17.1.2019 | 23:25
Af dćgurmetauppskeru áriđ 2018
Ţađ sem hér fer á eftir er ađ miklu leyti endurtekiđ efni frá ţví í fyrra (9.janúar 2018) og hitteđfyrra (30.janúar 2017) og reyndar enn líka fyrir ţremur árum(21.janúar 2016) - en látum ţađ fljóta - tölur eru auđvitađ nýjar. Vćgast sagt nördalegt efni.
Uppgjör ársins 2018 stendur yfir - í ţetta sinn er ţađ dćgurmetauppskeran. - Stöđugt veriđ ađ tala um dćgurmet í alţjóđlegum fréttum bćđi af hitabylgjum og kuldaköstum. Jafnvel eru einkennileg og harla tćknileg hugtök eins og hitabylgjuhlutfall eđa hlutfall á milli hita- og kuldameta orđin fréttnćm í skotgrafahernađi ţeim sem tengdur er veđurfarsbreytingum.
Eins og áđur sagđi er í fréttum ađ utan er oft gert talsvert úr svonefndum dćgurmetum - hćsta eđa lćgsta hita sem mćlst hefur á einhverri veđurstöđ ákveđinn dag ársins. Ein og sér segja ţessi met lítiđ - en geta samt faliđ í sér skemmtileg tíđindi. Hafi veriđ mćlt mjög lengi á stöđinni verđa ţessi tíđindi eftirtektarverđari. Svipađ má segja um mjög miklar metahrinur - daga ţegar dćgurmet falla um stóra hluta landsins.
Talning leiđir í ljós ađ alls féllu 2817 hámarksdćgurmet á almennu sjálfvirku stöđvunum hér á landi á árinu 2018 - séu ţćr stöđvar sem athugađ hafa í 5 ár eđa meira ađeins taldar međ. Lágmarksmetin urđu hins vegar 2815 - nćrri jafnmörg. Hlutfallslega (miđađ viđ fjölda stöđva) eru ţetta samtals lćgstu tölur á viđmiđunartímabilinu öllu (frá 1996). Áriđ var sum sé ekki sérlega metavćnt - hvorki til kulda né hita. Hármarksmetin voru fćrri 2015, en ţá voru lágmarksmet hins vegar fleiri en oftast áđur.
Hlutfall hámarks- og lágmarksmeta er mjög breytilegt frá ári til árs og hlýtur ađ segja okkur eitthvađ? Meir en 62 ţúsund dćgurmet hvorrar tegundar eru skráđ alls á tímabilinu frá 1996 til 2018 -
Lítum nú á línurit sem sýnir hlutfall hámarksdćgurmeta af heildinni frá ári til árs.
Ađeins ţarf ađ doka viđ til ađ skilja myndina - lárétti ásinn sýnir ár tímabilsins. Lóđrétti ásinn til hćgri sýnir landsmeđalhita, ţađ gerir rauđstrikađa línan einnig. Hlýjust eru árin 2003, 2014 og 2016, en 2015 var hins vegar ámóta kalt og árin fyrir aldamót. Áriđ 2018 er í miđjum hóp, međalhiti stöđvanna var 4,5 stig.
Lóđrétti ásinn til vinstri sýnir hlut hámarksdćgurmeta af summu útgildametanna (hámarks og lágmarks). Hlutur lágmarksmetanna fćst međ ţví ađ draga frá einum.
Viđ sjáum ađ allgott samband er á milli hámarksmetahlutarins og landsmeđalhitans. Hámarkshitametin eru líklega fleiri ţegar almennt er hlýtt í veđri.
Eftir ţví sem árunum fjölgar verđur erfiđara ađ slá metin 62 ţúsund. Ţrátt fyrir ţađ er á ţennan hátt hćgt ađ fylgjast međ veđurfarsbreytingum. Skyndileg breyting á veđurlagi á hvorn veg sem er - nú eđa í átt til öfga á báđa bóga kćmi fram viđ samanburđ viđ hegđan metanna síđastliđin 23 ár. - En ţví nenna nú fáir nema útnörd - eins og ritstjóri hungurdiska - varla ađ slíkt eftirlit verđi í forgangi hjá ţví opinbera (ţrátt fyrir tal um veđurfarsbreytingar).
Viđ skulum líka líta á línurit sem sýnir samband hámarksmetahlutarins og landsmeđalhitans.
Lárétti ásinn markar hámarksmetahlutinn, en sá lóđrétti međalhitann. Punktadreifin rađast vel og reglulega í kringum beina línu - ţví fleiri sem hámarkshitametin eru miđađ viđ ţau köldu, ţví hlýrra er áriđ. Fylgnistuđull er 0,92, nánast hćgt ađ mćla landsmeđalhitann međ ţví ađ reikna hlutfalliđ. En viđ skulum ekki venja okkur á ađ líta alveg hugsunarlaust á dreifirit sem ţetta - athugum t.d. ađ hlutur hámarksmeta getur ekki orđiđ hćrri en 1,0. Skyldi áriđ ţegar landsmeđalhiti nćr 6,14 stigum verđa algjörlega lágmarksmetalaust? - eđa áriđ ţegar landsmeđalhitinn fellur niđur í 2,7 stig - skyldu ţá nákvćmlega engin hámarkshitamet verđa sett?
Viđ ţurfum ekki ađ fara lengra aftur í tímann en til 1983 til ađ finna lćgri landsmeđalhita en 2,7 stig - og áriđ 1979 var hann ekki nema 1,8 stig. - Ţađ var ábyggilega ekki mikiđ um hámarkshitamet ţessi ár. - En ţau eru samt til og standa enn á ţeim fáu stöđvum sem athugađ hafa allan tímann. Sé eingöngu miđađ viđ ţćr stöđvar er hámarksmetahlutur ársins 1979 0,05, en 0,14 áriđ 1983. Bćđi árin lenda langt neđan viđ ţau sem viđ sjáum á línuritinu - viđ ţyrftum ađ breyta rammanum stórlega til ađ koma ţeim fyrir.
En fleira nördalegt kemur fram í metaskránum. Hvađa daga féllu flest dćgurmet? Svariđ sem gefiđ var í fyrra hefur breyst - hvađ hámarksmet varđar. Ţá var jóladagur 2005 á toppnum, hann átti 90 prósent hámarksmeta stöđvanna - en nýliđinn jóladagur, 2018, var nćgilega hlýr til ţess ađ stela metum fjölmargra stöđva - viđ ţađ féll jóladagur 2005 niđur af topp-10.
Nú eru tveir samliggjandi dagar, 25. og 26.febrúar 2013 á toppnum. Ţeir eiga 87 prósent af dćgurmetum ţessara daga. Viđ getum rifjađ upp hvađ hungurdiskar sögđu á sínum tíma (26.febrúar 2013):
Óvenjuleg hlýindi gengu yfir landiđ í dag (mánudag) og standa ţau fram eftir ţriđjudegi um landiđ austanvert og ţví ekki útséđ međ áframhaldandi met. Ţví met féllu, m.a. hefur hiti aldrei áđur orđiđ jafnhár í febrúar í Reykjavík. Kemur ţađ met ofan í janúarmetiđ á sama stađ. Merk tíđindi. - Nýtt dćgurmet fyrir landiđ var einnig sett í dag (15,3°C á Seyđisfirđi) - en talsvert vantađi upp á ađ landsmet febrúarmánađar (18,1 stig) vćri slegiđ. Ţađ er líka óvenjulegt ađ hvergi var frost á veđurstöđ á landinu í dag - ekki einu sinni á Gagnheiđi eđa Brúarjökli.
En enn er sami dagur á toppi lágmarksmetalistans, 30.apríl 2013, hirđir 96 prósent dćgurmeta ţess dags stöđvanna - hlutfallstalan var 94 prósent í pistlinum í fyrra - en eftir ţađ bćttust viđ stöđvar inn á fimmta ár og urđu ţarmeđ mettćkar - og hćkkuđu hlutfalliđ. Um ţetta merkilega kuldakast fjölluđu hungurdiskar - dögum saman - ţví kuldinn hélst í marga daga. Auđvelt er ađ fletta ţessum fróđleik upp - hafi einhver ţrek til.
Flokkur: Vísindi og frćđi | Facebook
Um bloggiđ
Hungurdiskar
Fćrsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 190
- Sl. sólarhring: 196
- Sl. viku: 2512
- Frá upphafi: 2413946
Annađ
- Innlit í dag: 178
- Innlit sl. viku: 2319
- Gestir í dag: 169
- IP-tölur í dag: 167
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri fćrslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.