Fyrri hluti september 2024

Fyrri hluti september hefur verið kaldur. Meðalhiti í Reykjavík er 7,6 stig. Það er -1,7 stigum neðan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og -2,0 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er kaldasta septemberbyrjun það sem af er öldinni í Reykjavík (24). Hlýjastir voru þessir sömu dagar árið 2010, meðalhiti þá var 12,2 stig, næstkaldast var 2012, meðalhiti 7,7 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 121. hlýjasta sæti (af 150). Á því tímabili var hlýjast 2010, en kaldast 1992, meðalhiti þá aðeins 5,6 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrri hluta september einnig 7,6 stig. Það er -1,5 stigi neðan meðallags 1991 til 2020 og -2,0 neðan meðallags síðustu tíu ára. Lítillega svalara var á Akureyri sömu daga árið 2020.
 
Að tiltölu hefur verið kaldast við Faxaflóa og á Suðurlandi, raðast hitinn í 23. hlýjasta sæti aldarinnar, (það næstkaldasta, víðast var lítillega kaldara 2012), en að tiltölu hefur verið hlýjast á Austurlandi að Glettingi. Þar raðast hitinn í 18. hlýjasta sæti aldarinnar.
 
Hiti er fyrir neðan meðallag síðustu tíu ára á öllum veðurstöðvum, mest á Hveravöllum þar sem vikið er -2,7 stig. Minnst er neikvæða hitavikið í Skaftafelli, -0,5 stig.
 
Úrkoma hefur mælst 46,4 mm í Reykjavík og er það í ríflegu meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 29,1 mm og er það í rétt rúmu meðallagi. Á Dalatanga hafa mælst 68,8 mm og er það lítillega undir meðallagi.
 
Sólríkt hefur verið í Reykjavík. Sólskinsstundir hafa mælst 95,5 það sem af er mánuði, rúmlega 30 yfir meðallagi. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 70,7 og er það um 20 stundum umfram meðallag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg230325a
  • Slide15
  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 105
  • Sl. viku: 1339
  • Frá upphafi: 2455665

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1199
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband