8.10.2021 | 21:31
Tveir stórir skriðuatburðir á árinu 1946
Hér verður fjallað lítillega um tvo stóra skriðuatburði sem urðu á árinu 1946, annar varð í ágúst austur á fjörðum, en hinn við Eyjafjörð í september. Í báðum tilvikum kom aftakaúrkoma við sögu fremur en leysingar og hlýindi. Septemberúrfellið rataði betur í þá fáu úrkomumæla sem voru uppi á þessum tíma. Við lítum fyrst á það.
Taflan sýnir tíu úrkomusömustu sólarhringa á Akureyri og í Reykjavík frá upphafi mælinga. Rétt að taka fram að mælingarnar sem nefndar eru í Reykjavík 1892 ná sennilega til meira en eins sólarhrings í báðum tilvikum. Það er talan sem er efst á Akureyrarlistanum sem er til umfjöllunar hér - og reyndar líka sú sem þar er númer 5. Að morgni 23.september 1946 reyndist sólarhringsúrkoman á Akureyri hafa verið 91,8 mm, um 40 mm meiri en næstmest hefur þar mælst. Þegar vanir menn (ritstjóri hungurdiska telur sig í þeim hópi) sjá svona tölu fyllast þeir gjarnan vantrú - getur þetta hreinlega verið? Þessi tala er þar að auki miklu hærri heldur en hæstu tölurnar í Reykjavík - en næsthæsta Akureyrartalan myndi lenda þar í 5.sæti (ef við sleppum 1892).
Nánari athugun sýnir að þessi tala er alveg rétt. Við mælingu kl.18 daginn áður (þann 22.) voru 51,5 mm í mælinum - og kl.06 að morgni 23. voru þar 40,3 mm. Ekki nóg með það, heldur höfðu nokkrum dögum áður fallið 55,0 mm á tveimur dögum (27,5 mm hvorn dag um sig, mælt að morgni 18. og 19.).
Úrkoma var ekki mæld víða á þessum árum, langt á milli mælistöðva. Akureyri var þó ekki eini staðurinn þar sem úrkoma var fádæma mikil, því á Skriðulandi í Kolbeinsdal í Skagafirði mældist úrkoman að morgni þess 23. september 106,8 mm. Virðist einsdæmi á þeim slóðum, því. næsthæsta talan þar er 47,0 mm. Í Reykjahlíð við Mývatn mældist úrkoman sama morgun 48,3 mm. Sextíu ár liðu þar til það met var slegið - en síðan þrisvar eftir það.
Pétur Jónsson veðurathugunarmaður í Reykjahlíð segir í athugasemd með septemberskýrslunni: Mánuðurinn yfirleitt góður nema nokkrir dagar frá 22. Þann dag stórfelldara vatnsveður hér en nokkur dæmi hafa þekkst áður í okkar athugun.
Og Kolbeinn Kristinsson á Skriðulandi: en 16. brá til stórfelldrar norðaustanáttar með úrfelli. Þó tók út yfir úrfellið 22. september og aðfaranótt þess 23, sem mér mun lengi í fersku minni. 24. var besta veður og upp þaðan til mánaðarloka.
Við lítum nú á veðurstöðuna - en síðan á afleiðingar veðursins.
Kortið er klippa úr greiningu bresku veðurstofunnar og gildir að morgni laugardagsins 21.september. Alldjúp lægð er á Grænlandshafi á leið austur - en langt suður í hafi eru lægðarbylgjur - og í þeim gríðarlega hlýtt loft langt úr suðri. Lægðin á Grænlandshafi er mjög köld - tengd kuldapolli sem nýfarinn var yfir S-Grænland - eins og sést á háloftakortinu hér að neðan.
Þetta kort er úr safni bandarísku endurgreiningarinnar c20v2 og sýnir hæð 500 hPa-flatarins síðdegis þennan laugardag, 21.september. Rakt og hlýtt sunnanloftið er að mæta köldu lægðinni að vestan, sígild vandræðauppskrift. Lægðin dýpkaði nú mjög hratt og fór til norðausturs, rétt við austurströnd Ísland og allan sunnudaginn, þann 22. var foráttuveður á landinu - eins og veðurkortið hér að neðan sýnir.
Lægðin nærri 960 hPa í miðju. Hún fór svo nálægt landi að um tíma varð vindur suðvestlægur í Papey, en ekki á Teigarhorni. Þó mjög mikið rigndi austanlands, virðist aðalúrkomuhnúturinn verið fremur fljótur að fara þar yfir - en lagðist hins vegar að Norðurlandi og stóð þar miklu lengur við. Skaplegra var vestanlands.
Veðurathugunarmaður á Hofi í Vopnafirði lýsir veðri þann 22.: Óskaplegt rigningarillviðri með ólátastormi, einkum framan af. Daginn eftir var þar alhvítt niður fyrir miðjar hlíðar.
Myndin sýnir þrýsting á landinu og þrýstispönn (munur á hæsta og lægsta þrýstingi á landinu) á 3 stunda fresti í september 1946. Fyrri hluti mánaðarins er rólegur og lítið um að vera. Þá breytti um veður, djúp lægð kom að landinu suðaustanverðu og olli töluverðu illviðri dagana 16 til 19. Úrkomuveðrið mikla fylgdi síðan næstu lægð og fór þrýstispönnin þá upp í 28,1 hPa. Í dag hefði hún líklega mælst enn meiri vegna fjölgunar stöðva. Enn ein lægð kom að landinu suðaustanverðu þann 25., en var þó veigaminni en þær fyrri. Síðan varð aftur skaplegt veður. Haustið varð síðan eitt hið besta sem vitað er um.
Úrkoman mikla olli gríðarlegum skriðuföllum, einkum þó í Eyjafirði. Hér er byggt á frásögnum blaða. Öll dagblöðin skýrðu frá - en voru ekki alltaf sammála í smáatriðum. Hér er aðeins úrval frétta - og misræmi í fregnum ekki lagað.
Tíminn birti þann 24. október nokkuð ítarlega frásögn:
Úr bréfi frá Arnóri Sigurjónssyni. Skriðuföllin í Dalsmynni hafa verið stórkostlegri náttúruviðburður heldur en menn hafa almennt gert sér ljóst og fram hefir komið af frásögnum blaða- og útvarps. Hamfarirnar hafa verið ógurlegar. Þar sem áður voru gróðursælar hlíðar, standa nú eftir ber og skafin fjöllin og undirlendið er kafið margra metra þykku aurlagi og grjótruðningi. Það, sem hér hefir gerzt. minnir helzt á eldgos, flóðbylgjur og fellibylji að mikilleik. Arnór Sigurjónsson, bóndi á Þverá í Dalsmynni, hefir lýst hervirkjunum í bréfi, sem Tíminn birtir hér kafla úr með leyfi hans. Arnór var ekki heima, þegar skriðurnar féllu, en hefir síðan skoðað þessa náttúruviðburði.
Mér finnst þetta," segir Arnór, miklu ægilegra að sjá en nokkrar frásagnir, sem ég hefi af því heyrt, og þó hefir sumt verið orðum aukið. Stórfelldastar eru skriðurnar í Laufásfjallinu, er við Dalsmynni horfir, og hefir meiri hluti alls jarðvegs hrunið úr fjallinu frá því skammt utan við Skuggabjörg allt út undir Fnjóskárbrú. Skriðurnar hafa átt upptök sín í ca. 500 metra hæð og fallið ofan í Fnjóská. Allt undirlendið sem var þarna handan árinnar er þakið þykkum aur- og grjótruðningi, en niður við ána, þar sem aftur er nokkur brekka, er allt sleikt ofan í berg. Norðaustanmegin í Dalsmynninu hafa hins vegar aðeins fallið einstakar skriður, og eru spýjurnar allt að 100200 metra breiðar. Stærstu spýjuna þeim megin, þá er féll rétt sunnan við Ártún, hefi ég ekki séð. Bóndinn í Ártúni, Sigurbjörn Benediktsson, horfði og heyrði á, er hún féll. Hann segir svo frá, að hún hafi farið með ógurlegum hraða og þvílíkum hávaða, sem fjallið væri allt að hrynja. Gufu- og leirstrókarnir höfðu staðið hátt í loft upp og þessum ósköpum hafði fylgt hinn megnasti ódaunn, og skildi hann það svo að leirinn og grjótið hefði hálfbráðnað við' hitann, er myndaðist við núninginn, er skriðan féll. Svo var sem rokhvass stormsveipur færi framhjá um leið og skriðan hrundi rétt framhjá bænum, en er hjá leið, var eftir á enginu og túninu heim undir bæ þykkur leirelgur, er kyrrðist smámsaman. Þessi mikla skriða hefir reynzt nál. 2 metra þykk á veginum fyrir ofan bæinn, en hún er svo grjótlítil, að talað er um að slétta hana og hreinsa grjótið, sá í hana síðan og gera þannig að túni. Skriðan, austan á Þverárfjalli, er ekki nema á 2. hundrað metra á breidd. En hún er geysiþykk og reyndar ennþá hroðalegri en mér hefði dottið í hug að hún væri. Skammt norðan við hana, í Þúfulandi, er önnur skriða álíka breið, en tæplega eins efnismikil, og margar skriður eru þarna nærri, allar smærri, flestar í Þverárlandi. Miklu meiri hluti gróðurlendisins í brekkunni er þó eftir, en því er líkast, sem brekkan sé öll rifin og tætt. Ég gat ekki varizt því, að ég var lengi eftir mig, er ég hafði skoðað þessi umbrot, ekki vegna skaðans á landinu, heldur vegna umhugsunar um það, hve lítils við menn erum megnugir gegn ósköpum sem þessum."
Tíminn segir þann 26.september (lítillega stytt hér):
Í byrjun þessarar viku geisaði hið versta veður víða um land og urðu af völdum þess miklir skaðar, einkum við Eyjafjörð. Í Dalsmynni féllu skriður á lönd margra bæja og varð fólk að flýja heimili sín. Er talið, að ein þessara jarða sé ekki byggileg eftir það jarðrask, sem orðið hefir. Víða hafa skriður fallið á engjar og úthaga, vegir skemmzt, símasamband rofnað og hey flætt. Akureyrarbær var rafmagnslaus í sólarhring vegna skemmda á raflínunni. Réttum hefir sums staðar verið frestað og menn og skepnur orðið fyrir hrakningum í leitum.
Stórfelldast tjón virðist hafa orðið í Dalsmynni austan Fnjóskár. Þar byrjuðu skriður að falla að undangengnu ofsalegu úrfelli síðastliðið sunnudagskvöld [22.september]. Sá fólk þá þegar fram á, hvað verða vildi. Flúðu menn af fimm bæjum, sem standa undir svonefndu Gerðafjalli, og leituðu athvarfs á næstu heimilum, aðallega Laufási og Lómatjörn. Bæir þeir, sem fólkið yfirgaf, eru Litlagerði. Pálsgerði. Miðgerði, Borgargerði og Ártún.
Skriður héldu áfram að falla úr fjallinu um nóttina og ollu gríðarmiklu tjóni. Litlagerði er talið óbyggilegt. Nær allt túnið er í kafi í aur og eðju og grjóti. Bæjarhúsin standa á hóli, og má heita, að þau ein og hlaðvarpinn umhverfis þau hafi sloppið við eyðingu. Bóndinn í Litlagerði var nýbúinn að reisa steinhús á jörð sinni. Af landi jarðarinnar Ártúns eyddist þriðjungurinn. Hins vegar er túnið þar óskemmt. Á Miðgerði féllu tvær skriður. Önnur fyllti farveg bæjarlækjarins og eyðilagði rafstöð, sem þar var. Hin féll meðal annars yfir túnið og gerði verulegt tjón. Í Pálsgerði féll skriða á allstórt nýræktað land og varð það fyrir miklum skemmdum. í Borgargerði varð einnig verulegt tjón. Ekkert tjón varð þó á húsum né gripum, svo vitað sé. Sauðfé er ekkert á þessum slóðum, því að allsherjarslátrun vegna fjárpestanna var nýlega lokið. Hinum megin Fnjóskár, nokkru innar en gegnt Gerðabæjunum, féllu einnig miklar skriður. Þar er skógur allmikill, sem heitir Gæsaskógur. Hann tættist sundur af skriðuföllum. Skógur þessi er í Laufáslandi. Nýr vegarkafli stórskemmdur.Enn féllu skriður úr Kjálkanum, fjallinu milli Svalbarðsstrandar og Dalsmynnis. Lenti ein þeirra á túninu í Fagrabæ og skemmdi það mikið og eyðilagði stóran kartöflugarð. Nýlokið var á þessum slóðum vegarkafla, sem tengdi byggðina út með firðinum við Svalbarðsströnd og innsveitirnar. Þessi vegur stórskemmdist, allt frá Saurbrúargerði að Fagrabæ. Má segja, að allur nýi kaflinn sé ýmist á kafi í aur og grjótruðningi eða sundurtættur af vatni og skriðum. Vegurinn upp Fnjóskadal er einnig stórskemmdur. Vaðlaheiðarvegurinn rofnaði af völdum vatnavaxta. Á land Höfðabrekku í Grenivik féll skriða og varð af talsvert tjón. Kom hún úr Höfðanum.
Miklu víðar en hér verður getið hafa skriður fallið við Eyjafjörð. En þær hafa yfirleitt lent á úthaga eða engjar og ekki haft eins mikla eyðileggingu í för með sér og skriður þær, sem hér hefir verið sagt frá. Að Vatnsenda í Saurbæjarhreppi féll þó skriða á túnið og olli talsverðum skemmdum, og sömuleiðis lenti skriða á túninu á Möðruvöllum í Hörgárdal og gerði nokkurn usla. Í Ólafsfirði flæddu hey á nokkrum bæjum í vatnavöxtunum. Auk þess má vel vera, að ekki séu enn komin til grafar öll kurl, því að símalínur rofnuðu viða og sums staðar er ekki komið á símasamband. Þannig var enn símasambandslaust frá Akureyri austur um Þingeyjarsýslu.
Alþýðumaðurinn á Akureyri segir svo frá 1.október - (nokkuð stytt hér). Í textanum er sagt frá flóðum og skriðuföllum á Akureyri. Líklega hefur Glerá brotist úr farvegi sínum og flætt um Oddeyrina utanverða - er það líklegra en að sjávarflóðbylgju sé um að kenna - það er þó athyglisvert að talað er um slíka bylgju á Siglufirði og rétt að útiloka ekkert:
Síðari hluta sunnudagsins gekk flóðbylgjan yfir malarkambinn norðaustan á Tanganum og yfir Oddeyrina neðanverða. Neðri hluti Gránufélagsgötu hvarf undir vatn, og víða flóði inn í kjallara og eyðilagði það sem í þeim var. Víðar hljóp vatn inn í hús. T.d. í Versl. Esju og Fornsölunni varð vatnið svo mikið að skemmdir hlutust af. Hér og þar sprungu skólpleiðslur og vall vatnið upp á yfirborð gatnanna, og göturæsin urðu að lækjafarvegum. Skriða féll úr brekkunni bak við húsið nr. 35 við Hafnarstræti og náði aurinn upp á glugga efri hæðar. Kartöflugarðar sprungu fram úr brekkunni ofan við nr: 32 og 76 við Aðalstræti og vall leðjan austur yfir götuna. Víðar féllu smáskriður úr brekkunni. Hve miklir skaðar hafa af þessu hlotist er ekki fullljóst enn. Vegurinn yfir Hólmana lá lengi undir sjó og vatni ófær. Lækir úr Vaðlaheiði rifu skörð víðar en á einum stað í þjóðveginn, svo hann var ófær, fyrri hluta mánudagsins.
Skriða féll úr fjallinu ofan við Möðruvelli í Hörgárdal og eyðilagði mikinn hluta af Nunnuhólstúninu. Skriður féllu úr fjallinu bak við Vatnsenda, Hóla og Nýjabæ inn í firðinum: Skemmdu þær miklar engjar og hluta af túninu á Vatnsenda. Jarðfall myndaðist við bæinn Stekkjaflatir í Möðruvallasókn. Nýi vegurinn á Svalbarðsströnd eyðilagðist á löngum kafla af vatnagangi og skriðuföllum. Þó urðu bæirnir í Dalsmynni og syðst í Höfðahverfi fyrir þyngstum búsifjum. Flúði fólkið á þremur bæjum húsin á sunnudaginn og hélt þar ekki til tvær næstu nætur. Túnið að Litlagerði eyðilagðist nær því allt af skriðuhlaupi. Einnig Miðgerðistún að all-verulegu leyti. Þá féll stór skriða milli Ártúns og Borgargerðis og gerði mikinn usla. Víðar ollu skriðuföll skemmdum þar ytra.
Miklar skemmdir urðu á símalínum víða á Norðurlandi og Vestfjörðum. Ekki er getið neinna verulegra skemmda í sjóþorpum. Þó gekk flóðbylgjan yfir sjóvarnargarðinn norðan á Siglufjarðareyri og flæddi yfir eyrina á stórum parti. Mannskaðar urðu engir á sjó svo vitað sé.
Dagur segir þann 10.október frá skemmdum inni í Eyjafirði:
Eyfirzkur bóndi hefir ritað blaðinu fréttamola úr byggðinni og segir m. a.: Eftir gott sumar og þurrviðrasamt, brá til stórfelldra rigninga fyrir röskum hálfum mánuði. Nokkrir bændur áttu hey úti, sem hafa ekki öll náðst enn. Í þessum vatnavöxtum féllu allmiklar skriður á þremur stöðum. Á Tjörnum tók af allgóða engjaspildu og var töluvert hey á henni. Á Halldórsstöðum féllu tvær skriður á engi; önnur þeirra tók skika af túninu. Á Vatnsenda skemmdist engi mjög tilfinnanlega og tún einnig nokkuð og þar mun hafa tapast talsvert af heyi.
Tíminn segir þann 26.september frá vandræðum víðar - sumt af því á við fyrra veðrið - það sem varð hvað verst 15. til 19.september.
Sums staðar norðan lands hefir réttum verið frestað vegna illviðranna, svo sem í Húnavatnssýslu. Gangnamenn á Auðkúluheiði sneru aftur vegna óveðurs. Hefir snjóað til fjalla og allt niður í byggð í framsveitunum. Menn og skepnur hafa eðlilega orðið fyrir hrakningum og vosbúð af völdum þessa íhlaups nú um gangna- og réttaleytið.
Í ofviðrinu, sem skall á um fyrri helgi og stóð fram í miðja viku, urðu miklar skemmdir á hafnarmannvirkjum í Bolungarvík, en í sumar hefir verið unnið þar að hafnarbótum. Tíðindamaður blaðsins hefir aflað upplýsinga um skemmdirnar frá Þórði Hjaltasyni í Bolungarvík. Í sumar var unnið að hafnarmannvirkjum í Bolungarvík. Voru steypt 11 steinker, sem hvert um sig var 9 m. að lengd og 3 1/2 m. að breidd. Kerum þessum var sökkt í tveimur röðum, hverju við endann á öðru, en ellefta kerinu var sökkt fyrir enda bryggjunnar, þannig, að það lokaði þró þeirri, er myndaðist á milli kerjanna. En bilið á milli þeirra var fyllt upp með lausu grjóti. Ofan +a steinkerin var aftur steyptur veggur, rúmlega 2 metrar að hæð, og var síðan fyllt upp með grjóti. Var þá bryggjan orðin 7 metrar að hæð. Bilið á milli steinkerjanna var 10 metrar, en bryggjan var samtals 17 metra breið. Eftir að fyllt hafði verið upp með grjóti á milli kerjanna, var steypt plata ofan á allt saman, sem var yfirborð bryggjunnar. Var búið að steypa þá plötu til hálfs, er ofviðrið skall á um helgina.
Á aðfaranótt sunnudagsins 15. september skall á ofviðri með foráttu brimi. Um hádegi var veðurofsinn orðinn aftaka mikill og brimið svo mikið, að slíkt hefir ekki komið í Bolungarvík árum saman. Þegar á sunnudaginn tók sjórinn að rífa lausa grjótið upp úr bryggjunni, þar sem ekki var búið að steypa plötuna yfir og fór svo fram allan sunnudaginn og fram á mánudag. Var brimið þá farið að ná grjóti undan þeim hluta bryggjunnar, er búið var að steypa yfir, og tók einnig með sér hluta af steinsteyptu plötunni. Um hádegi á þriðjudag tók ein holskefla innri garðinn ofan að steinkerjunum. Sópaðist hann ásamt mestum hluta uppfyllingarinnar, inn í höfnina og braut ofan af steinkerjunum. Aðrar skemmdir urðu ekki á sjálfum kerjunum, nema þær, að hornkerið að innanverðu færðist nokkuð til, og ennfremur er hætt við að fleiri ker hafi raskazt á grunninum.
En eins og fram kom í inngangi voru þetta ekki einu stórflóðin þetta sumar. Þann 5. og 6. gerði mikið úrhelli á Austfjörðum. Því fylgdi töluvert tjón, mest á Eskifirði. Við notumst hér við frásögn dagblaðsins Tímans, en öll dagblöðin greina einnig frá atburðum, sumir hlutir eru þar nákvæmar raktir:
Tíminn segir frá þann 9. ágúst (lítillega stytt):
Stórrigningar hinar mestu voru austan lands framan af þessari viku, og leiddu af þeim vatnavextir, sem valdið hafa gríðarmiklu tjóni, einkum í Eskifjarðarbæ, þar sem vatn hefir flætt um göturnar, Runnið inn í mörg hús og eyðilagt garða og margs konar verðmæti. Einnig hafa orðið miklar skemmdir á vegum á þessum slóðum. Mikið tjón varð einnig á Seyðisfirði.
Meginbyggðin í Eskifirði stendur á alllangri strandlengju norðan við fjörðinn, og renna þar niður hlíðina allmargir lækir eða smáár, er þó geta orðið miklar í stórfelldum leysingum. Vatnið tekur að flóa um göturnar. Seint á mánudaginn [5.ágúst] gerði stórfellda rigningu austan lands og rigndi víða látlaust talsvert á annan sólarhring. Á þriðjudagsnóttina brutust lækirnir, sem eiga upptök sín í Lambeyrardal upp frá Eskifjarðarbæ, úr farvegum sínum og tóku að flóa um götur bæjarins, og jókst vatnsflaumurinn sífellt er leið á þriðjudaginn [6.ágúst]. Mun hann hafa orðið mestur á þriðjudagskvöldið og fyrri hluta miðvikudagsnætur.
Ár þær, sem mestum usla ollu, eru Grjótá, Lambeyrará og Ljósá. Grjótá fyllti farveg sinn aur og grjóti og flæddi í mörgum kvíslum milli húsanna, sem standa á svonefndri Grjóteyrartungu. Voru tólf hús, sem í bjuggu um sextíu manns i hættu stödd. Flúði fólk brott og leitaði sér hælis annars staðar á miðvikudagsnóttina.
Tjónið varð gífurlegt. Gróf grunna sums staðar að nokkru leyti undan húsunum, og kjallarar og jafnvel íbúðir á gólfhæðum fylltust af vatni og aur. Gafl á stóru steinhúsi hrundi, dráttarbraut skemmdist og sömuleiðis vélar á tveimur vélaverkstæðum. Auk þess ónýttist mikið af vörum, svo sem steypurör, hleðslusteinar, tugir smálesta af kolum og fleira. Einnig flutu brott um þrjátíu hestar af nýhirtu heyi. Kartöflugarðar og trjágarðar eru þaktir auri og grjóti eða gróðurmoldin hefir algerlega sópast brott, og þarf ekki að gera ráð fyrir uppskeru úr þeim matjurtagörðum, er flóðið náði til. Lambeyrará og Ljósá ollu einnig skemmdum á vegum og mannvirkjum, þótt ekki sé það tjón eins stórkostlegt. Nú er unnið að því að hreinsa til i bænum eftir sem föng eru á í skyndi, og hleypa ánum í rétta farvegi. Finnst fólki að vonum að það hafi hlotið þungar búsifjar af völdum þessara rigninga. Talið er, að tjón það, sem orðið hefir í Eskifirði nemi hundruð þúsunda, þótt enn hafi það , ekki verið metið. Er mjög um það rætt, að ríkinu beri skylda til að hlaupa hér undir bagga, er svo óvænt og stórfellt tjón hefir að höndum borið.
Í Bleiksá hljóp einnig úr farvegi sínum og flaut yfir þjóðveginn, svo að ófært var á bifreiðum milli Eskifjarðar og | Reyðarfjarðar, auk þess sem skriðuföll urðu á Hólmaströnd sunnan Eskifjarðar gegnt bænum. Á veginum til Viðfjarðar urðu einnig skemmdir á vegum vegna þessa óvenjulega úrfellis, svo sem á Fjarðarheiði.
Þá hafa einnig orðið tilfinnanlegir skaðar í Seyðisfirði af völdum rigningarinnar. Þar féllu miklar skriður við fjörðinn norðanverðan. Brotnuðu símastaurar, tók af túnspildu og skák af Dvergasteinsengi, braut hlöður og fjárhús og varð ýms usli minni háttar. Við Loðmundarfjörð er símasambandslaust.
Þann 10.ágúst eru frekari fregnir í Tímanum:
Á Asknesi við sunnanverðan Mjóafjörð varð fólkið að flýja bæinn aðfaranótt miðvikudagsins [7.ágúst]. Brauzt á, sem rennur þar um túnfótinn úr farvegi sínum. Var húsfreyja ein heima með börn þessa nótt, því að húsbóndinn, Hans Wium, var staddur í Neskaupstað. Bjó konan um sig í tjaldi og hafðist þar við, unz morgnaði. Í Norðfirði urðu tilfinnanlegar skemmdir. Hljóp mikill vöxtur í Norðfjarðará og læki, sem koma úr fjöllunum beggja megin sveitarinnar. Flæddi vatnið yfir engjar og bithaga og bar með sér aur og möl og jafnvel stórgrýti. Munu skemmdirnar hafa orðið mestar á Skorrastað og Neðri-Miðbæ, bæjum skammt innan við fjarðarbotninn að norðan. Eitthvað af heyi mun hafa flotið burt. Einnig urðu skemmdir á vegum á þessum slóðum, og tvær brýr á veginum til Neskaupstaðar tók af. Var önnur þeirra lítil trébrú, en hitt steinbrú, og gróf vatnsflaumurinn undan henni undirstöðuna, svo að hún seig á hliðina. Í sjálfum Neskaupstað urðu ekki neinar skemmdir. Víða um Austurland urðu skriðuföll, sem spilltu gróðurlendi, og ýmsar skemmdir af völdum vatnagangsins.
Í Þjóðviljanum 10.ágúst er sagt nánar frá atburðum í Asknesi í Mjóafirði:
Á Asknesi við sunnanverðan Mjóafjörð varð fólkið að flýja bæinn aðfaranótt miðvikudagsins [7.ágúst]. Brauzt á, sem rennur þar um túnfótinn úr farvegi sínum. Var húsfreyja ein heima með börn þessa nótt, því að húsbóndinn, Hans Wium, var staddur í Neskaupstað. Bjó konan um sig í tjaldi og hafðist þar við, unz morgnaði. Í Norðfirði urðu tilfinnanlegar skemmdir. Hljóp mikill vöxtur í Norðfjarðará og læki, sem koma úr fjöllunum beggja megin sveitarinnar. Flæddi vatnið yfir engjar og bithaga og bar með sér aur og möl og jafnvel stórgrýti. Munu skemmdirnar hafa orðið mestar á Skorrastað og Neðri-Miðbæ, bæjum skammt innan við fjarðarbotninn að norðan. Eitthvað af heyi mun hafa flotið burt. Einnig urðu skemmdir á vegum á þessum slóðum, og tvær brýr á veginum til Neskaupstaðar tók af. Var önnur þeirra lítil trébrú, en hitt steinbrú, og gróf vatnsflaumurinn undan henni undirstöðuna, svo að hún seig á hliðina. Í sjálfum Neskaupstað urðu ekki neinar skemmdir. Víða um Austurland urðu skriðuföll, sem spilltu gróðurlendi, og ýmsar skemmdir af völdum vatnagangsins.
Í þessu tilviki er ekki jafn augljós hvað veldur úrkomuákafanum og í septemberveðrinu.
Samtímaveðurkort og endurgreiningar segja frá nokkuð myndarlegri lægð sem fór til austnorðausturs fyrir suðaustan land. Ákveðin austanátt var ríkjandi í marga daga - og greiningar gefa helst til kynna að sama átt eða mjög svipuð hafi verið ríkjandi í öllu veðrahvolfinu.
Myndin sýnir þrýsting á landinu og þrýstispönn í ágúst 1946. Mun rólegra yfirbragð er á þessari mynd heldur en septemberlínuritunum. Þó má sjá að þrýstispönn gefur til kynna ákveðinn vind alla dagana frá 5. og fram á þann 10. - og svo aftur eftir þann 20. Atburðalýsingarnar gefa til kynna að mest hafi gengið á Austfjörðum að kvöldi þess 5. og fram á 6. Þá má (með góðum vilja) sjá eitthvað kerfi fara yfir (örin bendir á það). Kannski hefur það verið illvígur úrkomubakki sem þá kom úr austri eða suðaustri yfir Austfirði. Það var síðar sem úrkoman verð mest á Norðurlandi. Þess má geta að nú brá svo við að nær ekkert rigndi á Skriðulandi í Kolbeinsdal í Skagafirði. Áttin væntanlega of austlæg.
Því miður hafa íslandskort fyrri hluta ágústmánaðar 1946 glatast á langri leið - þannig að við þyrftum að endurgera kortin til að ráða frekar í stöðuna. Úrkoma mældist víða mjög mikil - m.a. varð sólarhringsúrkoman á Akureyri að morgni þess 8. sú fimmtamesta sem vitað er um þar á bæ.
Veðurathugunarmenn bera tíð þessa mánaðar góða sögu og telja hana hagstæða - þrátt fyrir rigningar um tíma. Á Höfn í Bakkafirði segir Halldór Runólfsson: ... ekki stórfelldar rigningar nema dagana 6. til 10. Þá var úrfelli meira en menn muna um þetta leyti árs. Þó urðu ekki verulegir skaðar. Vegir skemmdust lítilsháttar. Veðurathugunarmenn eystra segja frá snjó í hæstu fjöllum þann 8.
Sé litið á úrkomutölur dagana 6. til 10. kemur í ljós að þær eru samtals nokkuð háar austanlands - þó ekki væri um met að ræða einstaka daga. Þessa 5 daga féllu t.d. 219,2 mm í Fagradal í Vopnafirði og yfir 100 mm á Höfn í Bakkafirði, á Dalatanga, Seyðisfirði, Teigarhorni og Djúpavogi. Atburðir á Eskifirði og Mjóafirði benda til þess að þar hafi verið um mikla úrkomuákefð að ræða - gríðarmikið hafi fallið á til þess að gera skömmum tíma.
Við látum þessa yfirferð um úrfellin í ágúst og september 1946 duga hér. Kannski lítum við á fleiri tilvik síðar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 11.10.2021 kl. 20:57 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 20
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 985
- Frá upphafi: 2420869
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 864
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Heill og sæll Trausti og ævinlegar þakkir fyrir skemmtilega pistla.
Þar sem þú kryfur hér skriðuföll og veðurfar í tengslum við þau, þætti mér gaman að vita hvort til eru heimildir um skriðu er féll í Svínadal í Borgarfirði, um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar og hvernig veður var hér á suð vesturhorninu er ollu þeirri skriðu. Skriða þessi féll fyrir ofan bæinn Kambshól og klofnaði sitt hvoru megin bæjarins. Man ekki hvort fleiri skriður féllu á þessu svæði þennan dag, en líklegt er að svo hafi verið. Því miður man ég ekki nákvæmlega hvaða ár þetta var, en það var á sjöunda áratuginum.
Kveðja
Gunnar Heiðarsson, 9.10.2021 kl. 07:35
Þakka vinsamleg orð Gunnar. Þú átt líklega við skriðuföll sem urðu 21. og 22. júlí 1966 í gríðarlegu vatnsveðri. Það féllu víðar skriður - í skrá minni stendur: „Skriðuföll ollu fjártjóni á Kjalarnesi, stærstu skriðurnar féllu við Tindsstaði og Ytri-Tindstaði og fórust þar kindur og ræktarland spilltist. Stærstu skriðurnar féllu úr 700 m hæð, breiddust yfir ræktarland, mela og móa, rann síðan í Kiðafellsá og í henni til sjávar. Ræsi féll niður við Móa og skemmdir urðu við Mógilsá og Miðdal í Kjósarhreppi. Skriða spillti sumarbústaðalandi við Helgafell í Mosfellssveit. Víða á Vesturlandi féllu skriður, m.a. stórskemmdist vatnsveita Borgarness, skriða ógnaði bænum Kambshóli í Svínadal. Skriður lokuðu vegi í Hvalfirði nærri Skeiðhól og Hvítanesi og stífluðu Berjadalsá við Akranes. Skriður féllu einnig á Vestfjarðaveg og veginn í Norðurárdal í Skagafirði“.
Trausti Jónsson, 9.10.2021 kl. 21:42
Takk fyrir þetta Trausti
Jú mikið rétt, þetta var sumarið 1966. Fróðlegt væri, ef hægt er, að fá að sjá hvernig veðurfar var í undanfara þessara hamfara. Einnig hvort slíkar hamfarir um mitt sumar séu algengar.
Kveðja
Gunnar Heiðarsson, 9.10.2021 kl. 23:39
Gott kvöld .
Það vill svo til að ég á tvær bækur eftir Ólaf Jónsson
sem heita Skriðuföll og Snjóflóð, gefnar út 1957 Þarna er
að finna mjög gagnlegar upplýsingar um snjóflóð og skriðuföll á Íslandi og víðar.
Því miður eru sennilega fáir sem hafa lesið þessar bækur því ef svo hefði verið
væri til dæmis búið fyrir löngu að flytja húsin sem eru á hættusvæði
við Seyðisfjörð og fleiri stöðum burt . Það er oftar vitimeir að flytja hús burtu
af hættusvæðum en að kosta uppá varnargarða og önnur varnar mannvirki
sem má setja spurningar við, en peningarnir stjórna þessu sem flestu öðru.
Ólafur Kr. Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.10.2021 kl. 20:29
Gunnar - Ólafur Einar Ólafsson ritaði ágæta grein í tímaritið Veðrið þar sem fjallað var um þetta veður í júlí 1966 - Greinin birtist í 1968-árgangnum 1. tölublaði bls. 18 og nefnist Tvær Lægðir. Tímaritið er aðgengilegt á timarit.is Skriðuföll eru algengari í ágúst heldur en í júlí.
Gunnar - auglýsst var á sínum tíma „Skriðuföll og snjóflóð inn á hvert heimili“. Bækurnar seldust vel og voru gefnar út aftur í aukinni útgáfu (3 bindum) árið 1992.
Trausti Jónsson, 11.10.2021 kl. 01:02
Ólafur - auglýsst var á sínum tíma „Skriðuföll og snjóflóð inn á hvert heimili“. Bækurnar seldust vel og voru gefnar út aftur í aukinni útgáfu (3 bindum) árið 1992.
Trausti Jónsson, 11.10.2021 kl. 01:02
Takk fyrir þetta Trausti.
Þarf að glugga í timarit.is og reyna að komast yfir þessa bók.
Kveðja
Gunnar Heiðarsson, 11.10.2021 kl. 16:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.