Tuttugu ágústdagar 2024

Fyrstu 20 dagar ágústmánaðar eru heldur kaldir, meðalhiti þeirra í Reykjavík er 10,5 stig og er það -0,9 stigum neðan meðallags sömu daga á árunum 1991 til 2020 og síðustu tíu ára einnig. Hitinn raðast í 22. hlýjasta sæti (þriðjakaldasta) það sem af er aldar. Kaldastir voru dagarnir tuttugu árið 2022, meðalhiti þá 10,0 stig. Hlýjastir voru þeir árið 2004, meðalhiti 13,5 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 100. sæti (af 152). Á þeim lista er 2004 líka í hlýjasta sætinu, en sömu ágústdagar árið 1912 í því neðsta. Þá var meðalhiti þeirra aðeins 7,6 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti nú 9,9 stig, -1,3 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 og -1,0 neðan meðallags síðustu tíu ára, í 59. hlýjasta sæti síðustu 89 ára.
 
Kalt er um land allt (miðað við það sem venjulegt hefur verið á þessari öld - og unga fólkið man ekki annað). Að tiltölu hefur verið kaldast á Ströndum og Norðurlandi vestra, þar raðast hitinn í næstkaldasta sætið, en hlýjast að tiltölu hefur verið á Miðhálendinu og á Austurlandi að Glettingi þar sem hiti raðast í 18. hlýjasta sæti aldarinnar (af 24).
 
Hiti er undir meðallagi síðustu tíu ára um land allt. Að vísu er vik á fáeinum stöðum ómarktækt undir meðallagi, minnst í Hraunsmúla í Staðarsveit, -0,1 stig. Mest er neikvæða vikið á Þverfjalli, -1,9 stig og -1,7 stig í Flatey á Skjálfanda.
 
Úrkoma er vel yfir meðallagi. Hefur mælst 84,3 mm í Reykjavík og er það ríflega tvöföld meðalúrkoma., sú mesta sömu daga í ágúst á öldinni, en hefur fimm sinnum áður mælst meiri sömu daga. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 41,4 mm, tæplega tvöföld meðalúrkoma. Á Dalatanga hefur úrkoman mælst 231,4 mm, nærri þreföld meðalúrkoma, en talsvert neðan mets frá 2009.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 110,1 í Reykjavík, nærri því í meðallagi, en á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælis 59,6, 35 færri en í meðallagi.
 
Loftþrýstingur er enn sérlega lágur. Meðaltalið í Reykjavik er nú 993,7 hPa, vel fyrir neðan næstlægstu tölu síðustu 203 ára. En samkeppninni um botnsæti ágústmánaðar er þó langt frá lokið enn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • w-blogg220225e
  • w-blogg220225d
  • w-blogg220225c
  • w-blogg220225b
  • w-blogg220225a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.2.): 24
  • Sl. sólarhring: 262
  • Sl. viku: 1389
  • Frá upphafi: 2447920

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 1252
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband