Á kuldapollavaktinni

Það er alltaf fróðlegt að fylgjast með kuldapollum og í pistli dagsins koma tveir við sögu. Ekki eru þeir mjög stórir, en samt afgerandi á sinn hátt. Spákort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir síðdegis á sunnudag 1.júní (eftir tvo sólarhringa) verður hér fyrir valinu sem sýningaratriði.

w-blogg300525a

Heildregnar línur sýna hæð 500 hPa-flatarins. Af þeim ráðum við vindátt og vindstyrk í miðju veðrahvolfi. Litir sýna þykktina, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Þeir vönu sjá umsvifalaust að hér hafa orðið mjög mikil umskipti frá því sem var á dögunum þegar óvenjuleg hitabylgja gekk hér yfir. Landið var þá dögum saman í þykkt sem á kortinu er sýnd með gulbrúnum lit - þykktin var meiri en 5520 metrar.

Við höfum nú í nokkra daga verið á mörkum dekkri grænu litanna - eins og spáð er áfram fram á sunnudag. Þykktin er nærri 5340 metrum. Neðri hluti veðrahvolfs er um 10 stigum kaldari heldur en mest var í hitabylgjunni. Meðalþykkt um mánaðamótin maí/júní er í kringum 5380 metrar. Í dag - og á sunnudaginn er loft í neðri hluta veðrahvolfs því um 2 stigum (40 m) kaldara heldur en að meðaltali. Loftið er nægilega kalt til þess að í hægum vindi nægir sólarylur til þess að búa til skúraklakka yfir landinu með tilheyrandi dembum á víð og dreif.

En á sunnudaginn er að draga til tíðinda. Við sjáum tvo kuldapolla. Sá sem er meira afgerandi er við Norðaustur-Grænland, illilegur að sjá. Hinn er á suðvestanverðu Grænlandshafi, virðist veigalítill og hreyfist allhratt til austurs fyrir sunnan land. Við köllum hann Sprett. 

Það er sérstaklega tvennt sem gerir reiknilíkönum hér nokkuð erfitt fyrir. Annars vegar er spurningin um það hvort stærri kuldapollurinn, við getum til bráðabirgða kallað hann Hroll verpir eggi eða ekki. Með því er spurt hvort syðri endi hans slitnar frá meginkuldanum eða ekki. Á þessu korti er aðkenning að slíku, alllangur poki suður úr meginkuldanum. Gerist það verður framhaldið „orkuminna“ heldur en ella. Þetta er nokkuð vandasamt.

Hitt atriðið varðar samskipti kuldapollanna tveggja. Hvernig verður stefnumótið? Nú er það svo að mikil tilhneiging er til þess að miðjur svona kuldapolla forðist hvor aðra - þeir „dansa sig“ inn í sameiningu frekar en að rekast beint og hiklaust saman. Hafa á meðan dansinum stendur tilhneigingu til að snúast um einhvers konar sameiginlega miðju - og nálgast hana síðan smám saman. 

Undanfarna daga hafa líkönin verið á verulegu hringli með þetta atriði. Það skiptir hins vegar öllu fyrir veðrið hér á landi, hvort það verður bara leiðinlegt eða hvort það verður hreinlega afleitt - á því er mikill munur. Þótt ritstjóri hungurdiska geti á fágætum stundum verið býsna glúrinn, á hann samt engan möguleika á að giska betur heldur en reiknilíkönin. En hann sér alla vega að þau eiga í verulegum vanda - og hvers eðlis þessi vandi er. 

Sem stendur stingur evrópureiknimiðstöðin upp á því að út úr sameiningunni verði til 966 hPa lægð við Færeyjar á miðvikudaginn (4.júní). Fari svo er um harla óvenjulegan atburð að ræða - við eigum ekki á lager nema fimm tilvik af lægri júníþrýstingi heldur en 975 hPa hér á landi frá upphafi mælinga. Vissulega eru svo djúpar lægðir mun algengari en það á svæðinu öllu að sumarlagi, en tölur undir 970 hPa eru samt alltaf mjög eftirtektarverðar í júní. 

Þess má að lokum geta að Hrollur er „þverskorinn“ sem ritstjóri hungurdiska (en enginn annar) kallar svo. Slíkir kuldapollar kunna oftast(?) ekki góðri lukku að stýra. 

Ritstjóranum finnst líka nokkuð merkilegt að aðeins hálfum mánuði eftir að hann leitaði að hita- og háþykktarmetum, skuli hann nú leita uppi kulda- og lágþykktarmet. 


Bloggfærslur 30. maí 2025

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg310525b
  • w-blogg310525a
  • w-blogg300525a
  • w-blogg260525a
  • w-blogg250525a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 53
  • Sl. sólarhring: 717
  • Sl. viku: 2314
  • Frá upphafi: 2473001

Annað

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 2144
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 46

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband