27.6.2025 | 22:16
Víðáttumikil lægð
Það er ekki óalgengt á vetrum að eitt risastórt lægðasvæði nái yfir allt svæðið sem hið hefðbundna norðuratlantshafsveðurkort nær yfir. Það kemur líka fyrir að sumarlagi, en er samt talsvert sjaldséðara. Þannig er það nú.
Kortið gildir nú í kvöld, föstudaginn 27.júní 2025. Það má með góðum vilja sjá aðra lægðarmiðju, mjög grunna austur af Nýfundnalandi - og svo er sérstök lægð við Norðvestur-Grænland, utan korts, en annars má segja að sama lægðin nái yfir allt svæðið. Lægðin er í kringum 980 hPa í miðju, með lægsta móti á þessum árstíma - en þó ekki nærri meti. Hún hreyfist ákveðið til norðausturs og á annað kvöld að vera komin austur fyrir núlllengdarbauginn. Síðan á að taka við nokkuð óljós staða sem einkennist (að sögn reiknimiðstöðva) af mun grynnri og fyrirferðarminni lægðum.
Loftþrýstingur hækkar þá nokkuð hér á landi, en í þessum mánuði hefur þrálátur lágþrýstingur verið ríkjandi á landinu - meðaltalið er nú í flokki þeirra 15 lægstu frá upphafi samfelldra þrýstimælinga fyrir meir en 200 árum síðan. Kannski verður spennandi að fylgjast með lokasprettinum - en þar sem þrýstingur á að hækka nokkuð um helgina er ekki alveg ljóst í hvaða sæti mánuðurinn lendir að lokum.
Eins og áður hefur verið nefnt hér á hungurdiskum er líklegt að júní verði víða um land kaldari heldur en maí - og nú jafnvel á landsvísu. Almennt séð eru líkur á slíkri hegðan mánaðarhitans mun meiri norðaustanlands heldur en á Suðvesturlandi. Við þurfum að leita allt aftur til 1851 til að finna slíkan viðburð í Reykjavík og í Vestmannaeyjum þekkjum við engan. Svo virðist af þeim mælingum sem við eigum að tilvikið árið 1851 hafi átt við nær allt landið - nema hugsanlega Vestmannaeyjar. Þar var meðalhiti júnímánaðar hærri en í maí. Aftur á móti er greinilegt að hásumarhiti í Vestmannaeyjum var illa mældur á þessum tíma - og gæti það verið ástæða þess að júní þar sýnist hlýrri en maí árið 1851.
Svo vildi til nú að þótt methlýtt væri í maí um nær allt land átti það ekki við Vestmannaeyjar, þar var maíhitinn nú í aðeins fimmtahlýjasta sæti (af 149), 7,9 stig. Meðalhiti fyrstu 26 daga júnímánaðar á Stórhöfða er 8,1 stig - ólíklegt er að hann lækki næstu daga - tækifæri til afbrigðis fer því hjá Vestmannaeyjum að þessu sinni, en mikill möguleiki er enn fyrir hendi í Reykjavík. Þegar fjórir dagar lifa af júní er meðalhiti mánaðarins í Reykjavík 8,4 stig. Sýnist að meðalhiti fjögurra síðustu dagana verði að vera 12,8 stig til að mánuðurinn í heild nái þeim 9,0 stigum sem maí endaði í. Slíkt virðist nú vonlítið.
Í dag, 27.júní er svonefndur sjösöfendadagur. Ef rigndi þann dag mátti búast við rigningum í sjö vikur (getið í Þjóðsögum Jóns Árnasonar). Þessi trú er, eins og mörg önnur, innflutt vara. Engin ástæða samt til að fella þennan dag úr Almanaki Háskólans eins og gert hefur verið.
Bloggfærslur 27. júní 2025
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 66
- Sl. sólarhring: 363
- Sl. viku: 1569
- Frá upphafi: 2479131
Annað
- Innlit í dag: 62
- Innlit sl. viku: 1382
- Gestir í dag: 62
- IP-tölur í dag: 62
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010