Lengi má leita að metum og finna (nörðafærsla)

Hver skyldi hafa verið léttskýjaðasti (?) dagur landsins í júlímánuði? En sá skýjaðasti? Eða skyggnisversti - og besti? Rétt er að upplýsa það strax í upphafi að svo litlu munar á fjölmörgum dögum að svörin geta aldrei orðið nákvæmlega rétt auk þess skiptir máli hvernig reiknað er - en það verður ekki upplýst hér - ef maður galdrar eitthvað upp úr hatti - þá galdrar maður upp úr hatti. En það má þó upplýsa að reikningarnir ná aftur til 1949 - það ár meðtalið.

Koma þá dagarnir:

Dagur lágmarksskýjahulu er 13. júlí 1992 - meðalskýjahula var þá innan við 1/8. Eini júlídagurinn sem nær þeim árangri. Menn geta svo klórað sér í höfðinu og reynt að rifja þennan dag upp.

w-blogg230711

Svo vill til að gervihnattamynd er til frá þessum degi - og sannarlega má sjá heiðríkjuna yfir landinu. Þoka virðist vera á Húnaflóa og við Austfirði, en nær varla inn á land.

Mjög litlu munar á þessum ágæta degi og skýleysinu 4. júlí 1968 - en þá sólbrann ég mjög eftirminnilega - hef ekki brunnið jafnmikið síðan.

Skýjaðasti júlídagurinn er hins vegar sá 26. árið 1976 - rigningasumarið mikla á Suðurlandi og öndvegissumar nyrðra og eystra. Meðalskýjahula náði nærri því 8/8 hlutum, vantar 0,07 hluta upp á. Fleiri dagar koma í halarófu á eftir með litlu minni skýjahulu - aðeins skeikar hundruðustuhlutum.

Skyggnisbesti júlídagurinn á þessu tímabili er sá 13., árið 2001. Nokkuð var háskýjað sunnanlands þennan dag þótt skyggni væri afbragðsgott. Spurning hvort við munum nokkurn tíma næstu árin ná jafngóðu skyggni.

Verst var júlískyggnið á landinu þann 12. 1984, bæði dagurinn á undan og dagurinn á eftir eru á topp 10 skyggnisleysis, en rigningasumarið mikla á Suðurlandi 1984 byrjaði þá dagana á afskaplega lymskulegan hátt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Man vel eftir 4. júlí 1968. Fór þá til Þingvalla. En hver skyldi nú vera hlýjasti dagur sem mælst hefur á landinu að sólarhringsmeðaltali allra stöðva? Nokkrir dagar hafa réttarstöðu grunaðra í mínum huga en hvers skyldi vera sá eini rétti? Og hver skyldi hafa mesta hámarkshita allra stöðva? 

Sigurður Þór Guðjónsson, 23.7.2011 kl. 16:10

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Sigurður: Ég skal galdra það úr hattinum - ég fæ fleiri kanínur eftir helgina. En skrifaðu nú niður stöðu grunaðra áður en ákærulistinn birtist. Hvort svo ákærðir eru svo sekari heldur en grunaðir kemur ekki í ljós nema í réttarhöldum (ég var að horfa á gamlan Perry Mason þátt í sjónvarpinu).

Trausti Jónsson, 24.7.2011 kl. 00:55

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég hef nú ekki úr miklum meðalhitafarsrannsóknarlögreglugagnagrunni (lengsta nýyrði seinni ára) að moða, en gæti trúað að  31. júlí 1980  og 11. ágúst 2004 séu æði grunsamlegur hvað varðar háan meðalhita yfir allt landið sem er reyndar ansi stórt og hitafarsbreytilegt. Aðrir dagar sem ég gruna mjög um heitfenga græsku eru 30. júlí 1980 og 30. júlí 2008. Kannski eiga heitustu dagarnir kringum 20. júní 1949 sjens en um þá veit ég fremur lítið. Svo held ég að hinn lymskulega lítt áberandi 24. júlí 1981 sé nú ekki allur þar sem hann er séður. En kannski eru það einhvejrir allt aðrir dagar sem eru hlýjastir að landsmeðalhita. Gaman væri svo að vita hvernig heitustu dagarnir í hitabylgjunum í júní 1939 og júli 1944, 1908, 1911 og 1894 kæmu út ef hægt væri einhvern veginn að bera þá saman við okkar tíma. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 24.7.2011 kl. 14:34

4 identicon

4. júlí 1968 er eftirminnilegastur fyrir að þá kom í Stórhöfða Flosi Hrafn Sigurðsson við annan mann og settu upp síritandi vindhraðamæli. Þá sáust fyrst mestu hviðurnar.

Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 24.7.2011 kl. 16:49

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Það var gott að fá lista yfir þá grunuðu Sigurður. Ákæran kemur svo fljótlega. Þakka þér fyrir Óskar að minna á þennan merka atburð á Stórhöfða. Ég man daginn helst fyrir sólbrunann því daginn eftir tók ég bílpróf - hálfveikur og sviðinn. En lét mér að kenningu verða.

Trausti Jónsson, 25.7.2011 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Slide11
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8
  • Slide7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 63
  • Sl. viku: 1472
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1322
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband