8.11.2011 | 01:14
Hlýjasta loftið fer hjá
Þau óvenjulegu hlýindi sem hafa verið yfir landinu í dag - mánudag og verða yfir Austurlandi fram eftir þriðjudegi (8. nóvember) virðast því miður ekki ætla að skila sér með jafn óvenjulegum hætti niður á veðurstöðvar landsins. Staðbundin hitamet nóvembermánaðar hafa þó allnokkur fallið og þegar þetta er skrifað (um miðnætti aðfaranótt þess 8.) eiga þau eftir að falla á fleiri stöðvum. Hlýtt loft verður áfram yfir landinu - sérstaklega því austanverðu - næstu daga.
Á miðnætti (aðfaranótt 8. nóvember) var frostmark yfir Keflavíkurflugvelli í nærri 3 km hæð, langt ofan við hæstu fjöll á landinu. Það er svipað og það hefur hæst orðið áður í mælingum í nóvember. Enn hlýrra hefur trúlega verið austar. Tölvuspár minnast þar á 6 stiga hita í þessari hæð - en við tökum þeim tölum með varúð. Á miðnætti var hiti á öllum láglendisveðurstöðvum landsins 10 stig eða meira nema á litlu svæði frá Hornafirði og austur á sunnanverða Austfirði. Það er ekki algengt í nóvember.
Hitaskilin sem fóru á undan hlýja loftinu í dag voru óvenjuleg að því leyti að þau bjuggu til þrumuveður á Suðurlandi. Erfitt er að segja nákvæmlega hvernig á þrumuveðrinu stóð þótt nokkrar mislíklegar skýringar komi til greina. Rýna þarf nánar í gögn til að skera úr um það hvað var á seyði í þetta skipti. Þrumuveður samfara hitaskilum eru sjaldgæf - algengari þó á sumrin heldur en á vetrum.
Á Snæfellsnesi norðanverðu var gríðarlegt úrhelli - sennilega tengt sama fyrirbrigði og bjó til þrumuveðrið. Klukkustundarúrkoma mældist mest 19,8 mm í Grundarfirði og litlu minni í Ólafsvík. Úrkomuákefð af þessu tagi myndi trúlega valda umferðaröngþveiti í Reykjavík. Ákefðin í Reykjavík varð mest 4,3 mm á klukkustund (milli kl. 14 og 15). Þetta er svipað og mesta ákefð sem mælst hefur áður á sjálfvirku stöðinni í Reykjavík í nóvember - en höfum í huga að mæliröðin er ekki löng.
Víða hefur verið mjög hvasst á landinu. Á Hólmsheiði rétt ofan Reykjavíkur fór vindur í 29 m/s í kringum miðnætti. Það eru 11 gömul vindstig. Vindhviða fór ar í 40 m/s. Ekki var nærri því eins hvasst við Veðurstofuna en þar fóru hviður þó yfir 30 m/s og sömuleiðis á Reykjavíkurflugvelli. Reynslan sýnir að tjón fer að verða á fastamunum (eins og t.d. húsþökum) víða um bæinn ef vindhviður fara yfir 40 m/s. Lausamunir fjúka við minni vindhraða.
Viðbót 8.8. kl.10. Pistlinum fylgir nú viðhengi sem sýnir mesta vindhraða á sjálfvirkum veðurstöðvum í veðrinu. Hann nær til kl.9 að morgni þess 8. Hugsanlegt er að einhverjar stöðvar nái hámarki veðursins síðar um daginn.
Viðbót 8.8. kl.11. Hámarkshiti næturinnar var 20,6 stig á Skjaldþingsstöðum í Vopnafirði. Svo sýnist sem það sé nýtt dægurmet og hefði dugað í landsnóvembermet þar til í hitabylgjunum tveimur í nóvember 1999. Því miður er sjálfvirka stöðin á Skjaldþingsstöðum ekki tengd sem stendur.
Viðbót 8.8. kl.22. Ný stöðvamet nóvembermánaðar eru komin í sérstakt viðhengi. Í listanum eru einungis þær stöðvar sem athugað hafa í meir en þrjú ár. Nokkrar stöðvar sem athugað hafa tíu ár eða meira settu ný nóvembermet. Á sumum stöðvum komu metin fyrir nokkrum dögum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:07 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 88
- Sl. sólarhring: 154
- Sl. viku: 2009
- Frá upphafi: 2412673
Annað
- Innlit í dag: 85
- Innlit sl. viku: 1759
- Gestir í dag: 80
- IP-tölur í dag: 74
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.