allt landið - nema hugsanlega Vestmannaeyjar. Þar var meðalhiti júnímánaðar hærri en í maí. Aftur á móti er greinilegt að hásumarhiti í Vestmannaeyjum var illa mældur á þessum tíma - og gæti það verið ástæða þess að júní þar sýnist hlýrri en maí árið 1851.

Svo vildi til nú að þótt methlýtt væri í maí um nær allt land átti það ekki við Vestmannaeyjar, þar var maíhitinn nú í „aðeins“ fimmtahlýjasta sæti (af 149), 7,9 stig. Meðalhiti fyrstu 26 daga júnímánaðar á Stórhöfða er 8,1 stig - ólíklegt er að hann lækki næstu daga - tækifæri til afbrigðis fer því hjá Vestmannaeyjum að þessu sinni, en mikill möguleiki er enn fyrir hendi í Reykjavík. Þegar fjórir dagar lifa af júní er meðalhiti mánaðarins í Reykjavík 8,4 stig. Sýnist að meðalhiti fjögurra síðustu dagana verði að vera 12,8 stig til að mánuðurinn í heild nái þeim 9,0 stigum sem maí endaði í. Slíkt virðist nú vonlítið. 

Í dag, 27.júní er svonefndur sjösöfendadagur. Ef rigndi þann dag mátti búast við rigningum í sjö vikur (getið í Þjóðsögum Jóns Árnasonar). Þessi trú er, eins og mörg önnur, innflutt vara. Engin ástæða samt til að fella þennan dag úr Almanaki Háskólans eins og gert hefur verið. 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og tveimur?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg270625a
  • Slide11
  • Slide13
  • Slide12
  • Slide10

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 59
  • Sl. sólarhring: 359
  • Sl. viku: 1562
  • Frá upphafi: 2479124

Annað

  • Innlit í dag: 55
  • Innlit sl. viku: 1375
  • Gestir í dag: 55
  • IP-tölur í dag: 55

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband