Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar 2024

Kuldinn síðustu daga hefur auðvitað haft töluverð áhrif á meðalhita fyrstu 20 daga nóvembermánaðar (2024). Hann stendur nú í +4,0 stigum í Reykjavík, +1,5 stigi ofan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og +0,6 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Raðast hitinn nú í 8. hlýjasta sæti aldarinnar (af 24). Hlýjastir voru sömu dagar árið 2011, meðalhiti þá 6,7 stig, en kaldastir voru þeir 2017, meðalhiti +0,8 stig. Á langa listanum er hitinn nú í 24. hlýjasta sæti (af 151). Hlýjast var 1945, meðalhiti þá +8,0 stig, en kaldast var 1880, meðalhiti - 2,9 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 20 daga nóvembermánaðar nú 3,7 stig, +2,7 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og +2,0 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára, í 11. hlýjasta sæti síðustu 89 ára.
 
Að tiltölu hefur verið svalast á Suðausturlandi. Þar raðast hitinn í 10.hlýjasta sæti aldarinnar, en hlýjast hefur verið á Austurlandi að Glettingi, þar situr hitinn enn í þriðjahlýjasta sæti aldarinnar - en hrapar væntanlega mjög í sætum talið næstu daga.
 
Miðað við síðustu tíu ár hefur verið hlýjast á Sauðárkróki, hiti þar +2,8 stig umfram meðallag, en kaldast hefur verið í Surtsey, hiti -0,3 stig neðan meðallags.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 75,5 mm og er það um 20 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 51,8 mm eða 15 prósent umfram meðallag. Á Dalatanga hefur hún mælst 93,6 mm og er það um 70 prósent meðallags.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 33,4 í Reykjavík og er það nærri meðallagi. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 18,9 og er það tæpum 6 stundum umfram meðallag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg230325a
  • Slide15
  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 105
  • Sl. viku: 1338
  • Frá upphafi: 2455664

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1198
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband