Fyrstu 20 dagar aprílmánaðar 2025

Fyrstu 20 dagar aprílmánaðar 2025 hafa verið hlýir. Meðalhiti í Reykjavík er +5,1 stig og er það +1,9 stigum ofan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og +1,4 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Raðast hitinn í fjórðahlýjasta sæti þessara daga á öldinni (af 25). Hlýjastir voru þeir í hitteðfyrra, 2023, meðalhiti þá +6,2 stig, en kaldastir árið 2006, meðalhiti +0,9 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 12. hlýjasta sætið (af 153). Þar er 2023 einnig efst á lista, en kaldast var aftur á móti 1876, meðalhiti þá -3,7 stig, árið 1951 var meðalhitinn -2,1 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti þessa 20 fyrstu daga mánaðarins 4,4 stig, +2,3 stigum ofan meðallags 1991 til 2020, en +1,4 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Apríl hefur tíu sinnum byrjað hlýrri á síðustu 90 árum á Akureyri.
 
Hiti á spásvæðunum raðast í fjórða til sjöunda hlýjasta sæti aldarinnar. Hlýjast að tilölu hefur verið við Faxaflóa, Breiðafjörð, á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Suðausturlandi (4.sæti), en kaldast á Austurlandi að Glettingi og á Austfjörðum (7. hlýjasta sæti, af 25).
 
Á einstökum stöðvum hefur vikið miðað við síðustu tíu ár verið mest á Gjögurflugvelli, +2,6 stig, en minnst í Miðfjarðarnesi, +0,6 stig.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 17,5 mm og er það um 40 prósent meðalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 35,9 mm, hátt í tvöföld meðalúrkoma og á Dalatanga hefur hún mælst 119,2 mm og er það um 70 prósent umfram meðallag.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 128,9 í Reykjavík og er það 24,7 stundum umfram meðallag. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 109,7, 29,5 umfram meðallag.
 
Það vekur athygli ritstjóra hungurdiska að hiti það sem af er ári í Reykjavík er í fjórðahæsta sæti síðustu 77 ára, en í því tíundahlýjasta á Akureyri.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg120525a
  • w-blogg080525a
  • w-blogg070525b
  • w-blogg070525a
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 240
  • Sl. sólarhring: 444
  • Sl. viku: 1813
  • Frá upphafi: 2466373

Annað

  • Innlit í dag: 229
  • Innlit sl. viku: 1669
  • Gestir í dag: 226
  • IP-tölur í dag: 224

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband