Fyrstu tíu dagar júnímánaðar 2025

Júní byrjar heldur kuldalega. Meðalhiti fyrstu tíu daga hans er 6,1 stig í Reykjavík, -3,0 stigum neðan meðallags sömu daga árin 1991 til 2020 og -2,7 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er kaldasta júníbyrjun aldarinnar (af 25). Hlýjust var júníbyrjun árið 2016, en þá var meðalhitinn 11,5 stig. En það þarf að leita lengra aftur til að finna kaldari daga í Reykjavík, eða allt aftur til júní árið 1907, þá var meðalhiti sömu daga 5,9 stig, 5,4 stig áið 1890 og 4,9 stig árið 1885. Þetta er því kaldasta júníbyrjun í Reykjavík í 118 ár. Þrátt fyrir þetta hefur kuldi einstakra daga ekki verið nærri neinum kuldametum.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins 4,9 stig og er það -3,9 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 og -4,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Ekki þarf að fara lengra en til sömu daga í fyrra til að finna jafnlága tölu, en til að finna lægri þarf að fara aftur til 1981, 44 ár. Við eigum samanburð á Akureyri í 90 ár. Í Stykkishólmi förum við aftur til 1997 til að finna kaldari júníbyrjun.
 
Þessi júníbyrjun nú er sú kaldasta á öldinni við Faxaflóa, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Miðhálendinu. Á Suðausturlandi raðast hitinn í 22. sæti (af 25), júní hefur þar þrisvar hafist kaldari á þessari öld.
 
Miðað við síðustu tíu ár er neikvætt hitavik minnst á Vatnsskarðshólum, -0,3 stig, en mest við Upptyppinga, -5,1 stig.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 4,8 mm og er það ríflega þriðjungur meðalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 37,0 mm og er það meir en sexföld meðalúrkoma. Á Dalatanga hafa mælst 88,0 mm og er það meir en tvöfalt meðallag.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 101,6 í Reykjavík, 37,2 umfram meðallag. Sólskinsstundir á Akureyri hafa mælst 25,2, 41 færri en í meðalári.

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og tveimur?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Slide11
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 286
  • Sl. sólarhring: 286
  • Sl. viku: 1602
  • Frá upphafi: 2476200

Annað

  • Innlit í dag: 264
  • Innlit sl. viku: 1428
  • Gestir í dag: 251
  • IP-tölur í dag: 248

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband