Fyrri hluti apríl 2025

Fyrri hluti apríl 2025 hefur verið mjög hlýr, þótt örlítið hafi slegið á hlýindin nú síðustu dagana. Meðalhiti í Reykjavík er +5,6 stig og er það +2,7 stigum ofan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og +2,6 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er hlýjasta aprílbyrjun aldarinnar í Reykjavík, en ekki langt ofan við hlýindin fyrir tveimur árum (2023). Kaldasta aprílbyrjun aldarinnar var hins vegar 2006, meðalhiti þá var +0,4 stig. Á langa listanum lendir hitinn í sjöttahlýjasta sæti. Hlýjast var 1929, meðalhiti sömu daga +6,6 stig. Kaldast var 1876, meðalhiti þá -4,1 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti fyrri hluta apríl +5,3 stig, +3,7 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og +3,5 stig ofan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er næsthlýjasta aprílbyrjun síðustu 90 ára á Akureyri, lítillega hlýrra var 1981.
 
Þetta er hlýjasta byrjun aprílmánaðar á 5 af 10 spásvæðum landsins, Faxaflóa, Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðausturlandi og Suðausturlandi. Það er Austurland á Glettingi sem er neðst í röðuninni, þar er hitinn í fjórða hlýjasta sæti.
 
Stærstu jákvæðu vikin eru samt á fjöllum austanlands. Hiti á Gagnheiði er +5,2 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára og +5,0 stigum í Oddsskarði. Kaldast að tiltölu hefur verið í Surtsey, hiti þar er +1,8 stig ofan meðallags síðustu tíu ára.
 
Úrkoma hefur mælst 17,5 mm í Reykjavík, um helmingur meðalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 32,2 mm, nærri tvöföld meðalúrkoma og á Dalatanga hefur hún mælst 59,6 mm - og er það í meðallagi.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 66,1 í Reykjavík og er það nærri meðallagi. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 85,4, 28 stundum fleiri en að meðaltali í fyrri hluta apríl.

Bloggfærslur 16. apríl 2025

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • w-blogg310525b
  • w-blogg310525a
  • w-blogg300525a
  • w-blogg260525a
  • w-blogg250525a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 537
  • Sl. sólarhring: 597
  • Sl. viku: 2798
  • Frá upphafi: 2473485

Annað

  • Innlit í dag: 471
  • Innlit sl. viku: 2568
  • Gestir í dag: 437
  • IP-tölur í dag: 429

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband