Kaldur febrúarfyrrihluti

Fyrri hluti febrúar hefur verið kaldur, sá kaldasti það sem af er öldinni í Reykjavík. Meðalhiti þar er -2,5 stig. Næstkaldasti febrúarfyrrihlutinn var 2002, meðalhiti þá -2,2 stig. Hlýjastur var fyrri hluti febrúar hins vegar 2017, meðalhiti +4,1 stig. Á langa listanum er meðalhiti nú í 122. hlýjasta sæti (af 152). Hlýjastir voru sömu daga 1932, meðalhiti þá +4,5 stig, en kaldastir voru þeir 1881, meðalhiti -5,9 stig. Næstur okkur í tíma af þessum kaldari fyrrihlutum er 1995, meðalhiti þá var -2,6 stig.
 
Meðalhiti á Akureyri er nú -4,0 stig, þar var kaldara heldur en nú 2022 og 2009 (og jafnkalt 2019).
 
Þetta er kaldasti fyrrihluti febrúar það sem af er öldinni við Faxaflóa, Breiðafjörð og á Suðurlandi. Á öðrum spásvæðum hann ýmist næstkaldastur eða þriðjikaldastur.
 
Að tiltölu hefur verið kaldast á Þingvöllum, -5,2 stigum neðan meðallags sömu daga síðustu tíu árin, en „hlýjast“ í Surtsey þar sem hiti er -2,0 stig neðan meðallags.
 
Úrkoma hefur mælst 19,5 mm í Reykjavík, um 40 prósent meðalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoma mælst 58,3 mm (óstaðfest). Það er tvöföld meðalúrkoma.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 46,9 í Reykjavík, 18 umfram meðallag og 9,1 á Akureyri, en það er fáeinum stundum neðan meðallags.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg130825a
  • w-blogg090825e
  • w-blogg090825d
  • w-blogg090825c
  • w-blogg090825b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.8.): 46
  • Sl. sólarhring: 71
  • Sl. viku: 1190
  • Frá upphafi: 2491890

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 1047
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband