Fyrstu tíu dagar maímánaðar 2025

Fyrstu tíu dagar maímánaðar hafa verið hlýir, þó áberandi hlýrri austanlands heldur en vestan. Meðalhiti í Reykjavík er 6,6 stig og er það +1,0 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og +1,3 stig ofan meðallags síðustu tíu ára. Raðast hitinn í 9. hlýjasta sæti aldarinnar (af 25). Dagarnir tíu voru hlýjastir 2011, meðalhiti þá 8,6 stig, en kaldastir voru þeir 2015, meðalhiti 1,7 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 37. hlýjasta sæti (af 151). Hlýjast var 1939, meðalhiti þá 9,1 stig, en kaldast 1979, meðalhiti -1,0 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti þessa tíu daga 8,6 stig, +3,7 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og +4,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára. Síðustu 90 ár hefur maí þrisvar byrjað með hærri tölu, árið 2017, 2001 og 2000.
 
Eins og áður sagði er hitavikum nokkuð misskipt. Á Austfjörðum er þetta hlýjasta maíbyrjun aldarinnar og hún er sú næsthlýjasta á Norðausturlandi, Austurlandi að Glettingi og Suðausturlandi, en hins vegar sú 9. hlýjasta við Faxaflóa og á Suðurlandi.
 
Á einstökum stöðvum er vikið mest á Skjaldþingsstöðum. Þar hefur hiti verið +5,5 stigum ofan meðallags, minnst er vikið á Þingvöllum, +1,2 stig.
 
Úrkoma hefur mælst 31 mm í Reykjavík og er það um 60 prósent umfram meðallag, á Akureyri hefur úrkoman mælst 5,3 mm og er það um tveir þriðju hlutar meðalúrkomu. Á Dalatanga hafa mælst 3 mm og er það aðeins tíundihluti meðalúrkomu.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 43 í Reykjavík, 21 færri en í meðalári. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 48,6. og er það í meðallagi.
 
Að sögn reiknimiðstöðva fer hlý vika nú í hönd.

Bloggfærslur 11. maí 2025

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • w-blogg080525a
  • w-blogg070525b
  • w-blogg070525a
  • Slide8
  • Slide7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 43
  • Sl. sólarhring: 202
  • Sl. viku: 1513
  • Frá upphafi: 2465884

Annað

  • Innlit í dag: 41
  • Innlit sl. viku: 1376
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 41

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband