Fyrri hluti september

Meðalhiti fyrri hluta september er 9,0 stig í Reykjavík, -0,3 stigum neðan meðallags sömu daga 1991 til 2020, en -0,4 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Raðast í 17. hlýjasta sæti aldarinnar (af 23). Fyrri hluti september var hlýjastur árið 2010, meðalhiti þá 12,2 stig. Kaldast á öldinni var 2012, meðalhiti 7,7 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 58. sæti (af 149). Á þeim lista er líka hlýjast 2010, en kaldast 1992, meðalhiti þá ekki nema 5,6 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrri hluta september nú 9,5 stig, +0,5 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og í meðallagi síðustu tíu ára.

Sé litið á spásvæðin hefur verið hlýjast að tiltölu á Vestfjörðum, hiti þar raðast í 11.hlýjasta sæti aldarinnar, kaldast að tiltölu hefur verið á Suðausturlandi, þar raðast hitinn í 17. hlýjasta sæti.

Miðað við síðustu tíu ár er jákvætt hitavik mest á Hornbjargvita, +0,9 stig, en mesta neikvæða vikið er í Þúfuveri, -1,5 stig.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 38 mm og má það heita í meðallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 16,1 mm og er það um 60 prósent meðalúrkomu fyrri hluta september.

Sólskinsstundir hafa mælst 71,4 í Reykjavík, 7 umfram meðallag. Á Akureyri hafa sólsskinsstundirnar mælst 89,5, eða um 35 stundum umfram meðallag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg230325a
  • Slide15
  • Slide14
  • Slide13
  • Slide12

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 105
  • Sl. viku: 1339
  • Frá upphafi: 2455665

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1199
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband