16.6.2025 | 21:03
Bakþanki um maí - og smámunir tengdir 17.júní
Sem kunnugt er var nýliðinn maímánuður fádæma hlýr á landinu. Meðalhiti í byggðum landsins var um 0,8 stigum hærri heldur en hann hefur hæstur orðið í mánuðinum til þessa - að minnsta kosti í 200 ár. Svona mikil bæting slær mann dálítið út af laginu. Sjálfsagt er að reyna að bera þetta saman við met annarra mánaða. Það er auðveldast að gera með því að nota staðalvik hitans. Spurning vaknaði hvort þessi nýja metbæting væri jafnsérstök þegar miðað er við það sem gerst hefur í öðrum mánuðum. Bjóst ritstjórinn satt best að segja við því að svo gæti verið.
Raunin var hins vegar sú að í ljós kom að fyrri meðalhitamet maímánaðar eru einfaldlega talsvert rýrari í roðinu heldur en met annarra mánaða. Maí hefur einfaldlega legið eftir í samkeppninni, gamla meðalhitametið sem er frá 1935 er einfaldlega fremur rýrt ef svo má segja. En nú hefur sum sé verið bætt úr því og maí kominn í hóp hinna venjulegu hvað þetta atriði varðar.
Á myndinni má sjá hlýjustu mánuði viðmiðunartímabilsins alls (1874 til 2024) - hiti þessara mánaða er reiknaður í staðalvik (miðað við tímabilið 1931-2010). Bláar súlur. Langlægsta bláa súlan er sú fyrir maí, mesta jákvætt staðalvik þess mánaðar náði ekki nema 1,76 sem er mun lægri tala heldur en mesta staðalvik allra annarra mánaða. Gráa súlan sýnir hins vegar hina miklu bætingu, alveg upp í 2,37 staðalvik. Maí er þar með kominn í miðjan hóp mestu staðalvika - út af fyrir sig mjög vel af sér vikið, en samt ekki þannig að um einhvern nýjan raunveruleika sé að ræða. Nú er það helst janúar sem situr eftir, rétt við 2 staðalvik sem hámark. Að vísu er mjög líklegt að janúar 1847 hafi verið enn hlýrri, kannski 2,2 staðalvik. Tölur frá þeim tíma eru þó það óvissar að ekki er rétt að fullyrða að svo hafi verið.
Eins og venjulega er nú verið að tala veðrið 17.júní niður. Margskonar samanburður hefur verið gerður á veðri þess dags og annarra daga þar nærri. Munurinn er auðvitað enginn. Eins og dyggir lesendur hungurdiska vita skilgreinir ritstjórinn það sem hann kallar sumardaga og telur í lok sumars. Þetta er nokkuð hörð skilgreining. Það er auðvitað hægt að beita henni á almanaksdaga hvern fyrir sig og telja hversu oft ákveðinn almanaksdagur hefur talist sumardagur í Reykjavík. Gögn gefa möguleika á talningu aftur til ársins 1949. Á þeim 76 árum sem liðin eru síðan hefur 17.júní sex sinnum verið sumardagur (samkvæmt hinni vafasömu skilgreiningu ritstjórans) - svona á 12 ára fresti. Þetta er nánast sama og dagana á undan og eftir, en um 20.júní vaxa líkur á sumardögum mjög í Reykjavík, eins og myndin hér að neðan sýnir.
Hér má sjá talningu sem nær frá 1.júní til 30.september. Í lok júní hafa líkur á því að dagur teljist sumardagur um það bil þrefaldast frá þeim 17. Hámarki er náð um og fyrir 20.júlí, en líkur haldast samt svipaðar fram undir miðjan ágúst - þá falla þær ótrúlega ört aftur, sérstaklega eftir þann 20. Sumardagar í september eru sárafáir, rétt eins og í maí. Við getum litið svo á að aðalatriði myndarinnar sýni einhvern sannleika, en breytileika frá degi til dags getum við ekki tekið alvarlega.
16.6.2025 | 13:44
Fyrri hluti júní 2025
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 16. júní 2025
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 142
- Sl. sólarhring: 171
- Sl. viku: 1324
- Frá upphafi: 2476571
Annað
- Innlit í dag: 131
- Innlit sl. viku: 1165
- Gestir í dag: 124
- IP-tölur í dag: 122
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010