Fyrstu 20 dagar septembermánaðar 2024

Meðalhiti fyrstu 20 daga septembermánaðar í Reykjavík er 7,6 stig. Það er -1,4 stigum neðan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og -1,8 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 22. hlýjasta sæti (af 24) á öldinni. Sömu dagar hafa tvisvar verið kaldari á þessum árum. Hlýjast var árið 2006, meðalhiti þá 10,9 stig, en kaldast 2013, meðalhiti 7,2 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 106. til 110. sæti af 150. Hlýjast var 1939, meðalhiti þá 12,0 stig, en kaldastir voru dagarnir tuttugu árið 1979, meðalhiti þá 5,3 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti dagana 20 7,3 stig, -1,5 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 og -2,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Að tiltölu hefur verið svalast á Ströndum og Norðurlandi vestra, meðalhiti raðast í 22. hlýjasta sæti aldarinnar (þriðjakaldasta), en hlýjast hefur að tiltölu verið á Austurlandi að Glettingi, þar raðast hitinn í 17. hlýjasta sæti.
 
Hitavik eru neikvæð miðað við síðustu tíu ár á öllum veðurstöðvum. Vikið er minnst í Skaftafelli, -0,5 stig, en mest á Nautabúi í Skagafirði -2,5 stig.
 
Úrkoma hefur mælst 55,3 mm í Reykjavík og er það nærri meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 40,6 mm, í rétt rúmu meðallagi.
 
Sólskinsstundir í Reykjavík hafa mælst 104,5, 22 stundum umfram meðallag. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 89,2, 25 stundum umfram meðallag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og fimmtán?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg260924b
  • w-blogg260924a
  • w-blogg230924
  • Slide11
  • Slide10

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 6
  • Sl. sólarhring: 175
  • Sl. viku: 1880
  • Frá upphafi: 2395798

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1707
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband