Af lítilli háloftalægð

Undanfarna daga hefur nokkuð snarpur kuldapollur haldið sig við Norðvestur-Grænland. Nú er stuggað við honum og (efri) hluti hans fer til suðausturs um Ísland á sunnudaginn. Þetta gerist mjög hratt - en samt að mestu á hefðbundinn hátt. Vindur hér á landi snýst til suðvesturs á morgun (laugardag) - loftið er samt til þess að gera þurrt, úrkoma verður furðulítil. Síðan fer þetta kerfi yfir á sunnudaginn og vindur snýst um tíma til norðurs og það kólnar töluvert - alla vega um allt landið norðan- og vestanvert. 

En lítum nú á stöðuna í háloftunum.

w-blogg040725a

Kortið gildir síðdegis á sunnudag (6.júlí) og sýnir hæð 500 hpa-flatarins (heildregnar línur), hita í fletinum (litir) og vind (hefðbundnar vindörvar). Lægðin (kuldapollurinn) er yfir landinu norðaustanverðu og hreyfist hratt til suðausturs. Vestan við miðjuna er mjög snörp vindröst, um 40 m/s þar sem mest er. Vindur þessi nær ekki til jarðar nema þar sem fjöll geta gripið upp í hes rastarinnar og hugsanlega dælt niður vindsveipum. Það er nokkuð kalt í miðju lægðarinnar (um -27 stig). Eins og áður sagði verður nokkuð kalt í kjölfarið - aðfaranótt mánudags, en það gengur strax yfir - hlýrra loft tekur við. 

Þótt flestir verði lítið varir við þetta kerfi er það samt allrar athygli vert. Það getur verið sérstaklega gaman að fylgjast með skýjafari, bæði er tilefni til myndunar fjölbreyttra bylgjuskýja og svo má vera að við fáum að sjá „þverklósiga“, háskýjaband/bönd sem liggur samsíða háloftavindstrengnum - hver veit. Ritstjóri hungurdiska uppgötvar, sér til furðu, að hann hefur ekki enn birt pistil sinn um „þverklósigann“ og „klósigarótina“ þrátt fyrir að hafa átt hann á lager í nærri 20 ár. Skilur bara ekkert í hvað veldur þeirri gleymsku eða hiki. 

Lægðin fer eins og áður sagði hratt til suðausturs til meginlands Evrópu og veldur þar þrumuveðrum á þriðjudag eða miðvikudag - fer síðan aftur á norðlægari slóðir - kannski að hún komist alla leið í Norðuríshafið um eða eftir næstu helgi - og geti þar endurnýjað kraftana.  


Bloggfærslur 4. júlí 2025

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • w-blogg040725a
  • w-blogg020725c
  • w-blogg020725b
  • w-blogg020725a
  • w-blogg300625a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.7.): 22
  • Sl. sólarhring: 194
  • Sl. viku: 2198
  • Frá upphafi: 2481889

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1924
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband