4.4.2017 | 22:51
Í leit að vorinu
Síðla sumars árið 2014 birtust sex pistlar á hungurdiskum undir fyrirsögninni Í leit að haustinu. Nú verður reynt að leita vors - í fáeinum pistlum. Sá fyrsti er nær orðrétt samhljóða fyrstu haustpistlunum - en ritstjóranum finnst í góðu lagi að rifja þá upp - langflestir lesendur löngu búnir að gleyma (ágætu) innihaldinu.
Í dag lítum við eingöngu á landsmeðalhita - reynum að finna vorinu stað í árstíðasveiflu hans. Grunnurinn er byggðarlandsmeðalhiti sem ritstjórinn hefur reiknað og nær nú til tímabilsins 1949 til 2016. Menn ráða því hvort þeir taka mark á tölunum.
Við lítum á nokkrar myndir (nærri því eins).
Lóðrétti kvarðinn sýnir hita - en sá lárétti árstímann og er hann látinn ná yfir eitt og hálft ár. Það er til þess að við getum séð allar árstíðir í samfellu á sömu mynd.
Árslandsmeðalhitinn er 3,6 stig. Dökku fletirnir ofan til á myndinni sýna þann tíma ársins þegar hiti er yfir meðallagi þess og þeir neðan við sýna kaldari tímann.
Eitt megineinkenni íslensks veðurfars er sú hversu lítill munur er á meðalhita einstakra mánaða á vetrum. Hitinn er næstum sá sami frá því um miðjan desember og fram til marsloka. Tilsvarandi sumarflatneskja stendur mun styttri tíma - og víkur meir frá ársmeðaltalinu. Þetta hefur þær afleiðingar að hiti er ekki ofan meðallags nema 163 daga ársins - en er aftur á móti undir því 202 daga. Gleðilegt - eða sorglegt - það fer væntanlega eftir lundarfari hvort mönnum þykir.
Það er 6. maí sem hitinn á vorin fer upp fyrir ársmeðaltalið - en 16. október dettur hann niður fyrir að að nýju. Við gætum skipt árinu í sumar og vetrarhelming eftir þessu og er það mjög nærri því sem forfeður okkar gerðu - ef við tökum fáeina daga af vetrinum til beggja handa og bættum við sumarið erum við býsna nærri fyrsta sumardegi gamla tímatalsins að vori og fyrsta vetrardegi að hausti.
En í þessari skiptingu er ekkert haust og ekkert vor. Vilji menn hafa árstíðirnar fleiri en tvær verður að skipta einhvern veginn öðru vísi.
Eitt af því sem kæmi til greina væri að nota vendipunkta á línuritinu - það er dagsetningar þar sem halli ferilsins breytist. Að minnsta kosti fjórir eru mjög greinilegir. Fyrst er til að taka á mörkum vetrar og vors, vetrarflatneskjunni lýkur greinilega um mánaðamótin mars/apríl, kannski 3. apríl - eftir það hækkar hiti óðfluga. Í kringum 15. júlí hættir hitinn að hækka, nær þá 10 stigum - og hin stutta sumarflatneskja tekur við. Staðbundið hámark er 8. ágúst og frá og með þeim 14. er hitinn aftur kominn niður í 10 stig.
Hitafall haustsins stendur síðan linnulaust þar til næsta vendipunkti er náð - 15. desember. Þá tekur hin langa vetrarflatneskja við. Við höfum hér fengið út árstíðaskiptinguna: Vetur 15. desember til 3. apríl, vor 3. apríl til 15. júlí, sumar 15. júlí til 14. ágúst, haust 14. ágúst til 15. desember. Þetta hljómar ekki mjög vel - sumarið orðið býsnastutt - á þó vel við í svartsýnisrausi samtímans.
Sé vel að gáð má sjá tvo vendipunkta til víðbótar - en erfitt er að negla þá niður á ákveðnar dagsetningar. Sá fyrri er um það bil 25. maí - þá hægir aðeins á hlýnuninni. Sá síðari er í kringum 15. nóvember - þá hægir á kólnun haustsins.
Við gætum svosem byrjað veturinn 15. nóvember og sumarið 25. maí, fundið hitann þessa daga og leitað að svipuðum hita vor og haust til að nota til að draga tímamörk á móti. Byrji sumarið 25. maí ætti það að hætta þegar svipuðum hita er náð í september. Sú dagsetning er 20. september. - Á móti vetrarlokum 3. apríl kemur þá vetrarbyrjun 15. desember - með svipaðan hita.
Þessi nýja skipan yrði því svo: Vetur 15. desember til 3. apríl, vor 3. apríl til 25. maí, sumar 25. maí til 20. september, haust 20. september til 15. desember. - Eða byrjar veturinn 15. nóvember?
Vendipunktaárstíðir gætum við kallað náttúrulegar - einhver umskipti eiga sér stað í náttúrunni á reglubundinn hátt.
Þegar þetta er skrifað er 4. apríl - vendipunktavorið 2017 rétt hafið. Við höldum leitinni að vorinu áfram síðar - og finnum fleiri skilgreiningar.
Í viðhenginu er allur pistillinn.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 5.4.2017 kl. 23:39 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.11.): 24
- Sl. sólarhring: 354
- Sl. viku: 2538
- Frá upphafi: 2411458
Annað
- Innlit í dag: 24
- Innlit sl. viku: 2177
- Gestir í dag: 24
- IP-tölur í dag: 24
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Skemmtilegar pælingar. Var ekki gamla norræna tímabilið býsna gáfulegt þegar kemur að tengja það við veðrið. Sex vetur og sex sumar eða fjórir vetur og fjórir sumar. Einmánuður og Harpa vor og Haustmánuður og Gormánuður haust. Miðsumar við upphaf Heyanna og miður vetur við upphaf Þorra. Árstíðarskipti kringum vor- og haustjafndægri. Mánaðarskipti á jafndægrum og sólstöðum en ekki 10 dögum seinna eins og núverandi tímatal gerir.
Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 5.4.2017 kl. 07:12
Trausti sæll. – Það, sem mig langar til að vita, er, hvenær síðasti frostdagur er að vori. Er hann mjög breytilegur og er hann nú mun fyrr en áður? – Má vera, þú hafir skrifað um þetta áður og bendir mér þá á það.
Kveðja
Ágúst H. Bjarnason
Ágúst H. Bjarnason (IP-tala skráð) 5.4.2017 kl. 19:51
Ágúst. Eitthvað hef ég skrifað um síðasta frost að vori - en það er langt síðan og rétt að athuga það betur. Annars er erfitt að búa til langar tímaraðir slíkra atburða nema fyrir einstakar stöðvar.
Trausti Jónsson, 6.4.2017 kl. 00:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.