1.3.2018 | 22:36
Úrkoma og vindur í febrúar
Úrkoma var með mesta móti í Reykjavík í nýliðnum febrúar. Sömuleiðis var vindur meiri en algengast er á landsvísu. Við lítum stuttlega á tvö línurit.
Það fyrra sýnir úrkomu í febrúar í Reykjavík frá 1885 til 2018, fáein ár vantar snemma á síðustu öld. Kvarðinn á lóðrétta ásnum er mm. Úrkoma mældist rétt tæpir 160 mm í febrúar nú og hefur ekki nema fáeinum sinnum mælst meiri - og ekki á þessari öld. Að vísu munar svo litlu á febrúar 2003 og nú að vart er marktækt. Við getum notað rauðu strikalínuna sem dregin er þvert yfir myndina við 150 mm til að átta okkur betur á tíðni slíkra mánaða.
Langmest mældist úrkoman í febrúar 1921 og einnig gríðarmikil í febrúar 1896. Ekki er að sjá neina marktæka leitni - en leitnilínan liggur þó aðeins upp á við. Þurrir febrúarmánuðir komu allnokkrir saman í klasa í kringum og upp úr 1940 og aftur á tímabilinu 1960 til 1966. Það er febrúar 1966 sem var þurrastur allra. Síðast var mjög þurrt í febrúar 2014 - margir muna þá þrálátu austan- og norðaustanátt sem þá ríkti og var oft umfjöllunarefni hungurdiska.
Seinni myndin sýnir meðalvindhraða í febrúar á landsvísu. Hann var mikill í þeim nýliðna, en hefur þó nokkrum sinnum verið meiri, síðast bæði 2014 og 2015, en annars var þessi almanaksmánuður yfirleitt hægviðrasamur á árunum frá 2005 til 2013 - en hægast var þó í febrúar 1977 - allmargir eldri lesendur hljóta að muna þann öndvegismánuð - einnig var sérlega hægviðrasamt í febrúar 1964 - ritstjórinn minnist þess mánaðar nú með sérstakri hlýju - þó hann geti ekki neitað því að hann var ekki mjög spennandi í hugum ungra veðurnörda á sínum tíma - og olli þannig séð vonbrigðum eftir mjög lofandi byrjun.
Ritstjóri hungurdiska telur 6 stormdaga á landsvísu í nýliðnum febrúar - það er með meira móti, voru reyndar jafnmargir í febrúar 2015 en þá þurfti að fara aftur til 1993 til að finna febrúarmánuð sem var jafngæfur á stormdaga. Fleiri en nú voru þeir hins vegar 1989, 1973 og 1954. Ritstjórinn heldur reyndar úti tvenns konar stormdagatali, annars vegar mælir hann snerpu illviðra - þ.e. hversu víða þeir koma við á landinu, en hins vegar hversu úthald þeirra er gott. Algengast er að dagar séu á báðum listum - en nú ber svo við að enginn hinna sex stormdaga nýliðins febrúar nær inn á úthaldslistann (ekki enn að minnsta kosti - því öll kurl eru ekki komin til grafar).
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 8
- Sl. sólarhring: 884
- Sl. viku: 2330
- Frá upphafi: 2413764
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 2149
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.