Hlaupið yfir árið 1987

Árið 1987 var lengst af mjög hagstætt. Hlýtt var í veðri miðað við það sem verið hafði um hríð, á landsvísu frá 1964. Tíð var mjög hagstæð og hlý í janúar, sama má segja um febrúar. Mars var hagfelldur framan af, en síðan varð óhagstæðara um tíma, einkum fyrir norðan. Í apríl var allgóð tíð, einkum norðaustanlands. Maí var einnig talinn góður, einkum þó síðari hlutinn, en þótti full þurr. Í júní töfðu þurrkar sprettu, en tíð var annars stillt og góð. Júlí var mildur og vætusamur. Ágúst þótti hagstæður um land allt. September var vætusamur eystra, en mjög hagstæður á Suður- og Vesturlandi. Uppskera úr görðum var óvenju góð. Október var talinn óhagstæður norðaustanlands, en hagstæður syðra. Nóvember og desember voru hlýir og hagstæðir, í desember sást grænn litur í túnum.

Í textanum hér að neðan er leitast við að rifja upp helstu veðurviðburði ársins, oftast með beinum tilvitnunum í texta frétta- og dagblaða sem leitað er til með hjálp timarit.is. Í fáeinum tilvikum hafa augljósar prentvillur verið leiðréttar og stafsetningu í stöku tilviki hnikað til - vonandi að meinalausu. Sömuleiðis eru textar alloft styttir. Auðvelt ætti að vera að finna frumgerð þeirra. Að þessu sinni (eins og oftast hin síðari ár) er mestra fanga að leita hjá Morgunblaðinu, ritstjóri hungurdiska er að vanda þakklátur blaðamönnum fyrir þeirra hlut. Talsvert var um óhöpp á sjó, landi og í lofti, skip strönduðu hvert á fætur öðru og flugvélum hlekktist á og þær fórust. Flest þessara slysa voru annað hvort ótengd veðri eða aðeins óbeint tengd því. Ekki eru öll nefnd í textanum hér að neðan. Þó skal þess getið að 9 menn fórust á sjó á árinu. 

Janúar var hlýr og hagstæður hér á landi, en sérlega kalt var í norðanverðri Evrópu og um hríð einnig vestur í Bandaríkjunum. Um þessa stöðu fjallaði ritstjóri hungurdiska í greinarstúf sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 7.febrúar 1987 - og aðgengilegur er á timarit.is. Suðlægar áttir voru ríkjandi mestallan mánuðinn eftir fyrstu vikuna og lengst af frostlaust á láglendi. Lítið var um slæm illviðri, helst var það dagana 16. til 19., en þá fóru tvær allkrappar lægðir til norðurs fyrir vestan landið. 

Slide1

Kortið sýnir meðalhæð 500 hPa-flatarins (heildregnar línur), þykkt (daufar strikalínur) og þykktarvik (litir) í janúar 1987. Eindregin sunnanátt einkennir mánuðinn með gríðarlegum hlýindum í háloftunum við Ísland og Grænland austanvert. Aftur á móti er sérlega kalt í austri. Þessi kuldi sló sér um tíma vestur um alla Skandinavíu og allt til Bretlands.

Slide2

Kortið sýnir hæð 500 hPa-flatarins (heildregnar línur) og þykktina (litir) þann 12.janúar 1987. Óvenjuhlýtt var þá á Íslandi, en sérlega kalt á Bretlandseyjum. Mun vera einhver minnsta þykkt sem þar hefur sést um langt skeið (<4980 metrar í kjarna kuldapollsins).  

Morgunblaðið segir frá stöðunni 14.janúar:

Á meðan miklar frosthörkur hafa ráðið ríkjum á meginlandi Evrópu hefur veðurfar hér á landi verið óvenju milt, og er útlit fyrir að veður haldist svo allt fram á næstu helgi. Að sögn Markúsar A. Einarssonar á Veðurstofunni stafa kuldarnir á meginlandinu af mikilli hæð yfir Skandinavíu, og í gær þurfti að leita allt suður til Spánar til að finna hitastig yfir frostmarki. Mild suðlæg átt hefur verið ríkjandi á hér á landi. Markús sagði að veðurblíðan hér undanfarna daga væri ekkert einsdæmi þó miðað væri við árstíma. Sagðist Markús ekki sjá fram á breytingar í veðri í Evrópu. Hæðin yfir Skandinavíu væri mikil og sterk og því væri ekki mikilla breytinga þar að vænta.

Þennan dag (12.) var nokkuð stríð suðaustanátt suðvestanlands. Morgunblaðið segir frá þann 14.:

Selfossi. Stór vörugámur fauk af gámaflutningabíl úr Reykjavík, sem var á leið austur fyrir fjall á mánudaginn. Gámurinn sem er 3 tonn á þyngd tókst á loft í sterkri vindhviðu sem skall á bílnum á móts við Skíðaskálann í Hveradölum.

Síðdegis þann 16. kom djúp lægð á norðurleið inn á Grænlandshaf. Hún olli landsynningsveðri hér á landi. Það gekk þó fljótt yfir. Í kjölfarið kom kröpp lægð á miklum hraða sunnan úr hafi og fór norður með Vesturlandi að kvöldi laugardagsins 17. og aðfaranótt 18. Olli veðrið nokkru tjóni sem blöðin greina frá næstu daga. 

DV segir 19. janúar:

Krani valt á hliðina þar sem hann stóð á hafnarbakkanum í Hafnarfirði í fyrrinótt. Urðu vindhviðurnar honum ofviða og því fór sem fór. Menn brugðu skjótt við og settu á hann bönd til að hann fyki ekki í sjóinn í óveðrinu.

Ófáar þakplötur lögðu af stað í Keflavík í óveðrinu sem gekk yfir í fyrrinótt [18.]. Til dæmis fauk járn af þrem húsum. Var björgunarsveitin Stakkur kölluð út til aðstoðar við að festa plöturnar. Þá fauk bóma á byggingarkrana til og féll til jarðar. Ekkert slys varð á fólki en kraninn er talsvert skemmdur. Í gærmorgun varð rafmagnslaust í klukkutíma í Keflavík. Stafaði það afbilun í einangrun í lögn upp á Keflavíkurflugvöll. Var talið að selta hefði orsakað bilunina. -JSS

Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni í Kópavogi í fyrrinótt [18.] vegna óveðursins. Á tímabilinu frá klukkan 22:30-03:00 bárust um 20 útköll vegna foks. Við Engihjallann tókst biðskýli SVK á loft og fauk um koll. Tilkynnt var um þrjú rúðubrot og ýmislegt lauslegt fauk. -JSS

Morgunblaðið segir af illviðrinu í nokkrum pistlum 20.janúar:

„Óveðrið hófst um ellefuleytið og stóð í svona fjóra tíma. Það var gjörsamlega brjálað veður og hefði gengið sjálfsmorði næst að hætta sér út í það. Þegar veðrinu slotaði og ég gat loksins gengið út hafði fárviðrið sópað öllum þakplötunum af fjárhúsinu og hálfu þakinu af litlum geymsluskúr. Kindurnar fann ég allar i dyngju trylltar af ótta yfir djöfulganginum. Átta þeirra höfðu orðið undir í látunum og kafnað,“ sagði Hjörtur Þorsteinsson bóndi á Eyri í Kjós. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fárviðri veldur Hirti og eiginkonu hans Kristínu Jónsdóttur miklu tjóni. „Fyrir fimm árum kom hérna samskonar veður, sem feykti öllu þakinu af hlöðunni. Þá tókst líka á loft gaffall af dráttarvél, úr níðþungu járni og endasentist langa leið. Þessum veðrum virðist slá svona niður á þessum slóðum og verst er sunnanáttin,“ sagði Hjörtur. Hann kvaðst ýmsu vanur í slíkum veðraham. „Skömmu eftir að ég hóf minn búskap gerði svona veður snemma dags. Ég var þá staddur úti við ásamt Stefáni Stephensen bílstjóra og horfðum við upp á þegar lítil hlaða og skúr sem í voru geymd sjö hross tókst á loft og feyktist um tvö hundruð metra leið þar sem byggingarnar skullu niður. Ég var auðvitað búinn að afskrifa hrossin þegar þau komu allt í einu hlaupandi út úr brakinu,“ sagði Hjörtur. Hann sagði að á sunnudagsmorgun hefði fólk af næstu bæjum komið til hjálpar við að koma þaki yfir fjárhúsið. Tókst að fá efni úr Reykjavík og undir kvöldið var féð komið undir þak. Hjörtur sagði að hann hefði slæma reynslu af tryggingarfélögum. Hreppstjóri hefði tjáð sér að fjárhúsið væri tryggt, en hann hefði áður orðið fyrir tjóni án þess að fá það bætt.

Borgarnesi. Töluvert tjón varð í Borgarnesi er óveðrið gekk yfir aðfaranótt sunnudagsins [18.]. Þakjárn fauk af húsum, rúður brotnuðu og bílar skemmdust. Veðurofsinn náði hámarki upp úr miðnætti, en versta veðrið stóð í um eina klukkustund. Menn úr slökkviliði Borgarness voru að störfum fram eftir nóttu ásamt húseigendum og unnu þeir að því að hindra frekara fok. Mesta tjónið varð á verslunarhúsi við Borgarbraut, þar sem verslun Jóns og Stefáns er til húsa. Þar fauk mest allt járn og þakpappi af. Nokkrir bílar grjótbörðust illa og í sumum þeirra brotnuðu einnig rúður. Þá fuku bílar til á bílastæðum og urðu minniháttar skemmdir á þeim er þeir lentu utan í öðrum bílum. Að sögn Daníels Oddssonar umboðsmanns Samvinnutrygginga í Borganesi varð tjón á nokkrum bæjum í Borgarfirði. Var þar aðallega um að ræða járnplötufok af útihúsum og vélageymslum. - TKÞ

Gljávíðirinn í Víkurkirkjugarði við Aðalstræti var fjarlægður í gær. Tréð laskaðist mikið í óveðri fyrr í mánuðinum og fárviðri á sunnudagsnótt reið því að fullu. Stofninn brotnaði niður við rót og tréð lagðist á hliðina. Að sögn Jóhanns Pálssonar garðyrkjustjóra borgarinnar verður nýr gljávíðir gróðursettur í hans stað innan tíðar. Sá er raunar eingetið afkvæmi þess fallna, eitt tugþúsunda slíkra í borginni. Elli varð trénu að falli. ... Í Víkurkirkjugarði hefur hvert tréð fallið af öðru undanfarin ár. Þar er nú tígulegur silfurreynir einn uppistandandi og ber sig vel þótt aldargamall sé, að sögn Jóhanns.

Grindavík. Mikið hvassviðri gerði í Grindavík á laugardagskvöldið með þeim afleiðingum að maður slasaðist alvarlega og járnplötur fuku af tveim fyrirtækjum. ... Járnplötur voru byrjaðar að fjúka af húsnæði Fiskimjöls og lýsis svo og salthúsi Hraðfrystihúss Grindavíkur, en annars staðar voru smávægilegar skemmdir. Tókst að koma í veg fyrir að alvarlegt tjón hlytist af með fyrirbyggjandi aðgerðum. Kr. Ben.

Barðaströnd. Aðfaranótt sunnudags 18. þessa mánaðar gerði hér aftakaveður af suðvestri. Svo hvasst var að á bænum Haga fauk bíll af bílastæði og stórskemmdist. Fauk hann um 50 metra vegalengd. Viðar urðu smáskemmdir vegna veðurofsans. SJÞ

DV heldur áfram 20.janúar:

Það fór illa fyrir Víðismönnum í fárviðrinu nú um helgina. Á síðasta sumri fjárfestu þeir í þessum líka forláta áhorfendapöllum við knattspyrnuvöll sinn. Áhorfendapallarnir höfðu reyndar gegnt menningarsögulegu hlutverki en þeir voru notaðir í sumar á leiksýningum við Rauðhóla. Nú um helgina vildi hins vegar svo illa til að pallarnir fuku um koll enda var veður vont á Suðurnesjum um helgina. Þetta var tilfinnanlegt tjón fyrir Víðismenn en þeir höfðu greitt um 300.000 kr. fyrir pallana. En það var meira sem þurfti undan að láta fyrir veðurofsanum. Markataflan beygðist í keng og það þó að hún væri borin uppi af sterkum járnbitum. -SMJ/emm

Skagablaðið segir af minniháttar tjóni á Akranesi 21.janúar:

Eitthvert tjón varð hér á Akranesi af völdum óveðursins sem gekk yfir seint á laugardagskvöld. Engar meiriháttar skemmdir munu þó hafa orðið en Björgunarsveitin Hjálpin var kölluð út er verst lét vegna foks á járnplötum.

Víkurfréttir bæta smávegis við 22.janúar:

Í óveðrinu aðfaranótt laugardags [?] var mikil örtröð hjá lögreglu og björgunarsveitum í Keflavík og Grindavík. Tveir menn slösuðust, þar af annar er fiskkar fauk á hann í Grindavík, og kona, sem handleggsbrotnaði í Keflavík. Tjón varð mest er byggingakrani brotnaði í tvennt og er 30-40 metra girðing fauk við nýju sundmiðstöðina í Keflavík.

Veðráttan segir að þann 24. hafi tjón orðið í Eyjafirði í ofsaveðri. Grunn, en kröpp lægð fór hratt til austurs fyrir norðan land og olli vestanátt. 

Dagur segir af svellalögum nyrðra 26.janúar:

„Hér í Suður-Þingeyjarsýslu er þó nokkuð um svell á túnum og er ástandið sérstaklega slæmt í Fnjóskadal og Kinn. Svellin hafa verið lengi og ef þau fara ekki að minnka þá horfir þarna til vandræða,“ sagði Stefán Skaftason búnaðarráðunautur. Eins og fram hefur komið er mikið um svellalög víða í Eyjafirði og eftir þessu að dæma er ástandið ekki betra fyrir austan. Nú er spáð miklum hlýindum næstu daga og vonaðist Stefán til þess að þá færi að ganga verulega á svellalögin. Hann sagði að víða væri farið að sjást í auðan blett en í Fnjóskadal væri mjög þykkt svell. Ef þessari ánauð fer ekki að létta af túnunum má búast við stórfelldum kalskemmdum í sumar. Aðspurður sagði Stefán að ekki hefði verið teljandi kal síðasta sumar en sprettan samt frekar léleg. Heyin væru engu að síður góð en menn hefðu ekki safnað neinum umframbirgðum. „En það er alveg nauðsynlegt að svellin fari af túnum ef ekki á að verða verulegt kal í vor,“ sagði Stefán að lokum. SS

Morgunblaðið lofar tíðina 27.janúar:

Góð tíð um allt land að undanförnu hefur haft mjög örvandi áhrif á verklegar framkvæmdir og hefur þeim miðað áfram sem um hásumar væri. Einkum hafa jarðvinnuframkvæmdir og aðrar byggingarframkvæmdir gengið vel og eru verkáætlanir víða á undan áætlun. „Þetta sumarveður hefur gert það að verkum að afköst eru mun meiri en menn eiga að venjast á þessum árstíma," sagði Pálmi Kristinsson, framkvæmdastjóri Verktakasambands íslands, er hann var spurður um áhrif góðviðrisins á starfsemi verktaka. „Það má segja að byggingarvinna og steypuvinna sé eins og á sumrin. Það er steypt á hverjum einasta degi, en venjulega eru menn vanir því að vinnustaðurinn sé frosinn á þessum árstíma. Af þessu leiðir að framkvæmdir eru víða komnar langt á undan áætlun.

Atburðarás við Kröflu var orðin löng, 12 ár voru frá upphafi hræringa, en þrjú ár frá síðasta gosi. Þó höfðu menn enn áhyggjur því enn varð vart við landris, en ekkert gos varð og virknin lognaðist smám saman út af. Dagur segir frá 2.febrúar:

Undanfarna tvo mánuði hefur land við Leirhnjúk risið jafnt og þétt, samtals um 12 sentímetra. Landið er nú orðið jafnhátt og það var fyrir síðasta gos í Kröflu. Þó viðmælendur blaðsins í Mývatnssveit vildu ekki gera mikið úr hættunni á gosi virðist margt benda til þess að tíunda Kröflugosið gæti orðið staðreynd á árinu. Ármann Pétursson sem hefur eftirlit með hæðarmælum á svæðinu sagði að hraði landriss hefði aukist nokkuð fyrir helgina en erfitt væri að draga ályktanir strax meðal annars vegna þess að frostspenna í jörðu væri mikil. Birkir Fanndal verkstjóri við Kröfluvirkjun tók í sama streng og taldi ekki að vænta stórtíðinda á næstunni. Birkir sagði að eftir því sem gosunum fjölgaði virtist landið þola meiri teygju og því þyrfti það ekki endilega að enda með gosi þó að land væri þetta hátt. ET

Tíð var mjög hagstæð í febrúar, illviðri fátíð og snjólítið var. Jafnvel sást votta fyrir gróðri. En veður var þó ekki jafngott alla daga og dag og dag spilltist færð á heiðum. 

Morgunblaðið segir fréttir að vestan 10.febrúar:

Breiðuvík. Janúarmánuður hefur verið með eindæmum góður, mikil hlýindi, snjólaust og jörð að verða klakalaus. Þann 27. janúar tók ég upp rófur, sem eftir urðu í garðinum í haust og voru þær óskemmdar. Slíkt mun ekki hafa gerst hér áður. Jörð er að byrja að lifna. F.G.L.

Alautt var um landið sunnanvert og jörð að þorna. Sinueldar komust á kreik. Morgunblaðið  segir frá 17.febrúar:

Borg, Miklaholtshreppi. Svo óheppilega vildi til á föstudaginn [13.] að eldur komst í sinu í landi Miklaholtssels. Þar eru víðáttumiklir flóar og barst því eldurinn brátt um allstórt svæði. Um nóttina var unnið að slökkvistörfum og tókst að hefta útbreiðslu eldsins þegar hann átti skamman veg að húsunum í Syðra-Skógarnesi. Ekki er fullkannað hversu mikið tjón hefur orðið á varnarlínu sauðfjárveikivarna sem er á þessu svæði sem eldurinn fór um. Eldsins varð vart á föstudagsmorgun. Er líða tók á daginn herti vindinn og um leið magnaðist útbreiðsla eldsins verulega. Rétt fyrir miðnætti lægði svo aftur og var talið að ekki væri mikil hætta. Um kl. 5:30 á laugardagsnótt hafði hvesst meira. Var þá beðið um hjálp frá Miklaholti. Atti eldurinn þá stuttan spöl að húsum þar. Tíu menn mættu fljótlega og gátu þeir ráðið niðurlögum eldsins gagnvart þessum húsum, en þá var eldurinn kominn langleiðina að Syðra-Skógarnesi. Var síðan fylgst vel með útbreiðslu eldanna allan laugardaginn en á sunnudagskvöld lægði verulega. Mikið frost var þá um nóttina og héla myndaðist á jörðunni. Allir eldar voru dauðir á sunnudagsmorgun. Páll.

Jarðskjálftahrina gekk yfir á Reykjanesi. Morgunblaðið 24.febrúar:

Aðalupptök jarðskjálftanna, sem gengu yfir Reykjanesskaga aðfararnótt síðastliðins sunnudags [22.], voru vestast á skaganum að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings. Tvisvar áður, árin 1967 og 1977 hafa orðið jarðskjálftar á nesinu af svipuðum styrkleika og með upptök á sömu slóðum. „Þetta voru mjög sterkir kippir, með upptökin aðallega við Reykjanestá, miðja vegu milli Eldeyjar og lands en náðu einnig inn í land,“ sagði Ragnar. Um eitthundrað jarðskjálftar mældust í hrinunni og voru flestir 2 stig eða meira á Richter-kvarða. Tveir til þrír kippir við Reykjanestánna austanverða, voru langstærstir og mældust þeir um 4,5 stig. Jarðskjálftarnir stóðu fram til klukkan átta á sunnudagsmorgun en síðan hefur orðið vart við eðlilega eftirverkanir. Á sama tíma mældust smáskjálftar í Henglinum að sögn Ragnars. Í jarðskjálftahrinunni árið 1967 áttu sér stað breytingar á jarðhitasvæðum en upptök skjálftanna voru þá skammt norðaustur af Grindavík og fundust snörpustu kippirnir þar og í Reykjavík og nágrenni. Tíu árum síðar varð skjálftanna mest vart við Reykjanesvita og er haft eftir Birni Kára Björnssyni vitaverði í samtali við Morgunblaðið, að allt hefði dottið niður úr hillum nema það sem hann hafði sjálfur náð að taka niður. Ekkert tjón varð þá á mannvirkjum frekar en í síðustu hrinu.

Blíðviðrið hélt áfram allan fyrri hluta mars, en þá snerist heldur til norðlægari átta, kólnaði heldur. Allkröpp lægð fór til norðurs fyrir vestan land þann 5. án þess að valda tjóni. Þann 16. kom mun kaldara loft að landinu úr vestri og norðri. Nokkuð snörp smálægð fór hratt til austurs fyrir sunnan land þann dag og dýpkaði síðan mikið yfir Norðursjó. Allmikill vindstrengur kom þá yfir landið úr norðri þann 17. og 18. Kröpp smálægð sat við Suðurland og olli snjókomu þar - en fór síðan á eftir aðallægðinni. Önnur smálægð fór til suðvesturs skammt fyrir suðvestan land þann 19. og 20. Vindur snerist síðan um hríð til austurs og svo aftur til norðausturs. 

Dagur segir frá 19.mars:

Leiðindaveður var víðast hvar á Norðurlandi í gær, allhvöss norðanátt, éljagangur og skafrenningur. Stundum sást varla á milli húsa og sums staðar féll skólahald niður samkvæmt fregnum úr Þingeyjarsýslu. Þá lágu flugsamgöngur niðri, a.m.k. fram eftir degi.

Morgunblaðið segir frá snjókomu í Vestmannaeyjum í pistli 19.mars:

Vestmannaeyjum. Eyjabúum brá illilega i brún er þeir risu úr rekkju á þriðjudagsmorgun [17.]. Miklum snjó hafði kyngt niður um nóttina og voru allar götur ófærar. Eftir hlýindi og milda tíð undanfarið hafði veturinn komið á einni nóttu. Hnédjúpur snjór var á öllum götum og snjódýptin mun meiri þar sem dregið hafði í skafla. Lögreglan og hjálparsveitir voru í önnum við að aðstoða fólk og flytja til vinnu, einkum í úthverfum, þar sem ófærðin var mest. Starfsmenn Áhaldahússins hófust þegar handa með öllum tiltækum tækjakosti að ryðja snjó af helstu götum. Hvassviðri var og því mikill skafrenningur. Veðurhæðin var mest um fjögurleytið um morguninn, spænurok og svartabylur. Hætta varð við loðnulöndun þar sem bifreiðastjórar, sem sáu um að aka loðnuhrognakörum til hreinsunarstöðvar, sáu ekki út úr augum í kófinu og hætta var á ákeyrslum. Netabátar sem hugðust vitja neta sinna undir morguninn sneru við í hafnarmynninu því þar var skyggnið glórulaust. Brottför Herjólfs tafðist lítillega. Uppúr klukkan átta fór að draga úr veðrinu og undir hádegið var orðið sæmilega greiðfært um allar helstu umferðargötur bæjarins. Langt er síðan svona mikinn snjó hefur fest á Heimaey. — hkj.

Langversta veður ársins gerði um mánaðamótin mars/apríl. Eftirminnilegt ritstjóra hungurdiska. Aðdragandinn var merkilegur - en sígildur. 

Slide3

Gríðarkalt loft kom að Grænlandi úr vestri. Jökulhvelið stöðvaði framrás þess að hluta, en hluti þess fór yfir jökulinn og steyptist niður á Grænlandshaf. Kortið sýnir stöðuna rúmum tveimur sólarhringum áður en veðrið mikla gekk yfir. Svo vildi til að á sama tíma var mjög hlýtt loft í framrás langt suður í hafi (alveg neðst á kortinu). Oftast fara kaldar og hlýjar sóknir sem þessar einhvern veginn á mis, en svo varð ekki nú. 

Slide4

Sjávarmálskortið að ofan gildir 6 stundum síðar en háloftakortið. Við sjáum allmikla og kalda lægð á Grænlandshafi beina útsynningshryðjum til landsins. Syðst á kortinu er hlýja lægðin - örin sýnir síðan leið hennar næstu tvo daga (gróflega). 

Svo vildi til að fyrsta verkfall veðurfræðinga hófst einmitt á miðnætti daginn sem veðrið skall á. Kvöldið áður var ekki varað við veðrinu, en þó gert ráð fyrir allhvössum norðanvindi með éljum síðdegis á þriðjudeginum. Neyðarvakt var á Veðurstofunni í verkfallinu og nóttina fyrir veðrið var gefin út stuttorð stormviðvörun fyrir miðin frá Vestfjörðum og austur um. Viðvörun um sterkari vind en það kom ekki fyrr en veðrið var skollið á af fullum þunga. Tölvuspár höfðu gert ráð fyrir því að lægðin rynni hjá á tíðindalítinn hátt, fullt afl hennar kom ekki fram í þeim - og ekki í spám Veðurstofunnar. Nánast fullvíst má telja að tölvuspár nútímans myndu ná þessu illviðri mun betur. 

Slide5

Daginn fyrir illviðrið var kalda lægðin tekin að grynnast, en sú hlýja komin í mikinn vöxt. Ljóst var að hún myndi fara fyrir austan land, sem hún líka gerði, en hins vegar tók á sig slaufu er fullri dýpt varð náð. Það gerðist skammt undan Norðausturlandi um miðjan dag þann 31. 

Slide6

Kortið gildir kl.18 þriðjudaginn 31.mars. Lægðin er skammt undan Melrakkasléttu. Fárviðri er þar við ströndina, sannkallað gjörningaveður, má telja mikla heppni að það stóð ekki lengi. 

Slide7

Íslandskortið gildir kl.15 þennan dag. Þá var fárviðri á norðausturhorni landsins og nokkuð hvasst vestur eftir Norðurlandi, en í raun besta veður um landið sunnan- og vestanvert. Svo vildi til að ritstjóri hungurdiska var einmitt þennan dag staddur á jarðarför við Stafholtskirkju í Borgarfirði í köldu, stilltu og björtu veðri. Blikubakki var yfir, en í vestri sást út fyrir hann.

Slide8

Veðrið náði hámarki milli kl.15 og 18. Kortið að ofan sýnir stöðuna kl.18. Þá er 18 hPa munur á þrýstingi á Raufarhöfn og Akureyri, 23 hPa munur á þrýstingi á Raufarhöfn og Bergstöðum í Skagafirði og um 30 hPa yfir landið í heild. 

Daginn eftir fóru að berast fregnir af tjóni og vandræðum. Morgunblaðið segir af veðrinu 1.apríl:

Aftakaveður var á Akureyri og nágrenni í gærdag [31.]. Lögreglan hafði í nógu að snúast við að aðstoða ökumenn, sem voru fastir á bílum sínum hér og þar um bæinn og við að aka gangandi veg- farendum á leiðarenda. Félagar í Hjálparsveit skáta og Flugbjörgunarsveitinni voru kallaðir út til að aka börnum heim úr skólum og af barnaheimilum.

Veður var allra verst í Síðuhverfi og Lundahverfi, þar sem skyggni var oft ekki meira en svo að menn sáu varla fram á vélarhlíf bifreiðar sinnar þegar ekið var um. Skyggni varð fljótt varla meira en einn metri. Síðari hluta dags var sumstaðar orðið illfært fyrir litla bíla. Þá var algeng sjón að sjá vegfarendur aðstoða bílstjóra við að losa bifreiðir úr sköflum. Mikið var um að menn skildu bifreiðir sínar eftir á víðavangi og færu fótgangandi heim.

Mikið hvassviðri skall á á Norðurlandi í gær og fór vindhraðinn sumstaðar upp í 11-12 vindstig. Ofsaveður er það þegar vindhraði fer í 11 vindstig, en 12 vindstig, eða 64 hnútar, er fárviðri. Skemmdir urðu víða á mannvirkjum, en engar fregnir hafa borist af slysum á fólki. Veðurstofan sendi út aðvörun í gær um að von væri á illviðri, en þar sem veðurfræðingar eru nú í verkfalli sinna þeir aðeins neyðarþjónustu.

Á Kópaskeri var vindhraðinn einna mestur og mældist vindhraði á flugvellinum þar 72 hnútar í verstu hviðunum. Rafmagnslaust var í bænum í gær og hélt fólk sig að mestu heima. Fjórar trillur á bátalæginu í Leirhöfn á Melrakkasléttu sukku og þak fauk af fjárhúsum við bæinn Miðtún. Þó tókst að koma fénu undir þak í nálægri hlöðu. Þá fuku þakplötur af sláturhúsinu á Kópaskeri og skemmdir urðu á hesthúsi við bæinn Hvol. Loks fauk skemma í eigu laxeldisstöðvarinnar Ísnó að Lóni. Veðrið skall á um kl.14 og var skólahald í bænum eðlilegt og börn komust klakklaust heim.

Símasambandslaust var við Þórshöfn á Langanesi fram á kvöld og geisaði þar fárviðri. Rafmagnslaust var í bænum frá því um miðjan dag og fram á kvöld, en þá kom rafmagn aftur í hluta bæjarins. Lögreglumaður lýsti veðrinu sem „ruddaveðri" og sagði illmögulegt að komast milli húsa. Plötur fuku af húsþökum víða um bæinn og íbúar í einu húsi urðu að yfirgefa það vegna skemmda á þaki. Björgunarsveitin hafði í nógu að snúast og var á vakt í nótt. Engin slys urðu á mönnum á Þórshöfn fremur en annars staðar.

Á Raufarhöfn var veður svipað, en símasambandslaust var við bæinn í gærkvöldi. Lögreglan á Húsavík sagði í gærkvöldi að ástandið væri að færast í eðlilegt horf og svo virtist sem veðrið væri að færast austur yfir. Þak fauk af bifreiðaafgreiðslunni í bænum, valt niður í bakgarð og að hluta á næsta hús. Það hús slapp þó án teljandi skemmda. Danskt flutningaskip losnaði frá bryggju og rak inn í smábátahöfnina, en björgunarsveitinni tókst að binda það aftur við bryggju án þess að teljandi tjón hefði hlotist af. Fólk á ferð milli Akureyrar og Húsavíkur varð að láta fyrirberast á bæjum á leiðinni, því mikið fjúk hamlaði för þess. Að sögn lögreglunnar bíður fólkið þess i góðu yfirlæti að veðrinu sloti.

Lögreglan á Siglufirði giskaði á að vindhraðinn þar hafi farið í 10-12 vindstig í hörðustu hviðunum seinni part dagsins. Þar fauk þak af gömlu íshúsi á Bakka og af þremur íbúðarhúsum. Þurftu íbúar eins þeirra að yfirgefa heimili sitt. Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði var önnum kafin við að aðstoða bæjarbúa vegna veðurofsans fram á kvöld. Um kvöldmatarleytið var vind farið að lægja, en úrkoma jókst að sama skapi. Símasambandslaust var innanbæjar á Siglufirði seinni part dagsins og var loftskeytastöðin einnig óvirk fram á kvöld.

Morgunblaðið heldur áfram fregnum af ofviðrinu 2.apríl:

Svavar Guðmundsson, 46 ára, fórst eftir að sex tonna trillu hans, Reynir frá Litla-Árskógssandi, hvolfdi og hún sökk í fyrradag í aftakaveðri, aðeins 100-200 metra fyrir utan höfnina á Litla-Árskógssandi. Tveir menn voru um borð og bjargaðist hinn, Kristján Rafn Sigurðsson, fljótlega eftir að slysið varð, en Svavar er talinn af. Ekki var hægt að kafa niður að Reyni i gær vegna veðurs en fjörur voru gengnar í alla fyrrinótt og í gær, en án árangurs. Reynt verður að kafa niður að Reyni í dag.

Straumnesi í Aðaldal. Í óveðrinu, sem gekk yfir Norðausturland á þriðjudagskvöldið, fauk þakgluggi af nýbyggðu verkstæðishúsi vélaverkstæðisins Foss á Húsavík á nærliggjandi íbúðarhús. Fór hann í gegnum útidyrahurð og hafnaði þar inni á gangi. Enginn varð fyrir glugganum, en skemmdir urðu nokkrar. Óveðrið, sem brast á á þriðjudagsmorgun var norðvestan stórhríð og stóð það linnulaust fram yfir miðnættið. Veðurhæðin var gífurleg. Á Mánárbakka á Tjörnesi fór vindhæðin langt yfir 12 vindstig í verstu kviðunum. Þar fuku þakplötur af fjósi og heyhleðsluvagn tókst á loft og brotnaði í spón. Sagði Aðalgeir Egilsson bóndi þar að hann myndi ekki eftir svona langstæðu ofsaroki af norðvestri. Tjón í óveðrinu varð mest á Húsavík. En eftir því sem best er vitað verulega minna annars staðar í sýslunni. Á Húsavík fauk þakið af umferðarmiðstöð kaupfélagsins og hafnaði á húsum bókaverslunar Þórarins Stefánssonar. Tjón á húsunum virðist ekki vera mikið. Þá slitnaði frá bryggju danskt flutningaskip, Lousea, sem er leiguskip í saltflutningum. Rak það inn í höfnina og strandaði þar. Í leiðinni rakst skipið á tvo báta og braut bólverkið á gömlu timburbryggjunni. Stefnið á skipinu er mikið dældað og sjálft er skipið vélarvana. Enn er ekki ljóst hvað tjónið er mikið. Skipið var enn á strandstað síðdegis í gær og verður það ekki hreyft fyrr en í betra veðri. Einnig slitnaði upp dæluprammi frá Slippstöðinni en honum tókst að bjarga án skemmda. Þakið fauk af sorpeyðingarstöðinni og minniháttar tjón varð af foki lausra muna víða í bænum. St.Sk.

Egilsstöðum. Í óveðrinu sem gekk yfir landið brotnuðu 34 staurasamstæður, 68 staurar alls í háspennulínunni sem liggur frá Lagarfossvirkjun til Vopnafjarðar. Staurar þessir brotnuðu þar sem línan liggur um Jökulsárhlíð, frá Héraði til Vopnafjarðar. Staurarnir þverkubbuðust í sundur, frá mannhæð og upp eftir staurunum. Línan liggur á jörðinni á löngum kafla og hangir brakið af efsta hluta stauranna á línunni. Lína þessi er tiltölulega ný og þar sem staurarnir brotnuðu er láglent. Er veðurhæð kennt um en ekki ísingu, eins og þó er algengast þegar raflínustaurar brotna. Að sögn Erlings Garðars Jónassonar, umdæmisstjóra RARIK á Austurlandi, er áætlað að viðgerð taki um 10—12 daga, og kostnaður verði 10—15 milljónir. Vararafstöð er á Vopnafirði og fullnægir hún raforkuþörf Vopnfirðinga. Björn

Skinnastað, Öxarfirði. Ofsaveður af vestsuðvestan með ofanhríð og skafbyl gekk yfir Öxarfjörð frá hádegi á þriðjudag framundir hádegi á miðvikudag, en fór þá að slota nokkuð. Rafmagnslaust varð í um 10 klukkustundir og símasamband slitrótt um tíma. Nokkrir skaðar munu hafa orðið á mannvirkjum en ekki eru öll kurl komin til grafar. Veður var stillt að morgni þriðjudags en brast á um hádegi á með ofsaroki og blindbyl. Þetta var vestsuðvestan veður. Rafmagn fór um kl.3:00 aðfaranótt miðvikudags og var rafmagnslaust í öllu héraðinu til kl. 13:00. ísingu í spennistöð vegna sjóroks er kennt um. Var víða mjög kalt í húsum þar eð frost var 5-8 gráður og ljóslaust um nóttina. Allnokkrir skaðar munu hafa orðið, meðal annars munu þakplötur hafa fokið af húsum, gluggar brotnað og trillubátur skemmst eða sokkið. Skaðar eru ekki enn fullkannaðir. Um hádegi á miðvikudag fór veðrinu að slota. Ennþá er þó VNV hríðarveður með vægu frosti. Snjó hefur dregið saman í háa skafla en lítið er vitað um færð á vegum. Þetta er versta stórviðri sem hér hefur komið í mörg ár. Sigurvin.

Á Kópaskeri fór að hvessa upp úr hádeginu á þriðjudag síðdegis var komið aftakaveður. Veðrið var verst í nágrenni kauptúnsins, þar sem þrír bátar eyðilögðust og útihús skemmdust. Rafmagnið fór af Kópaskeri og nágrenni um klukkan þrjú á þriðjudag. Unnið var að viðgerð, en rafmagnið var ekki komið á síðdegis í gær. Vonir stóðu þó til að það tækist fyrir kvöldið. Litlu munaði að stórtjón yrði í laxeldisstöð Árlax hf í Kelduhverfi vegna rafmagnsleysisins þar sem illa gekk að koma vararafstöð í gang. Það tókst þó um síðir. Atvinnulíf staðarins var meira og minna lamað vegna rafmagnsleysisins og kalt var orðið í húsum. Árni Sigurðsson á Kópaskeri sagði að járnplötur hefðu fokið af hluta af slátur- og frystihúsi Kaupfélags Norður-Þingeyinga á Kópaskeri. Einnig hefðu brotnað rúður á sláturhúsbyggingunni. Sagði hann að tjóni væri ekki fullkannað, en það gæti verið um 100 þúsund krónur.

Að sögn Árna varð mikið tjón á svokölluðum Leirhafnarbæjum á Melrakkasléttu. Fjárhús skemmdist mikið á Miðtúni, þakið fauk alveg af því meðal annars. Heimilisfólkinu tókst að bjarga kindunum inn í hlöðu. Einnig fauk fjárhúsi Reistarnesi, en þar var ekkert fé inni. Þá fuku öll hús á eyðibýlinu Sæbergi,

Hofsósi. Í Fljótum var hið versta veður í fyrradag, það versta í mörg ár. Oft er vitnað til veðurs sem gekk yfir 1966, en þá var veðrið ekki þá var veðrið ekki eins vont og nú, að sögn Önnu Jónsdóttur á Stóru-Þverá i Fljótum. Þakjárn fauk af hlöðu á Stóru-Þverá, en olli ekki tjóni á öðrum eignum svo vitað sé. Í gær var þar öskubylur og ekki farið að kanna neitt um færðina þar fremra. Mjög slæmt símasamband er í Fljótum og sagðist Anna vita að rafmagnslaust væri á fremstu bæjunum, Stíflubæjunum svokölluðu, sem tengdir eru Ólafsfjarðarlínu. En ekki er neitt vitað um hvaða bilanir er þar að ræða. Að sögn Jóns K. Ólafssonar í Haganesi í Fljótum var veðrið í fyrradag eitt það allra versta sem hann man. Búið var að taka alla bátana upp áður en veðrið skall á og vissi hann ekki um neitt tjón á næstu bæjum. Leiðindaveður hefur verið í Fljótum allan liðinn mánuð og hafa menn ekki enn komist til að vitja um öll grásleppunet sem lögð voru 10. mars síðastliðinn. Um miðjan dag í gær sást ekki út úr augum í Haganesi og skaflar sem byrjuðu að myndast í fyrradag voru þá komnir á fjórða metrann. Illviðrið sem gekk yfir norðanvert landið í fyrradag olli ekki tjóni á Hofsósi. Um miðjan dag versnaði veður með hvassri norðvestanátt og snjókomu. Í Hofsóshöfn voru nokkrar trillur og 55 tonna bátur. Talsverð alda var á flóðinu og þurfti að binda alla bátana rækilega, þannig að engar skemmdir urðu í höfninni. Að sögn Björns Mikkaelssonar, yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki, er ekki kunnugt um neinar skemmdir þar og var rólegt hjá lögreglu. Þungfært var á götum Sauðárkróks í gær, en allir aðalvegir í héraðinu færir og einnig var sæmilega fært frá Sauðárkróki út að Ketilási í Fljótum. Ófeigur

Straumnesi í Aðaldal. Óttast var um fólk á leiðinni á milli Húsavíkur og Akureyrar í stórhríðinni á þriðjudagskvöldið. Björgunarsveitir í Suður-Þingeyjarsýslu voru kallaðar út til leitar og fundust bílarnir við Ljósavatn upp úr klukkan 23, og var hluti fólksins þá búinn að vera þar i tæpar 9 klukkustundir. Biðin í bílunum var fólkinu erfið og var það orðið kalt og hrakið þegar björgunarmenn á snjóbíl úr Fnjóskadal fundu það. ... St.Sk.

Egilsstöðum. Bílalest með fjórum vörubílum sem voru að flytja bensín, olíuvörur og ýmsar aðrar vörur til Borgarfjarðar eystri, ásamt einum jeppa, lenti i hrakningum á Vatnsskarði í óveðrinu sem gekk hér yfir á þriðjudag. Vegurinn til Borgarfjarðar er opnaður á þriðjudögum og er það jarðýta sem Vegagerðin hefur staðsett í Borgarfirði, sem annast snjóruðning á þessari leið. Vegna mikillar ófærðar nú ákvað Vegagerðin á Egilsstöðum að senda vörubíl með plóg frá Egilsstöðum á móti Borgarfjarðarýtunni. Þessi snjóruðningstæki mættust um klukkan 16. Í sama mund gerði aftakaveður á þessum slóðum og urðu bílar og snjóruðningstæki viðskila. Bíllinn með plóginn komst ásamt tveimur vörubílum til Borgarfjarðar, en ýtan, vörubíll og jeppi tepptust Héraðsmegin við Vatnsskarð. ... Björn

Þórshöfn. Mikið hvassviðri skall hér á upp úr hádeginu í fyrradag. Seint um kvöldið var björgunarsveitin og lögreglan kölluð út vegna trillubátsins Vals SU, sem var að sökkva i höfninni. Sökk hann skömmu eftir að þeir voru komnir á vettvang. Lögreglan segist ekki vita um ástæðuna, en ládautt var í höfninni og ekki mikil ísing þegar óhappið varð. Eigendur flestra bátanna voru i bátum sínum um nóttina. Um hádegið i gær vann björgunarsveitin við að ná bátnum upp úr höfninni. Að sögn lögreglunnar á Þórshöfn var mjög annasamt hjá lögreglu og björgunarsveit vegna foks á plötum og ýmsu lauslegu, en ekki urðu nein slys á mönnum. Rafmagnið fór af þorpinu klukkan 16 vegna mikillar seltu og hefur Þistilfjörður verið rafmagnslaus síðan. Varavélar voru keyrðar og var rafmagn komið á mest allt þorpið um klukkan 4 í fyrrinótt. Í gær var vonast til.að rafmagn kæmist á allt svæðið síðdegis. Klukkan 16:30 var björgunarsveitin kölluð út að húsinu Langanesvegur 19, þar sem plötur voru farnar að fjúka af þakinu. Varla var stætt við húsið, en björgunarsveitinni tókst að koma í veg fyrir að þakið færi allt af, en það var farið að losna. Klukkan 20 var björgunarsveitin kölluð út til leitar að hjónum sem fóru frá Þórshöfn rétt fyrir klukkan 16 og ætluðu í Svalbarð sem er um 27 km leið. Veghefill fór á undan bíl björgunarsveitarinnar, en stuttu seinna komu hjónin fram í Svalbarði, heil á húfi. Vakt var á lögreglustöðinni til klukkan 5:30 í gærmorgun, en þá hafði lægt mikið. Eldri menn segjast ekki muna eftir svona miklu hvassviðri hér um árabil. Þorkell

Grímsey. Ofsaveður gekk hér yfir á þriðjudag. Vindhraðinn sló nokkrum sinnum yfir 100 hnúta markið, sem mun vera um 16 vindstig, á vindmælinum á flugstöðinni. Þegar veðrið var sem verst, á milli klukkan 2 og 3 um daginn, fór vindhraðinn aldrei niður fyrir 70 hnúta og var þá ekki stætt úti við. Lítið tjón varð í fárviðrinu. Eitthvað járn fór af gömlum útihúsum. Rafmagnið fór af vegna þess að margar heimtaugar slitnuðu. Í gær var unnið að viðgerð, og komst rafmagnið aftur á hjá flestum. Alfreð

Morgunblaðið 3.apríl:

Snjóflóð féll á Flateyri í fyrrakvöld [1.] og stöðvaðist rétt fyrir ofan efstu húsin í bænum. Ekkert tjón hlaust af, en snjóruðningur valt alveg niður undir hús. Að sögn Kristjáns Jóhannssonar, sveitarstjóra á Flateyri, má búast við snjóflóðum á þessu svæði, en varnir eru fyrir ofan byggðina sem draga verulega úr hættunni. Tvisvar í vetur hefur þurft að flytja fólk úr húsum sínum efst í bænum. Blindhríð var á Flateyri og því erfitt að meta hættuna á öðru flóði, að sögn fulltrúa almannavarnanefndar. Nokkrir íbúanna við Ólafstún hafa yfirgefið hús sín. Annað minna snjóflóð féll fyrir ofan byggðina á Flateyri í gærkvöldi, en það stöðvaðist á varnagirðingu. Snjóflóðið á Flateyri féll úr Eyrarfjalli og stöðvaðist ekki fyrr en um 100 metra fyrir ofan húsin við Ólafstún, sem er efsta gata bæjarins. Talið er að flóðið sé um 400 metra breitt. Snjóflóð hefur áður fallið á svipuðum slóðum, fyrir 10-15 árum, og tók þá með sér fiskhjalla fyrir ofan bæinn. Engin varð var við flóðið fyrr en í gærmorgun þegar veðurofsann lægði, en þreifandi bylur hefur verið á Flateyri síðan á mánudag. Almannavarnanefnd staðarins fór í gærdag á snjóbíl upp í fjallið, en að sögn þeirra Kristjáns Jóhannssonar, sveitarstjóra, og Steinars Guðmundssonar, fulltrúa í almannavarnanefnd, var erfitt að átta sig á ástandinu í fjallinu vegna dimmviðris. Þeir telja að byggð stafi ekki frekari hætta af snjóflóðum, þótt erfitt sé um slíkt að segja. Annað flóð féll fyrir skömmu fyrir innan byggðina, en þar var fólki engin hætta búin. Veginum milli Flateyrar og Sólbakkasvæðisins hefur verið lokað vegna hættu á þeirri leið. Morgunblaðið ræddi við Magneu Guðmundsdóttur í gærkvöldi, en hún og fjölskylda hennar yfirgáfu þá hús sitt við Ólafstún. Hún sagði að þau hefðu ekki verið beðin að fara, en núorðið myndi hún sjálf meta hvort ráðlegt væri að vera í húsinu. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við yfirgefum húsið, það gerðum við síðast fyrir 2 vikum, en þá féllu snjóflóð úr hreinlega öllum giljum nema gilinu fyrir ofan húsið okkar. Ég þarf engan annan til að segja mér hvenær okkur er hætta búin. Þetta er búinn að vera óvenjulegur og mjög þreytandi vetur. Það er erfitt að búa við sífelldan ótta við snjóflóð," sagði Magnea.

Raufarhöfn. Bátsgeigendur áttu í miklum erfiðleikum með báta sína í höfninni i óveðrinu sem hér var á þriðjudag, og lentu sumir i hrakningum. Mikil ísing hlóðst á bátana og lá við að sumum þeirra hvolfdi. Sem dæmi má nefna að einn bátseigandinn, Jón Guðmundsson, sem var að verja bát sinn áföllum, dæla úr honum sjó og berja af honum ísingu, var orðinn gegnblautur af ágjöf og snjókomu þegar leið á daginn. Kuldinn færðist upp eftir líkama hans og síðan fór hann að finna fyrir einkennum í höfðinu. Þá fór hann í land, skreið á fjórum fótum að vigtarskúr, sem er á bryggjunni, braut þar rúðu og renndi sér á maganum inn um gluggann. Eftir stutta stund áttaði Jón sig á því að hans yrði ekki vitjað í þessum skúr og tók þá að arga annað slagið. Að einhverjum tíma liðnum kom bróðir hans, Eiríkur, til að athuga með Jón og bát þeirra. Heyrði hann öskrin í Jóni þegar hann kom niður að höfninni. Var þá farið með Jón upp á saumstofu sem þarna er skammt frá. Þar fékk hann góða aðhlynningu og náði sér fljótt.

Klukkan 14 á þriðjudaginn [31.mars] brast á með hvassri suðvestanátt, frá 30 hnútum í 60, sem fór vaxandi þegar á daginn leið. Jafnframt gekk áttin meira til norðurs. Um klukkan 16 var komið norðvestan hávaðarok, með tilheyrandi snjókomu. Allar götur í þorpinu voru þá orðnar ófærar, símasambandslaust út úr þorpinu og innan þess og rafmagn fór af öðru hvoru. Valtýr Hólmgeirsson veðurathugunarmaður segir að vindhraði hafi mælst upp í 70 hnúta. Það geti þó verið að vindhraði hafi verið meiri, en vindhraðamælirinn ritar ekki í rafmagnsleysi, 64 hnútar eru 12 vindstig, eins og kunnugt er. Þetta veður stóð til klukkan 21 með 60 til 66 hnúta hraða en þá lægði niður í 30 hnúta. Mikill snjór er nú í þorpinu, sumstaðar upp á eina húshæð, og muna menn ekki eftirjafn miklum snjó á svo skömmum tíma, eða sjö klukkustundum. Skólafólk átti í vandræðum með að komast til síns heima og fólk átti yfirleitt í erfiðleikum með að komast heim til sín. Sumir fóru ekki af vinnustað fyrr en klukkan 22 um kvöldið þegar veðrið var gengið niður. Plötur fuku af þaki verkstæðishúss hjá SR. Einnig rúlluðust upp þakplötur á verksmiðjuhúsi SR, en fuku ekki burt. Rúður brotnuðu í húsum og einn 3,5 tonna bátur, Þröstur ÞH, sökk í höfninni. Helgi

Dagur segir ítarlegar af slysinu á Árskógsströnd í fréttapistli 2.apríl:

Einn maður fórst þegar Reynir EA sökk rétt utan við höfnina á Árskógssandi í óveðrinu á þriðjudag. Tveir menn voru um borð og tókst áhöfninni á Særúnu EA að bjarga hinum manninum með Markúsarneti. Gífurlega hvasst var á slysstað og aðstæður allar mjög erfiðar. Tildrög slyssins voru þau að verið var að forða bátunum úr höfninni og inn til Akureyrar þar eð hafnaraðstæður á Árskógssandi eru vægast sagt bágbornar. Reynir ætlaði að fara hlémegin við Naustavík en áður en hann komst þangað hvolfdi honum í ofsalegri hviðu. Þessi válegi atburður átti sér stað rétt eftir kl. 15 á þriðjudag. Sigurður Konráðsson skipstjóri á Særúnu segist varla muna eftir öðru eins fárviðri. Þeir voru lengi á slysstað eftir að Konráð sonur hans hafði náð að bjarga öðrum manninum en ekkert sást til hins.

Vegna óveðursins sem gekk yfir Norðurland í fyrradag, var mjög mikið álag á símakerfinu, því fólk þurfti mikið að hringja til að vita um aðstandendur o.s.frv. Þetta mikla álag hafði m.a. í för með sér að ómögulegt reyndist að ná símasambandi við Árskógsströnd og Dalvík um tíma.

Aðstæður í höfninni á Árskógssandi eru slíkar að í hvert sinn sem gerir verulega slæmt veður þarf að forða bátunum úr höfninni. Einmitt þetta átti sér stað þegar Reynir EA fórst á þriðjudag. Þá átti að færa bátana inn til Akureyrar. Níels laskaðist í höfninni, fékk á sig brotsjó sem gekk yfir garðinn og skemmdist hann nokkuð, m.a. tækjabúnaður. Reynir sökk um 200 metra frá 6ryggju en Særún, Víðir Trausti og Auðbjörg komust til Akureyrar.

„Það er öruggt mál að ef bíllinn hefði verið læstur þá hefði stúlkan ekki talið dagana,“ sagði Gísli Pálsson, verkstjóri hjá RARIK, en hann fann 19 ára stúlku illa á sig komna í
flutningabíl á Öxnadalsheiði á hádegi í gær [1.apríl]. Á hádegi í gær tókst starfsmönnum RARIK að brjótast upp á Öxnadalsheiði þar sem þeir áttu að.vinna við raflínu. Þá tók Gísli eftir því að einhver var í flutningabíl sem hafði farið út af veginum efst í Bakkaselsbrekku. Þar var 19 ára stúlka, Þorbjörg Guttormsdóttir frá Krossi í Fellahreppi, en hún hafði þá dvalið tæpan sólarhring á heiðinni í hörkufrosti og blindbyl. Þorbjörg hafði verið á leið til Hóla með tveimur skólasystkin um sínum laust eftir hádegi daginn áður. Bíll þeirra drap á sér og fengu þau far með flutningabíl sem skömmu síðar fór útaf. Þá fékk fólkið far með jeppa til Akureyrar en Þorbjörg varð eftir, komst að flutningabílnum sem var ólæstur og dvaldi í honum um nóttina. Má telja mikla mildi að flutningabíllinn var opinn. EHB

Veðrátta var hagstæð í apríl. Undir lok mánaðarins kólnaði nokkuð og síðustu dagana varð jörð víða alhvít um landið suðvestanvert, en það er óvenjulegt á þeim tíma. Mest snjóaði alveg í mánaðarlokin þannig að 1.maí mældist snjódýpt í Reykjavík 17 cm, það mesta sem vitað er um í þeim mánuði þar á bæ. 

Morgunblaðið segir frá 23.apríl:

Óvænt jarðfall varð á Haukamýri mýri sunnan Húsavíkur um páskana. Það sem hefur gerst er að jarðvatn hefur ekki náð þarna fram að ganga, heldur safnast fyrir og jafnframt grafið um sig. Þegar svo frost leysir úr jörðu og vatnið fær framrás myndast þetta jarðfall.

Slide9

Síðustu daga mánaðarins var nokkuð kalt í veðri. Kalt loft kom til landsins úr suðvestri þann 27., en síðan fór snarpur kuldapollur þvert suðaustur um Grænland, framhjá Íslandi suðvestanverðu og áfram, allt suður á Miðjarðarhaf. Kortið sýnir stöðuna á miðnætti að kvöldi 30.apríl. Þá snjóaði mikið víða um landið sunnan- og suðvestanvert og nýtt snjódýptarmet maímánaðar var sett í Reykjavík, það stendur enn (2025). 

Fyrri hluti maímánaðar var fremur hráslagalegur, en síðan hlýnaði mjög og óvenjuhlýtt varð um tíma. Þurrkar töfðu gróður á Norðaustur- og Austurlandi. 

Morgunblaðið segir fregnir af tíð 14.maí:

Staðarbakka, Miðfirði. Liðinn er eftirminnilegur vetur hvað hagstæða veðráttu snertir. Það sem af er þessu vori hefur verið fremur kalt, ekki mikið frost en tíðum snjóél og aldrei verið nein hlýindi. Eins og veturinn sé ekki enn tilbúinn að víkja fyrir sumrinu. Tún eru þó að byrja að grænka og klaki er lítill jörðu svo umskipti gætu orðið snögg ef gerði hlýindi. Ekki er farið að dreifa tilbúnum áburði enda yfirleitt blaut tún. — Benedikt

Geitagerði, Fljótsdal. Eftir mildan og snjóléttan vetur hefur vorað vel. Tún eru orðin mikið til græn, sama er að segja um lerkiskóga og birki er að byrja að laufgast. Látlausir þurrkar hafa tafið fyrir öllum gróðri, eins svali á næturnar vegna heiðríkjunnar, þó hitinn hafi oft verið þetta 8-10 gráður og meira á daginn. G.V.Þ.

Straumnesi, Aðaldal. Það vorar vel eftir óvenjumildan vetur. Suðvestanátt og hlýindi hafa verið hér ríkjandi i vor þar til á föstudag í síðustu viku [8.] en þá kólnaði og snerist í norðanátt með slydduéljum. Tún hafa grænkað eðlilega og klaki er mjög lítill í jörðu. Kal er í túnum í Kinn og Fnjóskadal, tilfinnanlega mikið hjá einstaka bónda. Annars virðist jörð  komast vel undan vetri og bændur bjartsýnir um sumarið. Hey eru nú víða lítil, og nokkrir bændur þegar orðnir heylausir, en en næg hey em í héraðinu til að miðla. Bændur eru byrjaðir vorverk, einstaka byrjaður að bera á tún og sá grænfóðri. St.Sk.

Miklar leysingar urðu í hlýindunum og ollu þær aurskriðum í Eyrarlandshlíð við Ísafjörð. Morgunblaðið segir frá 23.maí:

Ísafirði. Milli átta og tíu aurskriður hafa fallið úr Eyrarhlíðinni í vorleysingunum síðustu daga og meðal annars lokað Hnífsdalsveginum á tveimur stöðum um tíma. Fjöldi fólks fylgdist með því um miðjan dag í gær þegar aurskriða féll frá Gleiðarhjalla í átt að gamla dagheimilinu við Hjallaveg. Skriðan stöðvaðist um 100 metrum fyrir ofan lóð dagheimilisins og olli engum skemmdum. Stærstu aurskriðurnar féllu rétt utan við byggðina við Hnífsdalsveg. Fóru þær á þremur stöðum milli fiskihjalla sem þar eru, án þess að valda skaða. Vegagerðinni tókst að opna veginn eftir skamma stund. Úlfar

Morgunblaðið segir einnig af vatnavöxtum og leysingum 24.maí:

Varmahlíð. Blæjalogn og dásemdarveður hefur verið í Varmahlíð síðustu daga. Á föstudag komst hitinn í 24 stig í forsælu og í fyrradag mældist hann 21 stig. Miklir vatnavextir fylgja svona hitum og stóðu Héraðsvötn og Húseyjarkvísl randafull í fyrrakvöld svo flæddi upp á engi og eyrar. Í mestu flóðum er hólmurinn sem einn fjörður yfir að líta, en svo hefur ekki verið nú um margra ára skeið. - P.D.

Þann 25.maí varð mjög sterkur jarðskjálfti nærri Vatnafjöllum. Morgunblaðið segir frá 26.maí:

Sterkasti jarðskjálfti sem komið hefur á Suðurlandi frá því árið 1912, eða í 75 ár, varð rétt fyrir hádegið í gær. Mældist hann 5,8 stig á Richter. Upptök hans voru skammt frá Heklu. Jarðskjálftinn fannst greinilega um Suðurland, á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Hús í Rangárvallasýslu léku á reiðiskjálfi og lauslegir munir féllu úr hillum. Ekki er vitað til þess að tjón hafi orði á húsum. Húsdýr urðu óttaslegin, ekki síður en mannfólkið, hestar tóku á rás, kýr bauluðu í fjósum og styggð kom að fé.

„Rétt fyrir hádegi kom snarpur skjálfti og harður, sem mældist 5,8 gráður á Richter, eftir nokkra skjálfta fyrr um daginn," sagði Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við Morgunblaðið í gær. Hér mun vera um sterkasta skjálfta að ræða á Suðurlandi síðan 1912 og sterkasta skjálfta, sem hérlendis hefur mælst síðan 1976. Að sögn Ragnars Stefánssonar er erfitt að staðsetja svo stóran skjálfta, eins og þann, sem varð rétt fyrir hádegi, en eftir þeim upplýsingum, sem Veðurstofan hafði aflað sér, munu upptök skjálftans hafa verið 10-15 kílómetra suður af Heklu, nálægt Vatnafjöllum. Skjálftinn fannst mjög víða, allt austan úr Suðursveit og vestur á Reykjanesi. „Okkar mælingar sína að sterkasti skjálftinn var 5,8 gráður á Richter og hefur Jarðskjálftastofnunin í Uppsölum staðfest þá tölu.“ Mjög margir höfðu samband við Veðurstofuna og sagði Ragnar að hann hefði ekki frétt af neinum skemmdum. „Búrfellsvirkjun mun þó hafa farið úr sambandi og hafa okkur einnig borist fréttir af hruni, bæði úr sjálfu Búrfelli, Eyjafjöllum og Selsundsfjalli.“ Aðspurður sagði Ragnar að jarðhræringar þessar bentu ekki endilega til goss í Heklu, enda væri hér um allstóran misgengisskjálfta að ræða; eldsumbrotaskjálftar væru minni og hægari. „Þó ber það að athuga að á þessu svæði eru venjulegir misgengisjarðskjálftar og kvikuhreyfingar neðanjarðar mjög samtengdar, þannig má benda á að ári eftir jarðskjálftann mikla nálægt Selsundi 1912 byrjaði gos í Mundafelli skammt austur af Heklu, reyndar fundust líka nokkrum klukkustundum á undan því gosi jarðskjálftakippir um Árnes- og Rangárvallasýslur og reyndar varð þeirra aðeins vart í Reykjavík. Við höfum venjulega talið, að þegar stór skjálfti verður á þessu svæði, fylgi eitthvað í kjölfarið vestar. Spurningin er því, hvort skjálftinn var nógu stór til að vera fyrirboði slíks; um það er ekki gott að segja. Ég tel þó ástæðu til þess að Almannavarnir séu í varðstöðu.

Morgunblaðið segir 4.júní nánar af leysingaaurskriðunum á Ísafirði:

Ísafirði. Aurskriður féllu fjórum sinnum úr sama gilinu undir Gleiðarhjalla i Eyrarfjalli á einum sólarhring 22. og 23. maí. Slíkar aurskriður eru tíðar hér á Ísafirði, einkanlega í miklum vatnsveðrum að hausti. Í þetta sinn urðu skriðuföllin í miðjum þurrviðriskafla, en í miklum hita. Við það hefur mikill snjór bráðnað uppi á Gleiðarhjallanum og í hlíðinni þar upp af. Leysingarvatnið, sem verður þá að stórá, leitar niður fjallið og mettar moldarborinn jarðveginn. Við það verður mikil þensla og þyngdaraukning umhverfis ána, sem síðan leiðir til þess að jarðvegurinn skríður af stað; meira og minna öll hlíðin í einu. Að sögn Stefáns Brynjólfssonar, forstöðumanns tæknideildar Ísafjarðarkaupstaðar, þarf að fara saman ákveðin gerð moldarjarðvegs, hæfileg stærð grjóts og oftast er frosinn jarðvegur undir, sem myndar einskonar steyptan stokk. Hann sagði að ekki hefði orðið umtalsvert tjón í þetta sinn frekar en oftast áður. Símalína fór þó í sundur og einn lítill fiskhjallur varð undir aðalkvíslinni. ... Eftir standa þverhnípt gljúfur, sem sumstaðar eru um 3 metrar á hæð. Það dró mikið úr áhrifum aurskriðunnar, að hún klofnaði neðanvert við miðja hlíðina og féll í tveim kvíslum niður á veginn og voru nokkrir fiskhjallar á milli kvíslanna. - Úlfar

Júní var almennt talinn hagstæður, en var sérlega þurr um landið sunnan- og vestanvert og stóðu þurrkarnir vexti gróðurs fyrir þrifum. Morgunblaðið segir frá 25.júní:

Bændur á Suðurlandi hafa vaxandi áhyggjur af þurrkunum undanfarnar vikur sem leika tún þeirra grátt, að sögn Einars Þorsteinssonar ráðunautar Búnaðarsambands Suðurlands. Vart
hefur komið deigur dropi úr lofti í fjórðungnum síðan um miðjan maí. „Jörð er víða farin að skrælna og með hverjum degi sem líður aukast líkurnar á því að grasið visni. Þar með sprytti ekki strá á þeim túnum það sem eftir lifir sumars. Jafnvel aðeins einn rigningardagur gæti bætt úr þessu,“ sagði Einar í samtali við Morgunblaðið. ...

Þær jarðir sem verst verða úti vegna þurrka eru á söndunum sem teygja sig austur í Skaftafellssýslu. Þar eru tún víða á sandi, sem bindur raka illa. Valllendi og framræstar mýrar láta hinsvegar lítið á sjá. Bændur sem eiga votlendari jarðir hafa notað þurrkana vel og eru búnir að slá og hirða. Þurrkar hrjá einnig kartöflu- og rófubændur. Einar sagði að þeir gætu hinsvegar gripið til þess ráðs að vökva garða sína, en um þann kost væri ekki að ræða á túnum. „Ég hef tekið eftir því undanfarin daga að menn eru farnir að bölva þegar ég spái ekki rigningu. Það hefur aldrei hent mig áður,“ sagði Markús [Á. Einarsson veðurfræðingur]. Hann sagði að tölvuspá gæfi vísbendingu um örlitla úrkomu syðst á landinu á sunnudag [28.], en allsendis óvíst væri að hún stæðist.

Þurrkar voru daufir í júlí, en veðurfar hagstætt að öðru leyti. Menn höfðu sem oft áður áhyggjur af yfirvofandi Kötlugosi. Morgunblaðið segir frá 22.júlí:

Vík í Mýrdal, frá Sigurði Jónssyni fréttaritara Morgunblaðsins. Veginum yfir Mýrdalssand var lokað síðdegis í gær [21.], þar sem talin var hætta á Kötlugosi. Vegurinn var þó opnaður um klukkutíma síðar þegar aðstæður á Mýrdalsjökli höfðu verið kannaðar nánar. Vakt var sett beggja vegna Mýrdalssands og fylgst með umferð yfir sandinn. Eftir jarðhræringar, sem komu fram á mælum í gær, tók almannavarnanefnd Víkur ákvörðun um að vera í viðbragðsstöðu. Upplýsingar bárust frá Hrífunesi í Skaftártungu og frá ferðafólki um að svo virtist sem gosbólstrar stigu upp af Mýrdalsjökli. Veginum yfir sandinn var þá lokað og björgunarsveitin Víkverji var tilbúinn til útkalls. Einnig var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu. Eftir að flogið hafði verið yfir jökulinn og aðstæður kannaðar, var ákveðið að opna veginn aftur, þó hættuástandi væri ekki aflýst strax. Björgunarsveitarmenn sinntu gæslu við veginn og skráðu niður umferð.

Mýrdalssandi var lokað af Almannavörnum ríkisins og Almannavörnum Vestur-Skaftafellssýslu um fimmleytið í gær, þar sem hætta þótti á Kötlugosi, en var opnaður aftur klukkutíma siðar. Ókyrrð hafði komið fram á jarðskjálftamælum Raunvísindastofnunnar á Skammadalshóli i Mýrdal og i Hafursey, sem óljóst var af hverju stafaði, og Múlakvísl þótti óvenju straumhörð. Töluverð skjálftavirkni heftir mælst nærri Mýrdalsjökli undanfarnar vikur, en það mun hafa gerst reglulega á undanförnum árum. Vakt var beggja megin við sandinn fram eftir kvöldi en almannavarnanefndin í Vík ákvað á fundi f gærkvöldi að henni skyldi hætt. Að sögn Páls Einarssonar, jarðeðlisfræðings, hafa sterkustu skjálftamir mælst um þrjú stig á Richterskvarða. Það er meira en undanfarin ár en töluvert minna en veturinn 1976-77. Páll sagði þessa skjálfta eiga upptök sín undan Kötlu, en óróinn sem hefði mælst í gær ætti það hinsvegar ekki. Orsakir hans væru enn ókunnar. „Síðan um 1600 hefur gosið tvisvar á öld í Kötlu, venjulega í kringum tuttugasta og sextugasta ár aldarinnar," sagði Páll Einarsson í samtali við Morgunblaðið. „Síðast gaus árið 1918 og bjuggust menn því mjög eindregið við gosi aftur Um 1960, sem ekki er komið ennþá. ... Fólk hefur oft orðíð vart við skjálfta í Mýrdal áður en gosið kemur upp og vonum við því að gos geri vart við sig á skjálftamælum áður en það kemur upp. Það er mjög líklegt að tvær eldstöðvar séu undir Mýrdalsjökli, önnur við Kötlu og hin undir suðvesturhorni jökulsins. Þar mælist stundum skjálftavirkni en skjálftamir undanfarið hafa allir verið á Kötlusvæðinu," sagði Páll.

Sigurjón Rist, vatnamælingamaður, sagði hlaup hafa komið undan Mýrdalsjökli 25.júní 1955. Þá hefði allnokkuð vatn komið undan jöklinum en ekkert síðan. Einnig væru lón þarna í grenndinni þaðan sem komið gætu smá gusur og aukið vatnsmagn í ám. „Það er mjög eðlilegt í þeim hlýindum og rigningu sem verið hafa að undanförnu að vatn aukist í ám. Þetta er hámarkstími leysinga og á ekkert skylt við neitt úr iðrum jökulsins,“ sagði Sigurjón.

Þann 23. fórust tveir menn í flugslysi skammt frá Blönduósi. Þoka var þegar slysið varð. 

Nú var farið að kvarta undan þerrileysi. Morgunblaðið 31.júlí:

Blönduósi. Nokkrir bændur í Austur-Húnavatnssýslu hafa lokið fyrri slætti og margir eru langt komnir. Óþurrkar, sem varað hafa síðastliðinn hálfan mánuð, hafa tafið fyrir og hafa hey af þeim sökum hrakist og liggja undir skemmdum. Þau tún sem enn eru óslegin hafa sprottið úr sér. Útlit er fyrir mikla háarsprettu. Þurrkar framan af sumri töfðu fyrir sprettu, en mismikið. Þurrlendari tún fóru mun verr út úr þurrkunum en mýrartún og hófu bændur meðal annars misjafnlega snemma slátt af þeim sökum. En það má segja að þeir bændur sem gátu nýtt þurrkana seinni hlutann í júní og í byrjun júlí séu með öndvegis fóður í hlöðum sínum. Jón Sig.

Ágústmánuður var mjög hagstæður, sólríkt og þurrt var um landið suðvestanvert, en þungbúnara norðaustan- og austanlands. Dagur segir frá 5.ágúst:

Heyskapur hefur gengið erfiðlega hjá bændum víða á Norðurlandi síðustu 2 vikurnar sökum óþurrka. Hefur víða mátt sjá heyið sem hrakist hefur vera orðið mórautt og dökkleitt á túnunum og hána sumstaðar farna að spretta uppúr því. En nú er von á betri tíð, þar sem samkvæmt upplýsingum Eyjólfs Þorbjörnssonar veðurfræðings er allt útlit fyrir þurrt og
bjart veður mestalla þessa viku. Hæðarsvæði verður yfir landinu með hægri breytilegri átt. Vindur verður lítill, en töluverð sól og hitinn á bilinu 8-13 stig, og gæti kíkt í 15 um miðjan dag. Jón Sigurðsson hjá Búnaðarsambandi Skagafjarðar kvað nokkra bændur hafa lokið slætti áður en óþurrkurinn skall á og allflesta langt komna. Nokkrir bændur hefðu þó byrjað seint að heyja og væru þeir stutt komnir. Sökum þess hve sláttur byrjaði snemma væri há víða orðin vel sprottin og biði þess að verða nýtt af þeim sem það hugðu. Svipaða sögu hafði alnafni Jóns á Blönduósi hjá Búnaðarsambandi Austur-Skagfirðinga að segja. Voru þeir sammála um að þessi vika gæti bjargað málunum hjá bændum. -þá

Morgunblaðið segir af óvenjugóðri berjasprettu 26.ágúst, getur ritstjóri hungurdiska tekið undir það, hefur sjálfur sjaldan tínt meira af berjum heldur en þetta sumar og haust. Hægt var að tína mestallan septembermánuð: 

Geysileg berjaspretta hefur verið um land allt í sumar og mikið hefur verið tínt í ágústmánuði, samkvæmt upplýsingum frá Búnaðarfélagi Íslands. Berjalönd hafa verið svört og blá af öllum helstu berjategundunum og ættu menn að geta farið í berjamó næstu tvær vikurnar svo fremi sem jörð verður laus við næturfrost. Sérstaklega hafa helstu aðalbláberjasvæði landsins þótt vinsæl svo sem fyrir vestan og í Aðaldal í Þingeyjarsýslu.

Morgunblaðið segir af heyskap 28.ágúst:

Heyskap er nú að ljúka og hefur hann gengið mjög vel víðast hvar nema á Austurlandi. Þar hefur verið óstöðugt veðurfar og slæm heyskapartíð í sumar. Heyskapur hefur gengið með
afbrigðum vel í Dalasýslu að sögn Sigurðar Þórólfssonar formanns Búnaðarsambands Dalamanna. Hann taldi að sömu sögu væri að segja á öllu Vesturlandi. Hey eru yfirleitt góð, þó nokkuð sé það misjafnt eftir því hve snemma menn byrjuðu að slá. Þurrkur tafði fyrir sprettu í byrjun en margir náðu þó að slá tvisvar og er því heyfengur mikill. „Sumarið er búið að vera með eindæmum gott og jafnviðrasamt. Ég hef heyrt menn segja að ekki hafi komið svona gott sumar síðan 1939. Það var fyrsti dagurinn í dag sem eitthvað hreyfði vind,“ sagði hann. Heyskapur hefur yfirleitt gengið vel í Eyjafirði í sumar. Ólafur Vagnsson ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar sagði að það mætti þakka fyrst og fremst ágætum endurvexti. Margir slógu tvisvar og fengu jafnvel sums staðar meiri uppskeru í öðrum slætti en þeim fyrsta. Þurrkur í vor gerði það að verkum að sprettan fór hægt af stað. Snemma í júlí kom vætutíð og seinni hluta mánaðarins var góð spretta. Ólafur sagði að hey væru góð víðast hvar þó alltaf væru  einhverjar undantekningar á því. En í heildina litið væri heyfengur í góðu meðallagi. „Ég held að megi fullyrða að heygæðin séu með allra besta móti. Fyrst var slegið í fullri sprettu, en þá var frekar lítið gras. Fyrir seinni slátt var aftur á móti góð spretta og hey ekkert úr sér sprottið."

Sömu sögu er að segja á Suðurlandi. Þar hafa flestir lokið heyskap og eru hey víðast hvar mikil og yfirleitt góð að sögn Hjalta Gestssonar ráðunautar hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. „Þetta er því með besta móti" sagði Hjalti. Hann sagðist efast um að nokkurn tíma hafi verið meiri heyskapur á Suðurlandi. Nokkuð eru heygæðin þó misjöfn vegna þess að sumir lentu í að heyja í óþurrkakafla sem gerði seinni hluta júlímánaðar. „Eftir verslunarmannahelgi breyttist tíðin og gerði einhvern besta þurrk sem menn muna með blíðviðri og hita. Við höfum oft átt við að stríða að hey fýkur, en það virtist vera lítil brögð að því í ár. Sprettan var mjög góð þegar á leið. Ekki var þó mikið um að menn slægju tvisvar vegna þess að tún eru nú mikið notuð til beitar. Vegna samdráttar í landbúnaðarframleiðslunni hafa menn einnig borið minna á. Þetta má því teljast feiknagóð útkoma."

„Það er óhætt að segja að heyskapur hafi gengi brösuglega á Austurlandi," sagði Jón Snæbjörnsson ráðunautur á Egilsstöðum. Heyskapartíð hefur verið slæm á Austurlandi, gras sprottið úr sér og hey hrakist. Veðrátta var óstöðug í sumar og þrátt fyrir að ekki væru stórrigningar varaði þurrkur ekki nægilega lengi í einu. Sagði Jón að ekki þyrfti að gera ráð fyrir góðum heyjum. Hann taldi þó að hey væru næg, enda hefði sprottið vel.

Tíð var mjög hagstæð um landið sunnan- og vestanvert í september, en síðri um landið austanvert. Nokkuð snarpt kuldakast gerði um miðjan mánuð, en það hafði lítil áhrif til lengdar. 

Þann 1.september var alldjúp lægð skammt fyrir austan land og olli norðanátt með mikilli úrkomu um landið norðan- og austanvert. Þann 3. kom önnur lægð að landinu sunnan- og suðaustanverðu og olli einnig mikilli úrkomu á svipuðum slóðum, en einnig á Vestfjörðum norðanverðum. Veðráttan segir að þann 4. hafi brú tekið af Skarká á Snæfjallaströnd í miklum vexti árinnar. Morgunblaðið segir 5.september fréttir af flóðum í Bjarnarfirði á Ströndum:

Laugarhóli, Bjarnarfirði. Mikil flóð voru í Bjarnarfirði í gærmorgun [4.]. Í fyrrinótt gerði svo mikið vatnsverður af norðaustri á fjöllunum hér fyrir vestan og um Bjarnarfjörð að Bjarnafjarðará flæddi hátt yfir bakka sína og um dalinn. Einnig varð Hallárdalsá að foráttufljóti, en venjulega er hún lítið meira en stór lækur. Er þetta mesta flóð sem komið hefur hér í dalnum í 35 ár. Þjóðvegurinn norður Strandir lokaðist um tíma en varð fær upp úr hádeginu í gær. Ekki varð umtalsvert tjón í flóðunum. Á fimmtudaginn [3.] gekk hér á með norðaustan roki og er líða tók á kvöldið tók að rigna svo mikið að vatn af húsþökum fossaði fram af þeim. Hélst þessi úrkoma alla nóttina og að morgni föstudags var komið mikið flóð í ána. Flæddi hún langt yfir bakka sína og eru hlutar af túninu í Odda eins og eyjar í ánni, en túngirðingin og hlið á Bakka, austan árinnar, stendur langt úti í Bjarnafjarðará. Hvíteyri, neðan Svanshóls, hefur áður farið í kaf í svona flóði. Nú er hún umflotin en hefur ekki kaffærst. Er það heppni því að nokkrar ær með lömbum sínum eru úti á eyrinni og mun þeim ekki hætta búin. Fyrir neðan nýja húsið á Klúku flæddi yfir veginn norður á Strandir og var hann ekki fær fyrr en eftir hádegið í gær þegar hann var að mestu orðinn vatnslaus. Ekki virðast hafa orðið skemmdir á veginum og ekki heldur verulegt tjón á túnum eða girðingum.

Þá er sömu sögu að segja um Hallárdalsá sem rennur í Bjarnarfjarðará hér rétt austan við húsin. Þegar litið var upp eftir dalnum í gær var eins og hún flyti ofan á jarðveginum, en ekki á milli bakka eins og venjulega. Goðafoss í Hallárdalsá gaf nafna sínum í Skjálfandafljóti lítið eftir á meðan á þessu stóð. Í gær var norðaustan rok en mikið dró úr úrkomu. Það er ekki á hverju hausti að flóð verða í Bjarnarfjarðará, en 1950 og 1953 urðu þar stórflóð, jafnvel verri en nú. Það varð mikið flóð í hluta árinnar vegna krapastíflu þann 20. september 1981. Var þá snjógangur svo mikill að krapastífla hlóðst upp rétt fyrir neðan brúna hjá Odda. Þennan dag átti að rétta í Skarði, en réttin var umflotin svo að það var ekki hægt. Varð að reka féð að Odda og rétta þar í nýlega byggðum fjárhúsum. SHÞ

Dagana 9. og 10. rigndi mjög mikið á norðanverðum Vestfjörðum og á Tröllaskaga utanverðum. Dagur segir frá 11.september:

Síðdegis í gær [10.] féllu aurskriður í Ólafsfjarðarmúla á tveim stöðum. Um það leyti rigndi mikið og var grjóthrun mikið úr fjallinu. Önnur skriðan féll Dalvíkurmegin við Tófugjá, en hin í Flagi. Vegagerðarmenn unnu að því í gærkveldi að opna veginn og var stefnt að því að ljúka því verki sem fyrst. Ekki var þó víst að það tækist sökum veðurs og eins voru líkur á að fleiri skriður féllu. Lögreglan varaði fólk við því að vera á ferli um Múlann í gærkvöld á meðan þetta ástand varði. VG

Þann 16. og 17. þokaðist djúp lægð norður með Suðausturlandi og Austfjörðum. Henni fylgdi kaldur norðanstrengur og náði snjókoman um tíma suður fyrir heiðar. Víða snjóaði, en óvíða varð þó alhvítt í byggð, telst þó til tíðinda að alhvítt varð við Litlu kaffistofuna í Svínahrauni að morgni þess 15., snjódýpt mældist þá 3 cm, einnig var alhvítt að morgni 16., en snjódýptar ekki getið. Alhvítt varð einnig á Brekku í Norðurárdal. Alhvítt varð á nokkrum stöðvum á Norður- og Austurlandi þ.14. til 17., en magn lítið. Alhvítt var á Fagurhólsmýri og í Snæbýli að morgni 15. Blaðafregnir greina frá alhvítri jörð á Akureyri, en þó festi snjó ekki þar á athugunartíma. 

Morgunblaðið segir frá:

[15.september]: Akureyri. Fyrsti snjórinn í byggð á þessu hausti féll norðanlands- og austan í gær og vaknaði fólk á þessu svæði upp við það að nú er komið haust. Fjöll við Eyjafjörð urðu hvít alveg niður undir bæi, en snjór náði ekki að festast á láglendi. Veður hefur farið kólnandi á norðanverðu landinu í norðaustanáttinni sem verið hefur undanfarna daga. Í fyrrinótt breyttist úrkoman síðan úr rigningu í snjókomu eða slydduél. 

[18.september]: Snjókoma var á Akureyri allan daginn í gær og náði snjór að festast í bænum, í fyrsta skipti í vetur. Börnin í Glerárþorpi voru fljót að taka við sér. Sum fóru að renna sér á snjóþotum og önnur að búa til snjókarla.

Þann 20. og 21. var djúp lægð fyrir sunnan land og olli hún hvassviðri á landinu. Veðráttan segir frá því að þann 20. hafi orðið skemmdir af hvassviðri á húsum í Landbroti.

Þann 27.september kom mjög djúp lægð inn á sunnanvert Grænlandshaf. Líklega var hún tengd leifum fellibylsins Emily. Suðvestanátt í kjölfar lægðarinnar sló inn á landið vestanvert að morgni þess 28. Önnur lægð, heldur grynnri þó, kom síðan í kjölfarið.

Morgunblaðið segir af brimskaða í Höfnum í pistli 29.september:

Keflavík. Tvær trillur sukku í ofsabrimi sem gerði í Höfnum í gærmorgun [28.]. Björgunaraðgerðir hófust á fjörunni og kl. 18 hafði tekist að bjarga báðum trillunum. Þær voru hífðar upp úr höfninni með krana. Ekki mátti tæpara standa því þá var farið að flæða aftur og gaf á hafnargarðinn þegar menn voru að tygja sig á brott.

Morgunblaðið 2.október:

Syðra-Langbolti, Hrunamannahreppi. Senn er á enda runnið eitt besta sumar sem elstu menn muna hér um slóðir. Gamlir menn segja að grasvöxtur hafi aldrei verið meiri né uppskera garðávaxta. Tún voru sumstaðar ekki öll slegin og ekki verður tekið upp úr öllum görðum, offramleiðslan er slík að ekkert er við uppskeruna að gera. Nokkurt hret gerði á fjallmenn í fyrstu leitum og smalaðist fremur illa. Þeir sem fóru í svonefnt eftirsafn fundu því óvenjumargt fé. Vænleiki fjárins er með mesta móti og fallþungi dilka mun vera um kílói meiri að meðaltali en í fyrra. Sem fyrr sagði gerði nokkurt hret um réttarleytið upp úr miðjum september en nú hefur brugðið til betri tíðar og er kúm beitt út alls staðar ennþá. Sig. Sigm.

Október var talinn hagstæður um landið sunnanvert, en öllu óhagstæðari norðaustanlands. Djúp lægð kom að landinu vestanverðu þann 3. Henni fylgdi bæði hvassviðri og úrkoma. Lægðadrag sat eftir á Grænlandshafi og þokaðist það síðan til suðausturs fyrir suðvestan land og vindur snerist til norðurs og það kólnaði. Hvessti fyrst á Vestfjörðum þann 5. en allhvasst var víða um land þann 6. Þann 7. lægði nokkuð í bili, en síðan kom norðanstrengur yfir landið og olli illviðri um mestallt land þann 8. og 9. Síðdegis þann 10. var veðrið gengið niður. 

Morgunblaðið segir af tjóni á Snæfellsnesi í pistli 6.október:

Ólafsvík. Allmikið tjón varð á vegum og vegamannvirkjum á norðanverðu Snæfellsnesi í vatnsveðrinu sem gekk yfir um helgina [3. og 4.október]. Vindur stóð nálægt suðri en þá getur úrfellið magnast mjög niður fjallaskörðin. Ekki varð mjög hvasst, varla nema 10 til 11 vindstig en úrhelli því meira. Stóð það í minnsta kosti 12 klukkustundir. Mikið rann úr veginum í Holtsá í Fróðárhreppi, þar urðu varnargarðar að lúta í lægra haldi. Einnig rann úr við Hrísá í sömu sveit. Á báðum þessum ám eru nýjar brýr sem smíðaðar voru 1978 en þá tók eldri brýrnar af í vatnsveðri sem gerði um höfuðdaginn. Mest mun tjónið hafa orðið þegar skemmdir urðu á brú sem er í smíðum á Fróðá, þar sem hún rennur út í Klettakotsvaðal. Þar var búið að steypa stöplana og leggja um það bil 10 tonn af járni í brúargólfið. Staðið hafði til að steypa gólfið nú eftir helgina en ljóst er að leggja þarf það að nýju. Brúin er byggð á þurru en áin ruddi sér braut að henni og gróf undan gólfinu með þeim afleiðingum að það seig. Telja brúarsmiðir að verkið tefjist í u.þ.b. 2 vikur vegna þessa.

Tjón var einnig þegar vegavinnuskúrar flutu upp. 5 skúrar af 10 fóru á flakk og bárust með vindinum yfir Vaðalinn og niður á Fróðárrif. Mest mun hafa skemmst í eldhússkúrnum. Skúrar þessir hafa fengið fyrir ferðina áður, í fyrra fuku þeir í óveðri í Grundarfirði og reyndar einn svo að hann hefur ekki sést síðan. Það var lán í óláni að brúarvinnumennirnir voru í helgarfríi. Þeir hefðu örugglega einangrast þarna strax um nóttina og átt hvimleiðan laugardag á svæðinu þó allt hefði nú orðið án slysa. Voru þeir kallaðir á staðinn á sunnudag degi fyrr en áætlað var. Ungur brúarvinnumaður tjáði fréttaritara að fyrir bragðið hefðu þeir misst af stóðréttarballi í Víðihlíð. Má það vissulega líka telja til skaða fyrir unga menn. Nýr vegur er í lagningu eftir Fróðárrifi eftir brúnni en ekki varð tjón á honum. Ummerki í Fróðárgljúfrum sýna hærra flóðmark en sést hefur a.m.k. síðustu 15 árin. Þá hafa stórar jarðtorfur hrunið á fimm stöðum úr hlíðum Fróðármúla. Víða hefur áin velt stórum björgum í gljúfrunum á stöðum sem staðist hafa stórfljót án minnsta rasks til þessa. Greinilegt er að þó oft hafi verið ýgur í ánni þá hefir sjaldan verið sem nú. — Helgi.

Patreksfirði. Í mestu úrkomu sem mælst hefur á einum sólarhring í Kvígindisdal, eða 121,1 mm, urðu miklar vegaskemmdir í Vestur-Barðastrandarsýslu. Frá kl.18:00 sl. föstudag til kl.18:00 á laugardag mældist 121,1 mm á veðurathugunarstöðinni í Kvígindisdal í Patreksfirði og er það mesta úrkoma sem þar hefur mælst á einum sólarhring. Þessari úrkomu fylgdu mikil flóð og urðu afmiklar vegaskemmdir víða í vestursýslunni. Örlygshafnarvegur fór í sundur við gatnamótin í Ósafirði í Patreksfirði og lokaðist af þeim sökum. Þá urðu talsverðar skemmdir á nýlagðri klæðningu á veginum í Ósafirði skammt frá þar sem vegurinn fór í sundur. Inn á Barðaströnd urðu einnig miklar skemmdir, m.a. gróf Haukabergsá frá brúnni á ánni og lokaðist þar af leiðandi vegurinn til Patreksfjarðar um Barðaströnd. Þegar vegagerðarmenn voru svo að fara að flytja efni að brúnni hrundi annar stöpull hennar niður og brotnaði og gekk annar endi brúarinnar niður um 90 sentímetra. Brúin er talin mikið skemmd ef ekki ónýt. Vegagerðarmenn unnu við að lagfæra vað á Haukabergsá en það er aðeins fært jeppum og stórum bílum. Óvíst er um viðgerð á brúnni og á meðan þurfa þeir sem til Patreksfjarðar ætla að aka um Arnarfjörð. Þá urðu einnig verulegar skemmdir á veginum í Pennudal í Vatnsfirði, þar sem mikið rann úr veginum, og er aðgæslu þörf ef menn aka þar um. Á þjóðvegi nr.60, Vestfjarðarvegi, urðu einnig talsverðar skemmdir, víða rann úr vegköntum. Við bæinn Klett í Kollafirði og á Kletthálsi var vegurinn lokaður á laugardag. Vegagerðarmenn vinna nú að viðgerð á veginum og er óvíst hvað viðgerðin tekur langan tíma. — Fréttaritari

Rétt er að taka fram að úrkomutölurnar sem minnst var á í Kvígindisdal féllu ekki á „réttan“ úrkomusólarhring. Hefðu verið met hefðu þær gert það. Úrkomusólarhringurinn er frá kl.9 að morgni til kl.9 að morgni næsta dags. Að morgni þess 4. reyndist sólarhringsúrkoman í Kvígindisdal 102,4 mm, sú næsthæsta þá frá upphafi. Að morgni þess 3. var sólarhringsúrkoman 52,5 mm. Alls féllu því 154,8 mm í þessari úrkomuhrinu. Mest áður mældist þann 12.september 1949, 104,6 mm. Auðvitað er þessi munur ómarktækur. Eftir þetta nældi stöðin sér í nýtt met, 131,6 mm. Það var 28.mars árið 2000, þá var tveggja sólarhringa úrkoma 162,2 mm. Þann 14.nóvember 1961 mældist sólarhringsúrkoman í Kvígindisdal 101,6 mm. 

Morgunblaðið segir frá 7.október:

Fólk sem var að flytja lömb úr Brokey til slátrunar i Stykkishólmi í fyrradag [5.] hreppti skyndilega óveður á leiðinni og varð að skilja féð eftir í eyðieyju. Veðrið skánaði í gær.

Morgunblaðið segir af strandi 10.október:

Skipstjóri og áhöfn Reynis GK 177 unnu þrekvirki aðfaranótt föstudags [9.] þegar þeir björguðu tveim skipverjum af Birgi RE323 þegar Birgi hvolfdi í foráttubrimi og ofsaroki i innsiglingunni í Sandgerði, en þar er skerjagarður á bæði borð. Skipstjórinn á Reyni, Sævar Ólafsson, varð að sigla skipi sinu inn á grynningar i skerjagarðinum til þess að ná mönnunum tveimur af Birgi. Á útleið frá skerjunum eftir að Reynismenn höfðu náð skipbrotsmönnunum tveimur um borð tók Reyni tvívegis niðri. Reynir GK er 104 tonn, en Birgir tæp 10 tonn. Vegna veðurofsans hafði skipstjórinn á Reyni tekið það upp hjá sjálfum sér að fylgja Birgi eftir i liðlega klukkustund áður en bátarnir komu að innsiglingunni og það var þessi aðgæsla skipstjórans sem hefur ráðið úrslitum um að mönnunum tveimur var bjargað.

Morgunblaðið segir af brimi 17.október, þetta mun hafa verið í norðanveðrinu þann 8. til 9., þá var stórstreymt. Síðan segir úr Bjarnarfirði - og átt við sama veður:

Siglufirði. Töluverðar skemmdir urðu á sjóvarnargörðum á Siglufirði í briminu á dögunum.

Laugarhóli, Bjarnarfirði. Stóráhlaup af veðri gerði hér fyrir síðustu helgi. Hófst það með snjókomu fimmtudaginn 8. október, sem síðan jók fram á föstudaginn og fylgdi með mikið rok og gerði vegi nær ófæra hér um fjörðinn á föstudeginum. Póstur og áætlunarbifreið komust þó leiðar sinnar þann dag. Laugardaginn 10. október var svo komið sólskin og nær því logn, en snjór yfir öllu.

Aðfaranótt þess 16. skall á fárviðri á sunnanverðu Englandi. Það versta á öldinni að sögn margra. Mikið var og er um þetta veður ritað (og veðurspár tengdar því). 

Nóvember var hagstæður og í hópi þeirra allra hlýjustu sem vitað er um. Gæftir voru þó misjafnar. Þann 1. fór lægð norðaustur Grænlandssund. Nokkuð hvasst var af suðvestri, einkum á Vestfjörðum. Bæjarins besta segir frá 4.nóvember:

Aðfaranótt síðastliðins sunnudags [1.] fauk af flugvellinum á Holti í Önundarfirði, viðlagasjóðshús sem var nýkomið þangað. Húsið, sem hafði staðið þar í um það bil einn mánuð, er illa farið ef ekki ónýtt. Flugmálastjórn hafði fest kaup á húsinu, sem áður var sjoppa í Vík í Mýrdal.

Þann 3. fór enn myndarlegri lægð norðaustur um Grænlandssund. Hvessti þá af suðri og síðar suðvestri. Veðráttan segir að bátur hafi þá slitnað upp og brotnað á Bakkafirði. Einnig segir af tjóni í Barðastrandarsýslu. Morgunblaðið 5.nóvember:

Miðhúsum, Reykhólasveit. Suðvestan hvassviðri gerði hér um slóðir á þriðjudag og um kl.6 kom Kristján Kristjánsson umdæmisfræðingur hjá Vegagerð ríkisins á Ísafirði að rútu sem fokið hafði út af veginum í botni Gufufjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Einari Hafliðasyni bónda í Fremri-Gufudal var rútan frá Tálknafirði. Bílstjórinn var einn í rútunni. Vegna grjóts og sandfoks var maðurinn fluttur heim að Neðri-Gufudal. Læknirinn frá Búðardal var á heilsugæslustöðinni á Reykhólum og fór hann ásamt hjúkrunarfræðingi á staðinn. Bílstjórinn hafði meitt sig í baki og kom sjúkrabíll frá Búðardal og var ákveðið að flytja manninn á sjúkrahúsið á Akranesi vegna þess að vegurinn til Patreksfjarðar er holóttur og ekki góður fyrir sjúklinga. Hinsvegar er vegurinn á vissum svæðum nær ófær vegna aurbleytu í Reykhólasveit. Líðan bílstjórans er góð eftir atvikum. Hér var á ferðinni flugvallarrútan sem flytur fólk á Patreksfjarðarflugvöll. Rútan er mikið skemmd, ef ekki ónýt. — Sveinn

Allmikil lægð fór norðaustur yfir landið þann 18. Í kjölfar hennar hvessti mjög af norðvestri á Austurlandi. Austurland segir frá tjóni í þessu veðri 26.nóvember:

Mikið óveður gekk yfir Austfirði á síðasta fimmtudag [19.]. Nokkuð tjón varð á húsum er þakplötur losnuðu, einkum á Reyðarfirði og á Seyðisfirði og í þeim atgangi varð einn maður fyrir meiðslum er hann varð fyrir þakplötu á Reyðarfirði.Fjórir bílar fuku af vegum seinnipart fimmtudagsins og þar af voru tvær rútur Austfjarðaleiðar hf. Stór og nýleg áætlunarbifreið fyrirtækisins fauk út af veginum skammt frá Framnesi við Reyðarfjörð um kl.15:30. Aðeins einn farþegi var í bílnum auk ökumanns og sluppu bæði án meiðsla. Hin rútan fauk út af veginum um Oddsskarð. Þar urðu ekki heldur slys á mönnum, en tveir voru í bílnum. Báðir skemmdust bílarnir mikið. Tveir jeppar fuku einnig af vegi, annar á Oddsskarði en hinn skammt frá Framnesi við Reyðarfjörð. Smávægileg slys urðu á mönnum í öðrum bílnum. Þetta veður er með því versta í mörg ár og rekur menn ekki minni til að bílar hafi í þessum mæli orðið hvassviðri að bráð hér eystra fyrr. Hvassviðrið stóð stutt yfir og var verst á milli kl. 16 og 19. Þess ber að gæta að mikil hálka var efst í Oddsskarði og má það raunar undrum sæta að ekkert skuli gert í að sandbera þann veg, þar sem hér er um stuttan kafla að ræða, sem jafnframt er hættulegur vegna hinnar miklu hæðar. hb

Lægð fór norðaustur Grænlandssund þann 21. og í kjölfar hennar hvessti af norðri. Þá skemmdust bílar af sandfoki á Skógasandi (Veðráttan). 

Slide10

Einmunatíð var í desember. Mánuðurinn einn sá hlýjasti frá upphafi mælinga. Snjólaust var lengst af og gróður gerði vart við sig í görðum. Vindur var lengst af suðlægur eða austlægur. Kortið sýnir meðalhæð 500 hPa-flatarins, meðalþykkt og þykktarvik, allt harla afbrigðilegt. 

Morgunblaðið segir 8.desember frá skriðufalli:

Bolungarvík. Mikil grjótskriða féll á Óshlíðarveg milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur á sjöunda tímanum á sunnudagskvöld [6.], þar sem vegurinn liggur neðan við svokallaða Kálfadalsbakka. Skriðan þakti um 20—30 metra kafla vegarins og lokaðist hann í rúman klukkutíma. Á þessum stað á Óshlíð hefur aldrei fallið grjót eða skriða því þarna er grasi gróinn dalur ofan við um 30—40 metra hátt klettabelti.

Á Þorláksmessu kom lægð að landinu úr suðvestri. Hún grynntist, en á sama tíma leitaði mjög kalt loft til suðurs við Austur-Grænland. Í fyrstu var mjög hlýtt um mestallt land, en vindur óx af norðaustri á Vestfjörðum og vann norðaustanáttin sig smám saman suður á bóginn næsta sólarhringinn. Nokkuð sérkennilegt veður. Ekki varð þó úr teljandi kuldakasti því á jóladag nálgaðist mjög víðáttumikil og djúp lægð sunnan úr höfum og þá fór strax að hlýna aftur. Kuldinn þrjóskaðist þó lengi við á norðanverðum Vestfjörðum og sömuleiðis, en styttra, við norðausturströndina. 

Slide12

Kortið gildir á hádegi á aðfangadag jóla (24.desember). Lægðin er að grynnast við suðvesturströndina og hörfar löturhægt til austurs. Norðaustanstrengur liggur yfir landinu vestanverðu. Kalt loft sækir að úr norðri. 

Slide13

Háloftakortið á sama tíma sýnir að uppi í 500 hPa er vindur mjög hægur (af suðvestri), en þykktarbratti er mjög mikill yfir landinu, hver litur örmjór borði. Það er þykktarbrattinn sem knýr vindinn. Í neðri lögum nær kalda loftið sunnar heldur en ofar.  

Slide11

Íslandkortið sýnir veður á landinu. Í Reykjavík er enn 2 stiga hiti, en nærri -6 stiga frost uppi í Borgarfirði. Fyrir austan fjall er ákveðin norðaustanátt og hiti rétt neðan frostmarks. En þar er frostregn í lágsveitum, köld norðaustanáttin er örgrunn, hlýrri sunnanátt rétt ofan við. Í Mýrdal og á Stórhöfða er um 7 stiga hiti. Kalda loftið sækir líka að úr austri, hiti við frostmark í Hjarðarnesi í Hornafirði, en hlýrra er vestar. Þennan dag var ritstjóri hungurdiska á ferð með rútu Sæmundar úr Reykjavík í Borgarnes, rétt upp úr hádeginu. Þegar kom fyrir hornið á Hafnarfjalli hvessti rækilega, skafbylur á litlu svæði og lítið skyggni, en betra var í Borgarnesi (eins og venjulega í þessari átt). 

Í þessu veðri varð það hörmulega slys að tvennt varð úti á Kletthálsi. Talsvert tjón varð á aðfangadag á raflínum í Flóa og Ölfusi vegna ísingar. Morgunblaðið segir frá 29.desember. Mun ítarlegri frásagnir af slysinu má finna í blöðunum. 

Sextán ára stúlka og 31 árs gamall maður urðu úti á Klettshálsi í Austur-Barðastrandarsýslu á Þorláksmessudag, eftir að þau yfirgáfu bifreið, sem hafði orðið föst í skafli. Þau höfðu gengið 9-10 kílómetra er þau örmögnuðust. Lík þeirra fundust um hádegi á sunnudag.

Rafmagnslaust varð um stundarsakir á nokkrum bæjum í Ölfusi og í Flóa á aðfangadagskvöld. Orsök þessa var sú að rafmagnsstaurar brotnuðu undan þunga rafmagnslína og vegna hvassviðris. Í Ölfusi brotnuðu tíu staurar en þar hafði mikil ísing safnast á rafmagnslínuna sem er mjög þung fyrir, var byggð árið 1947 og er með þungum vír. Staurarnir sem féllu eru undir Ingólfsfjalli vestanverðu en þar var mjög hvasst og sviptivindasamt þennan dag. Í Flóa brotnuðu þrír staurar vegna ísingar á línum. Rafmagnslaust varð á þessu svæði um tíma á aðfangadagskvöld. Starfsmönnum Rafmagnsveitna ríkisins tókst að koma rafmagni á velflesta bæi um kvöldið og unnu þeir að viðgerðum alla jólanóttina. Ráðgert er að styrkja raflínuna undir Ingólfsfjalli sérstaklega með tilliti til þess hversu þung línan er þar og sviptivinda sem þar geta komið. — Sig. Jóns.

Selfossi. Áætlunarbifreið með 40 farþega fór útaf Suðurlandsvegi skammt vestan Ingólfsfjalls síðdegis á aðfangadag jóla. Bifreiðin lenti i snörpum vindsveip og ökumanninum tókst að sveigja útaf veginum og forða frekara óhappi. Á aðfangadag var mjög hvasst og hált á veginum undir Ingólfsfjalli og sterkur vindstrengur með fjallinu vestanverðu. Fólksflutningabifreiðin, sú stærsta í bílaflota Sérleyfisbíla Selfoss, var í áætlunarferð frá Reykjavík þegar óhappið varð. Bílstjórinn stýrði bílnum skáhallt útaf og stöðvaði hann í móa spöl frá veginum. Nokkrum mínútum síðar var annar bíll frá Sérleyfisbílum Selfoss kominn á vettvang og tók hann farþegana og flutti áfram. Ekki er vitað til að neinum hafi orðið meint af þessu óhappi. — Sig. Jóns.

Morgunblaðið segir 30.desember frá illviðri og ísingu á Snæfjallaströnd:

Bæjum, Snæfjallaströnd. Norðan stórhríð hefur geisað hér undanfarna daga og ekki séð út úr augum. Mikil ísing og snjókoma. 18—20 rafmagnsstaurar að nýuppsettri og endurbyggðri
línu hrundu niður í Nauteyrarhreppi á mánudag. Þetta gerðist þrátt fyrir að frámunalega sterklega hafi verið gengið frá staurunum hér í sumar. Allir bæir í Nauteyrarhreppi eru
rafmagnslausir og einnig er rafmagnslaust öðru hvoru á bæjum hér í Snæfjallahreppi. Reynt er um nætur og daga að tjasla á rafmagni frá Mýrarárvirkjun en hún dettur svo út af og til. —Jens í Kaldalóni.

Lýkur hér samantekt hungurdiska um árið 1987. Að vanda eru fjölbreyttar tölulegar upplýsingar (meðalhiti, mánaðarúrkoma ofl.) í viðhenginu.  


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 26. júní 2025

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Slide11
  • Slide13
  • Slide12
  • Slide10
  • Slide9

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 208
  • Sl. viku: 1413
  • Frá upphafi: 2478756

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1248
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband