Tuttugu dagar af október

Meðalhiti fyrstu 20 daga október í Reykjavík er 4,7 stig, -0,1 stigi neðan við meðallag áranna 1961-1990, en -1,2 neðan meðallags sömu daga síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 16.hlýjasta sæti (af 18) á þessari öld. Hlýjastir voru þessir sömu dagar árið 2016, en kaldastir 2008. Á langa listanum er hitinn í 85.sæti af 143. Hlýjast var 1959, +9,5 stig, en kaldastir voru sömu dagar árið 1981. Þá var meðalhitinn -0,4 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 20 daga mánaðarins 4,1 stig, +0,8 stigum ofan meðallags 1961-1990, en -0,7 neðan meðallags síðustu tíu ára.

Hiti er neðan meðallags síðustu tíu ára á öllu landinu, minnst á Vattarnesi, þar er vikið aðeins -0,1 stig, en kaldast að tiltölu er á Laufbala, vikið -1,9 stig.

Úrkoma hefur mælst 80,9 mm í Reykjavík það sem af er mánuði. Það er vel ofan meðallags. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 52,5 mm, og er það um 50 prósent ofan meðallags sömu daga.

Sólskinsstundir í Reykjavík hafa mælst 57,8 það sem af er mánuði og er það við meðallag.

Loftþrýstingur hefur verið með lægra móti það sem af er - aðeins 11 sætum frá botni 197-ára listans. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg120525a
  • w-blogg080525a
  • w-blogg070525b
  • w-blogg070525a
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 59
  • Sl. sólarhring: 328
  • Sl. viku: 1632
  • Frá upphafi: 2466192

Annað

  • Innlit í dag: 56
  • Innlit sl. viku: 1496
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 54

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband