Hálfur júlí 2024

Meðalhiti í Reykjavík í miðjum júlí er 11,0 stig. Það er -0,2 stigum neðan meðallags sömu daga árin 1991-2020 og -0,1 stigi neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 14. hlýjasta sæti (af 24) það sem af er öldinni. Hlýjastur var hálfur júlí árið 2007, meðalhiti þá 13,3 stig, en kaldastur var hann 2013, meðalhiti 9,6 stig. Á langa listanum er hiti nú í 63. hlýjasta sæti (af 152). Hlýjastur var fyrri hluti júlí 1991, meðalhiti þá 13,5 stig, en kaldastur var hann 1874, meðalhiti 7,7 stig (óvissa nokkur).

Meðalhiti á Akureyri er nú 12,2 stig. Það er +1,4 stigum ofan meðallags 1991-2020 og +1,3 stig ofan meðallags síðustu tíu ára og eru í tíundahlýjasta sæti síðustu 89 ára á Akureyri.

Hita er nokkuð misskipt á landinu. Kaldast að tiltölu á Vesturlandi, við Faxaflóa og Breiðafjörð raðast hiti í 14. hlýjasta sæti aldarinnar (af 24), en á Norðurlandi eystra og Austurlandi öllu er hann hins vegar sjá fjórðihlýjasti á öldinni (sem af er).

Að tiltölu hefur verið hlýjast á Hornbjargsvita, hiti er þar 2,5 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Kaldast hins vegar á Hjarðarlandi í Biskupstungum, hiti þar -1,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 34,9 mm og er það tæp 40 prósent umfram meðallag. Á Akureyri hefur úrkoma mælst 6,4 mm og er það um þriðjungur meðalúrkomu. Á Dalatanga hafa mælst 11,1 mm og er það aðeins fimmtungur meðalúrkomu.

Sólskinsstundir hafa mælst 64,6 í Reykjavík, 21 stund undir meðallagi - samt ekki sérlega óvenjulegt, en miklu minna heldur en á sama tíma í fyrra. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 87,5 og er það í rétt ríflegu meðallagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Ágúst 2024
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7
  • w-1962vh-6
  • Slide6

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.8.): 6
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 1882
  • Frá upphafi: 2385378

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1654
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband