Fyrstu tíu dagar marsmánaðar

Mars byrjar heldur hlýlega hér á landi (ekki endilega víst að hann haldi út). Meðalhiti fyrstu tíu daga mánaðarins í Reykjavík er +2,9 stig og er það +2,6 stig ofan meðallags 1991-2020, en +2,3 stig ofan meðallag sömu daga síðustu tíu árin. Hitinn raðast í 5. hlýjasta sæti á öldinni. Hlýjastir voru dagarnir 2004, meðalhiti þá 6,3 stig, en kaldastir voru þeir 2009, meðalhiti -2,1 stig. Á langa listanum er hiti nú í 21. hlýjasta sæti (af 152), hlýjast var 2004, en kaldast 1919, meðalhiti þá -9.9 stig.
 
Meðalhiti á Akureyri er +0.9 stig, raðast í 33 sæti (af 89).
 
Að tiltölu hefur verið einna hlýjast á Austurlandi að Glettingi. Þar eru þessir tíu dagar þeir þriðjuhlýjustu á öldinni, en svalast hefur verið á Ströndum og norðurlandi vestra og Norðausturlandi þar sem hitinn raðast í sjöundahlýjasta sæti aldarinnar.
 
Miðað við síðustu tíu ár hefur verið hlýjast á Þverfjalli þar sem hiti hefur verið 4,2 stigum ofan meðallags. Kaldast hefur aftur á móti verið á Hólmavík þar sem hiti er +0,6 stig ofan meðallags.
 
Úrkoma hefur mælst 21,2 mm í Reykjavík og er það um 70 prósent meðalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoman það sem af er mánuði aðeins mælst 3,1 mm. Á Dalatanga hefur hún mælst 37,3 mm, lítillega neðan meðallags.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 52,9 í Reykjavík, tæplega 20 stundir umfram meðallag. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 47,3 - talsvert umfram meðallag eins og í Reykjavík.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg230325a
  • Slide15
  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 105
  • Sl. viku: 1339
  • Frá upphafi: 2455665

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1199
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband