Alþjóðasumarið 2024 - landsmeðalhiti

Við lítum nú á meðalhita í byggðum landsins mánuðina júní til ágúst 2024, það er sumartímabil Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Veðurstofan telur september hins vegar með sumrinu. Meðalhiti reiknast 9,1 stig. Það er -0,7 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára og 0,6 stigum neðan meðallags 1991 til 2020.

w-blogg310824 

Á línuritinu má sjá meðalhita aftur til 1823, en við tökum lítið mark á fyrstu 50 árunum. Þó er ábyggilega rétt að heldur hlýrra var fyrir 1860 heldur en næstu áratugi þar á eftir. Súlurnar á myndinni sýna hita einstakra alþjóðasumra, en breiðari línur eru 10-ára keðjumeðaltöl. Eftir sumarkuldana á síðari hluta 19. aldar hlýnaði talsvert um 1890 og svo aftur og meira um og eftir 1925. Sumarhlýindi náðu hámarki á fjórða áratugnum en síðan fór kólnandi, sérstaklega kalt var fram yfir 1985, en þá fór að hlýna. Fyrst hægt en síðan meira. Hámarki náðu hlýindin nýju fyrir um 15 árum.

Sumarið nú reynist það fjórðakaldasta á öldinni, reyndar aðeins eitt sumar (2015) áberandi kaldara, en hiti 2001 og 2011 var ámóta lágur og nú. Ritstjórinn hefur enn ekki reiknað vindavik sumarsins, en samt er ljóst að loft af mjög norrænum uppruna hefur leikið um landið lengst af, ýmist hingað komið úr suðvestri eða norðri. Sennilega hafa hlýindi meginlandanna mjög sótt að norðurslóðum - og loft þaðan orðið að leita hingað - einhver nefndi að svipað væri við vesturströnd Alaska - en það er óstaðfest. Hins vegar er ljóst að methlýtt var á Svalbarða í sumar - aldrei neitt orðið í líkingu við þá hita á þeim slóðum - og einnig vestan til á heimskautasvæðum Kanada. Eitthvað varð kalda loftið að fara.

En september er eftir af hinu formlega veðurstofusumri og sá mánuður hefur alls ekki alltaf verið í takti við hina. Afl háloftavestanátta norðurhvels vex mjög undir jafndægrin, það kólnar hratt á norðurslóðum og fellibyljir og annar hvarfbaugshroði kyndir undir á suðlægari breiddarstigum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w 1963-09-leitavedrid-c
  • w 1963-09-leitavedrid-b
  • w 1963-09-leitavedrid-a
  • w-blogg030924c
  • w-blogg030924b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 86
  • Sl. sólarhring: 92
  • Sl. viku: 1509
  • Frá upphafi: 2391444

Annað

  • Innlit í dag: 64
  • Innlit sl. viku: 1348
  • Gestir í dag: 55
  • IP-tölur í dag: 54

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband