28.6.2025 | 22:19
Dembur
Ritstjóri hungurdiska tók eftir því að milli kl.15 og 16 í dag (28.júní 2025) mældist úrkoma á Kálfhóli á Skeiðum 16,3 mm. Þetta er meira en áður hefur mælst á svo skömmum tíma á stöðinni. Næsta tala fyrir neðan er að vísu ekki mikið lægri, 15,2 mm sem mældust þann 10.ágúst árið 2009.
Línuritið er klippa af vef Veðurstofunnar - kvarðinn til vinstri sýnir uppsafnaða úrkomu í mælinum, en sú til hægri er 24 stunda úrkoma. Línuritið var gert eftir kl.21 þann 28. og sýnir að í dembum dagsins féllu allt um 25 mm, langmest milli kl.15 og 16. Fróðlegt verður að skoða 10-mínútna gildin líka - en það verður að bíða að sinni. Í þéttbýli - og í brattlendi geta dembur sem þessar beinlínis verið hættulegar, 16 lítrar á fermetra á klukkustund verða fljótt að stórum tölum á stærri fleti. Þar sem jörð tekur ekki við, svosem á stórum húsþökum, götum og bílastæðum verður um vanda að ræða - og í bröttum hlíðum verða skyndilega til miklir lækir sem geta hrifið með sér mold og grjót og orðið að skriðuhlaupum - sérstaklega þar sem atburðir sem þessir eru sjaldgæfir. Við eigum á lager nokkra slíka skaðaviðburði í brattlendi ofar í Árnessýslu - að vísu vitum við ekki hver úrkomuákefðin var í þeim tilvikum - kannski mun meiri en þetta.
Ratsjármyndir sýna að í dag gengu snarpar skúrir yfir Suðurlandsundirlendið, býsna tilviljanakennt. Ef til vill hefur ákefðin einhvers staðar verið meiri en þessi mæling sýnir. Kannski hitti þessi mæling bara einstaklega vel í - kannski var ekki um stórt svæði að ræða? Það veit ritstjórinn ekkert um - kannski hljóp bara einhver óeirð í mælinn?
Nú er kalt loft í háloftunum yfir landinu og loft því mjög óstöðugt. Næstu tvo til þrjá daga kólnar enn - en meira neðan til heldur en ofar. Því er ekki víst að skúramætti aukist - en samt verður að gera ráð fyrir dembum á víð og dreif næstu daga - reiknimiðstöðvar gera ráð fyrir slíku.
Bloggfærslur 28. júní 2025
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 47
- Sl. sólarhring: 613
- Sl. viku: 1699
- Frá upphafi: 2479738
Annað
- Innlit í dag: 42
- Innlit sl. viku: 1509
- Gestir í dag: 42
- IP-tölur í dag: 42
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010