Fyrstu 10 dagar októbermánaðar

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 10 daga októbermánaðar er +6,7 stig. Það er +0,7 stigum ofan meðallags sömu daga áranna 1991 til 2020 og +0,6 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 10. hlýjasta sæti (af 21) á þessari öld. Dagarnir 10 voru hlýjastir árið 2002, meðalhiti þá +9,7 stig. Kaldastir voru þeir árið 2009, meðalhiti +2,6 stig. Á langa listanum er hann í 42.sæti (af 146). Hlýjastir voru dagarnir tíu árið 1959, meðalhiti +11,0 stig, en kaldastir voru þeir árið 1981, meðalhiti aðeins +0,1 stig.

Á Akureyri er meðalhiti nú +4,8 stig. Það er -0,3 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020, og -0,5 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Á landsvísu hefur verið hlýjast að tiltölu á Suðausturlandi. Þar eru dagarnir tíu þeir fimmtuhlýjustu á öldinni, en kaldast - að tiltölu - hefur verið á Vestfjörðum, þar raðast hiti í 14. hlýjasta sætið.

Á einstökum stöðvum er jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár mest í Skaftafelli og við Lómagnúp, +1,8 stig, en neikvætt vik er mest á Klettshálsi og á Þverfjalli -1,8 stig.

Úrkoma hefur mælst 16,4 mm í Reykjavík og er það helmingur meðalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 66,4 mm, sem er meir en tvöföld meðalúrkoma sömu daga.

Sólskinsstundir hafa mælst 40,8 í Reykjavík, 8 stundum fleiri en í meðalári.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl öll.

Eitt af því sem ég hef tekið eftir í sambandi við breyrtilegt tíðarfar hér í fjörunni á Akureyri er hve langt fram á haustið kartöflugrösin standa. Hef reyndar ekki skráð það en samt held ég að það sé einsdæmi hve seint á þessu hausti þau héluðu það mikið að á þeim sæi. Fáein grös sem voru á lóðinni hjá mér stóðu alveg óskemmd af frosti þangað til aðfararnótt 12 okt, en þá steinlágu þau líka alveg. Minnist þess ekki að þau hafi áður staðið inn í oktobermánuð.

Ólafur Kjartansson (IP-tala skráð) 14.10.2021 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • w-blogg211224b
  • w-blogg211224
  • w-blogg121224
  • w-blogg111224a
  • w-blogg101224b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 20
  • Sl. sólarhring: 214
  • Sl. viku: 985
  • Frá upphafi: 2420869

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 864
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband