Fyrstu tuttugu stig ársins 2024

Í dag (25.maí) náði hiti 20 stigum í fyrsta sinn á þessu ári á landinu. Hámarkið var 21,5 stig sem mældust bæði á Mánárbakka og Húsavík. Á fimm öðrum stöðvum náði hiti einnig 20 stigum. Í maí 2010 setti ritstjóri hungurdiska saman alllangan pistil þar sem fjallað var um það hvenær 20 stiga hiti næðist yfirleitt fyrst á vorin. Flest af því sem þar stendur á enn við og rétt að vísa hér í hann hvað varðar eldri tíð. Fyrir tíu árum reyndi ritstjórinn að uppfæra upplýsingar og meðaltöl í pistli á hungurdiskum Það sem hér fer á eftir er þá enn ný uppfærsla á þeim pistli - en tekur nú eingöngu til sjálfvirku veðurstöðvanna. Sjálfvirka athugunarkerfið var orðið ámóta þétt og það mannaða árið 2004, en síðan hefur mannaða kerfið grisjast mjög, en sjálfvirkum stöðvum enn fjölgað. Eftir því sem stöðvakerfið verður þéttara verður líka líklegra að staðbundin tuttugu stig fari ekki framhjá kerfinu. Að tuttugu stig hafi mælst á sjö stöðvum í dag bendir til þess að atburðurinn hefði ekki farið fram hjá mannaða kerfinu - alla vega ekki eftir 1950. 

Við lítum því á árin 1997 til 2024 - á sjálfvirkum stöðvum eingöngu. Á þessu tímabili hefur hiti tvisvar náð tuttugu stigum í marsmánuði, fyrst 18. mars, það var á Dalatanga 2021, 20,4 stig, en svo einnig í Kvískerjum í Öræfum 29. mars 2012, þá örlítið hærri, 20,5 stig og telst það hitamet marsmánaðar hér á landi. 

Á tímabilinu þurfti lengst að bíða eftir 20 stigum árið 2009, alveg til 26.júní og 2015 þurfti að bíða til 19. júní. 

Meðaldagsetning fyrstu 20 stiga á þessu tímabili er 16. maí, en marstilvikin tvö draga meðaltalið nokkuð til - þannig að eðlilegra er að leita miðgildisdags. Það er sá dagur þegar helmingur áranna hefur náð 20 stigum, en hinn helmingurinn bíður enn. Sá dagur er nú einmitt dagurinn í dag, 25.maí. Því má segja að fyrsta tuttugustigakoma ársins 2024 sé í meðallagi. 

Árið 1979 þurfti að bíða til 21.júlí eftir fyrstu 20 stigum ársins og árið 1952 til 23. júlí. Við vitum ekki hvort núverandi fjöldi sjálfvirkra stöðva hefði náð að flýta fyrir. Upplýsingar eru aðgengilegar um hæsta hita hvers mánaðar allt aftur til 1874. Á þeim tíma vitum við aðeins um eitt sumar án 20 stiga mælingar. Það er 1878, hæsti hiti sem frést hefur af það sumar er 19,0 stig sem mældust á Djúpavogi. Nær öruggt má telja að núverandi kerfi hefði fiskað 20 stig þetta sumar og sennilegt er að 20 stig (að minnsta kosti einn dag) hafi um ómunatíð verið fastur liður í veðri á Íslandi. 

Mælingar frá stöðvum Vegagerðarinnar lenda flestar í gagnagrunni Veðurstofunnar. Við getum líka leitað að hámarkshita þeirra stöðva, en sá er þó munurinn að ekki er fylgst alveg samfellt með hámarkinu á þeim stöðvum, við missum af allra hæsta hita verði hann á milli mælinga á 10-mínútna fresti. Þótt allmargar stöðvar Vegagerðarinnar séu staðsettar á láglendi eru þær samt fleiri á fjallvegum. Þær „fiska“ hæstu tölur því ekki alveg jafnvel og aðrar stöðvar (þótt auðvitað geti hagað þannig til - sérstaklega að vetrarlagi þegar hiti er gjarnan hæstur nærri fjöllum í miklum vindi - einmitt þar sem Vegagerðin hefur mestan áhuga á veðri. Miðdagsetning fyrstu 20 stiganna á Vegagerðarstöðvunum er 5.júní - nærri tveimur vikum á eftir öðrum stöðvum. Sumarið 2001 komst hiti aldrei í 20 stig á Vegagerðarstöð. Í dag komst hiti í 20 stig á einni Vegagerðarstöð, á Tjörnesi (Gerðisbrekka, 20,5 stig) - 11 dögum á undan meðaltalinu. 

Þess má að lokum geta að landsdægurhámark dagsins í dag (25.maí) er 23,3 stig sem mældust í Reykjahlíð við Mývatn 1987). Hæsti hiti sem mælst hefur í maí á landinu er 25,6 stig sem mældust á Vopnafirði 26.maí 1992 - verður varla slegið í ár. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg030924c
  • w-blogg030924b
  • w-blogg030924a
  • w-blogg020924a
  • w-blogg020924b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 65
  • Sl. viku: 2640
  • Frá upphafi: 2389937

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2250
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband