16.6.2024 | 13:38
Fyrri hluti júnímánaðar 2024
Vegna viðvarandi tölvuvanda á Veðurstofunni eru tölur hálfsmánaðaruppgjörsins ekki jafn nákvæmar og venjulega - nægilega nákvæmar þó fyrir hinn venjulega lesanda. Fimm athuganir (af 120) vantar t.d. frá höfuðstöðvunum í Reykjavík. En meðalhiti reiknast 7,8 stig, -1,5 stigi neðan meðallags 1991-2020 og -1,7 neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 21. hlýjasta sæti (af 24) meðal sömu almanaksdaga á öldinni. Hlýjastir voru þeir 2002, meðalhiti þá 12,0 stig, en kaldast var 2001, meðalhiti 7,6 stig. Á langa listanum raðast hiti nú í 114. sæti (af 152). Hlýjast var 2002, en kaldast 1885, þá var meðalhiti fyrri hluta júní aðeins 5,8 stig.
Á Akureyri er meðalhitinn nú 6,7 stig, -2,1 stigi neðan meðallags 1991-2020 og -3,0 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Raðast í 75. hlýjasta sæti síðustu 89 ára, hlýjast var í fyrra, 2023, en kaldast 1952.
Að tilölu hefur verið kaldast á Ströndum- og Norðurlandi vestra, þar raðast hitinn nú í 22. sæti það sem af er öldinni, tvisvar hefur fyrri hluti júní verið kaldari þar. Hlýjast að tiltölu hefur verið á Suðausturlandi, þar raðast hitinn í 16. hlýjasta sæti.
Nú vantar upplýsingar frá fjölmörgum stöðvum vegna áðurnefndrar tölvubilunar - en á þeim stöðvum sem lítið sem ekkert vantar hefur verið hlýjast að tiltölu í Seley þar sem hiti er -0,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Kaldast að tiltölu hefur verið á Grímsstöðum á Fjöllum, hiti þar -4,1 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.
Úrkoma hefur verið lítil í Reykjavík, aðeins mælst 5,7 mm, um þriðjungur meðalúrkomu - en fyrri hluti júní hefur þó oft verið enn þurrari. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 38,0 mm, meir en fjórföld meðalúrkoma (óstaðfest). Á Dalatanga hefur hún mælst 30,7 mm og er það um 70 prósent meðalúrkomu sömu daga.
Sólskinsstundir hafa mælst 125,1 í Reykjavík, 27,3 stundum umfram meðallag. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 78,1, 20,9 stundum færri en í meðalári.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 539
- Sl. sólarhring: 714
- Sl. viku: 2334
- Frá upphafi: 2413354
Annað
- Innlit í dag: 505
- Innlit sl. viku: 2105
- Gestir í dag: 498
- IP-tölur í dag: 487
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Eru einhver teikn greinanleg sem vísa til þess að loftslagsbreytingar geti haft í för með sér að hæðir norðvestan við landið kunni að verða langlífari og/eða að umfangsmiklar lægðir norðaustan við landið kunni að verða það einnig á einhverjum árshlutum í framtíðinni. Að tilgátan sé líkleg til samþykktar um að hitastigsmunur eftir landshlutum kunni að aukast í landinu á einhverjum tímabilum hver árs.
Einar Vilhjálmsson (IP-tala skráð) 17.6.2024 kl. 12:05
Einar - það eru engin greinanleg teikn um slíkar breytingar. Misjöfn hlýnun meginlanda og heimshafa (og mismunandi hlýnun N-Ameríku, Evrópu og norðurslóða) mun leiða til einhverra breytinga á loftstraumum - en áratugi eða jafnvel öld þarf til að hægt verði að greina þær frá almennu suði í veðrakerfinu. Menn hafa hvað eftir annað talið sig geta greint einhver breytingamerki - en þau hafa hingað til aldrei haldið í lengdina - nema hin almenna hlýnun. - Verði hlýnunin nægilega mikil - eða verði breytingar á hafstraumum vegna hennar kann þó að verða hægt að greina loftstraumabreytingar líka - en slíkt hefur enn ekki orðið.
Trausti Jónsson, 20.6.2024 kl. 19:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.